20.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (3247)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson) [óyfirl.]:
Eins og tekið er fram í nál. minni hluta allshn, klofnaði n. um málið. Það fóru allverulegar umr. fram um málið við 1. umr. þess og sjálfstæðisflokkurinn dregur enga dul á það, að hann sé eindregið á móti slíkri aðferð sem liggur í meginatriði þessa frv., sem sé að ríkið eitt hafi með ferðaskrifstofu að gera. Hinsvegar vill hann fallast á, að sett séu ákvæði með löggjöf um, að ríkið setji á stofn auglýsingastarfsemi í öðrum löndum, og að því sé gefinn möguleiki til að afla fjár, svo unnt verði að standast þann kostnað, sem af því verður. Slík starfsemi gæti að öllu leyti farið fram, án þess að ríkið eitt ræki ferðaskrifstofu. Á þetta allt saman var bent við 1. umr. þessa máls. Undanfarið hafa staðið yfir umr. um, hvort ekki væri hægt að setja inn í lögin, að jafnframt auglýsingastarfseminni hefði ríkið á hendi leiðbeiningar fyrir ferðamenn. hér innanlands og að þeir aðrir, sem nú reka þennan starfa hér, gætu einnig framvegis haft þennan starfa með höndum. Af því að ég tel útlit á, að samkomulag fáist um þessar breytingar, sem sjálfstæðisflokkurinn getur gengið að, þá vil ég mælast til þess, að frv. nái að ganga til 3. umr., þrátt fyrir það, þó við séum andvígir því. Ég sé ekki ástæðu til þess á þessu stigi málsins að fara út í einstakar gr. frv., en vil áskilja mér rétt til þess við hæstv. forseta að mega þá gera það við 3. umr. málsins, ef samkomulag ekki næst.