25.11.1935
Efri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2284 í B-deild Alþingistíðinda. (3268)

154. mál, verslun með kartöflur og aðra garðávexti

Magnús Guðmundsson:

Ég ætlaði aðeins að biðja hæstv. forseta að taka málið út af dagskrá. — Það kom til umr. í fjvn., að það væri ekki í samræmi við þingsköp að afgr. frv., sem hafa í för með sér útgjöld fyrir ríkissjóð, án þess að leita álits fjvn. um þau, eða fjárhagsatriði þeirra. Nú er það svo, að fjvn. hefir dag eftir dag og viku eftir viku, og jafnvel að segja megi mánuð eftir mánuð, setið með sveittan skalla við að finna leiðir til þess að fara niður og spara útgjöld ríkisins. Það verður því að telja fremur óviðeigandi að afgr. á bak við hana frv., sem talsverð útgjöld fylgja, einkum þar sem í 17. gr. þingskapanna er skýrt ákvaði um, að leita skuli álits fjvn. um öll þau atriði, er leiða af sér útgjöld fyrir ríkissjóðinn. En þó að þessum ákvæðum hafi ekki verið fylgt, sýnist það ekki heppilegt, en réttara að hverfa að því að fylgja þeim framvegis.

Og hér er alls ekki um svo lítið fjárhagsatriði að ræða, þar sem á að ráðstafa 60 þús. kr. til verðlauna, og í 5. gr. frv. er gert ráð fyrir að byggja geymsluskála hér í Reykjavík, og jafnvel víðar út um land. Hér er því um talsverða upphæð að ræða, og sýnist því rétt í þessu sambandi að minna á ákvæði þingskapanna. Ég vil því mælast til, ég held fyrir hönd allrar n., — það verður leiðrétt ef ekki er rétt —, að málið verði nú tekið út af dagskrá og vísað til athugunar fjvn.