20.12.1935
Sameinað þing: 33. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í B-deild Alþingistíðinda. (327)

1. mál, fjárlög 1936

Jóhann Jósefsson:

Hv. fjvn. hefir tekið upp till. um framlag til Vestmannaeyjahafnar. til dýpkunar og uppfyllingar, fyrstu greiðslu af fjórum, 30 þús. kr. Þetta er sú úrlausn, sem n. hefir séð sér fært að veita við þeim tilmælum, sem ég hefi flutt við n. og flutti þegar í byrjun starfstímabils þessa þings. En þá sendi ég hv. fjvn. málaleitun um 80 þús. kr. framlag og 90 þús. kr. ríkisábyrgð til mannvirkis í Vestmannaeyjum í sambandi við dýkun og uppfyllingu hafnarinnar.

Þetta mannvirki stendur í sambandi við framhaldsbyggingu hafnarinnar, og ég hefi lýst því hér, og eins var því lýst ræðu hv. 3. landsk., hver nauðsyn væri á, að þetta mannvirki væri unnið.

Áætlunarútboð, sem vitamálaskrifstofan hefir látið gera um þetta mannvirki, nemur um 316 þús. kr., og þetta er þannig mannvirki, að það verður ekki slitið í sundur, og var meiningin að reyna að ljúka við það á næsta ári.

Nú var það svo, að í fjárlfrv. stj. eins og það var lagt fyrir þingið voru ekki veittar nema 15 þús. til dýpkunar. Í þeim viðtölum, sem fram hafa farið milli ykkar bæjarmanna í Vestmannaeyum, mín, bæjarstjóra, hv. 3. landsk. hafnarnefndarmanns annarsvegar og ríkisstj. hinsvegar höfum við farið fram á, að þessar fjórar árlegu afborganir yrðu hafðar eins og þær standa í frv., og þar að auki yrði ekkert hróflað við 15 þús. kr. fjárveitingunni, sem stj. hefir ákveðið til dýpkunarinnar, vegna þess að þá hefðum við 45 þús. kr. af ríkisfé til þessa mannvirkis. En það er ekki nema rúmlega helmingur af því, sem við hefðum átt eftir fyrri venju að eiga von á úr ríkissjóði, sem sé 1/3

Nú er það svo, sem ég hefi þegar lýst, að n. hefir ekki séð sér fært að taka upp öðruvísi þennan lið en að breyta þessum 15 þús. kr. í 30 þús., og verður því raunverulega framlagið úr ríkissjóði til þessa mikla mannvirkis ekki nema 15 þús. kr. þetta ár. En vegna þess að gera má ráð fyrir, að bætist við þá áætlun, sem vitamálaskrifstofan hefir látið gera, þá er það sýnilegt, að þetta verður mjög óaðgengilegt fyrir kaupstaðinn, að leggja út í þetta mannvirki með svona litlu fjárframlagi úr ríkissjóði. Að vísu hefir hafnarsjóður handbærar um 70 til 80 þús. kr. á ári, en hér er um svo mikinn kostnað að ræða, sem kemur allur á sama sumarið, og þess vegna hefi ég leyft mér að bera fram brtt. eða viðaukatill. við till. fjvn., þannig lagaða, að fyrsta árið verði þetta 30 þús. Kr. framlag hækkað um þær 15 þús. kr., sem n. upphaflega ætlaði til dýpkunar í Vestmannaeyjum, áður en nokkur heildaráætlun lá fyrir.

Ég skal ekki eyða fleiri orðum að því að tala um nauðsyn þess,að höfnin komist sæmilegt horf. Ég er búinn að leiða rök að því áður og vona, að hv. þdm. skilji þau og sjái sér fært að styðja þetta fyrirtæki.

Þá vildi ég minnast á það, að hv. fjvn. hefir tekið upp 6 þús. kr. fjárveitingu til ræktunarvegarins í Vestmannaeyjum. Það hefir í rauninni ekki komið fram fyrr en við 3. umr., en var þó samþ. og fyrirhugað við 2. umr., en hafði fallið burt af vangá. En hv. frsm. n. tók það þá þegar fram, að þetta væri ákveðið og yrði lagt fram formlega við 1. umr.

Ég er hv. fjvn. þakklátur fyrir, að hún leggur þetta til með ræktunarveginn. svo langt sem það nær, þó að þetta sé að vísu sú lægsta upphæð. sem þessi vegur hefir fengið úr ríkissjóði. En síðan hafa þeir atburðir gerzt, að hér hefir verið borið fram frv. um aukinn skatt á benzíni, og í sambandi við þennan aukna skatt till. um vegabætur á landi hér, fyrir það fé, sem skattinum nemur að nokkru leyti. Og eru þær vegabætur nánar tilleknar í frv. til l. um bráðabrigðatekjuöflun til ríkissjóðs, sem nýlega hefir verið afgr. Þá bar ég fram brtt. um það, að benzínskatturinn. sem til félli í Vestmannaeyjum, yrði notaður á sama hátt og annarsstaðar til þess að bæta vegina þar. Eins og allir vita, er landfræðileg afstaða Vestmannaeyja þannig, að það er greinilega afmarkað, að bifreiðar þar hafa ekki gagn af vegabótum hér í landi. Eins og allir sjá, mælti öll sanngirni með því, að við fengjum tiltölulega eins og aðrir landsmenn að nota þennan aukna skatt í okkar þarfir. Þá var það, að hv. þm. Mýr., sem ekki hafði fylgzt með í því, sem gerzt hafði í fjvn., og vissi ekkert um yfirlýsingu frsm. fjvn., tók þá afstöðu eingöngu af misskilningi og tók fram í fyrir mér og sagði að það það væri ræktunarvegurinn, sem Vestmannaeyjar fengju fyrir benzínskattinn. Nú hefir hv. þm. Mýr. fengið það upplýst, að hann hefir hér farið með rangt mál, en því miður fékk hann ekki þær upplýsingar fyrr en um seinan, þannig að búið var að fella till., sem ég flutti við frv. um bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs. Og ég býst við, að hv. þm. Mýr. hafi með sinni ótímabæru frammítöku dregið þó nokkur atkv. frá minni till., sem á allan hátt var réttmæt og sanngjörn.

Ræktunarvegurinn hefir verið styrktur um mörg undanfarin ár án þess að benzínskatturinn hafi komið þar til greina. Þess vegna fór ég fram á, þegar skatturinn var hækkaður og honum átti einmitt að verja til vegabóta, að við fengjum hlutfallslega við aðra landsmenn að nota þennan skatt í okkar þarfir.

Ég hefi nú lýst því nokkuð, hvernig það bar til, að misskilningur komst inn í það mál. þegar afgr. var frv. um bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs. En það verður ekki aftur tekið, en á hinn bóginn er hægt að bæta úr þessu með því að hækka lítilsháttar það framlag til ræktunarvegarins, sem n. hefir stungið upp á. Brtt. mín á þskj. 890 fer í þá átt, að þetta verði gert. Mér sýndist það eina leiðin til þess á þinglegan hátt að leiðrétta það misrétti, sem átti sér stað við afgreiðslu hins málsins.

Ég vil taka það fram, að sú viðbót, sem ég fer fram á til ræktunarvegarins nú er langt um lægri heldur en í till., sem ég flutti við bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs, því að hún hljóðaði upp á 5 þús. kr., og var það eftir því, sem ég komst næst, nálægt þeirri upphæð, sem bifreiðaeigendur koma til með að borga í aukinn benzínskatt, en til þess að gera það aðgengilegra fyrir hv. Alþingi að samþ. þetta, þá stilli ég kröfunni mjög í hóf og fer ekki fram á nema 3 þús. kr. viðbót. Ég vona því, að hv. þm. sjái sér fært að taka til greina þessa litlu leiðréttingu, sem ég er að reyna að koma á það misrétti, sem á að beita Vestmannaeyinga.

Á sama þskj. hefi ég leyft mér að bera fram brtt. við 18. gr., um nokkurn styrk til Þórarins Jónssonar tónskálds. Ég er í rauninni ekki einn um að bera fram till. um styrkveitingu til handa þessum manni, því að það hafa margir gert áður, og hefir þeim alltaf verið sinnt af þinginu. Ég held, að ég fari rétt með, að á síðasta ári hafi styrkveitingu til þessa manns, numið um 1500 kr., en þá var hann í 15 gr. En nú er það alsiða, að þegar menn hafa um nokkurt skeið verið í þeirri grein, hafa þeir verið fluttir yfir í 18. gr., ef þeir þykja styrks verðir.

Hv. þm. er öllum kunnugt, að þessi maður hefir dvalið erlendis að mestu um 9 ára bil. Hann er fátækur og umkomulaus, og því miður, þrátt fyrir gáfur sínar, illa fallinn til þess að auglýsa sjálfan sig eða að koma sér á framfæri. Ég hefi talsvert náin kynni af honum persónulega og veit, að þetta háir honum mjög í því að komast áfram. Skapgerð hans er þannig, að hann er ákaflega dulur og óáleitinn og hefir sig því lítið í frammi. Þegar svo þar við bætist féleysið, háir þetta honum mjög á þeirri þyrnibraut, liggur mér við að segja, sem hann verður að ganga. Það dylst engum, sem vit hefir á, það sér maður m. a. af blaðadómum, að Þórarinn tónskáld er mjög mikilhæfur á sínu sviði. Það eru ekki alltaf bezt gefnu og í rauninni hæfustu mennirnir, sem bezt komast áfram; þar þarf meira til, og aðrir eiginleikar vega oft meira í þeim efnum að fleyta mönnum áfram, þó þeir hafi ekki meiri gáfur heldur en snillingarnir, sem lítið ber á. Það þarf engum getum að því að leiða, að með þeim litla styrk, sem Þórarinn hefir fengið að undanförnu, á hann við mjög þröngan kost að búa, og það er ógnar vel kunnugt þeim, sem þekkja hann persónulega, að hann á oft á tíðum mjög bágt. Hann er löngum algerlega félaus, og ég held satt að segja, að það féleysi geti jafnvel orðið honum að fjörtjóni, ef ekki er lítið meira til hans en gert hefir verið, og má því nær fullyrða það, ef sleppt verður af honum hendinni nú. Menn hafa stundum sagt sem svo: því kemur maðurinn ekki heim? Margir vinir hans og velunnarar vilja, að hann komi heim. Ég hefi líka talað um þetta við Þórarin tónskáld. En hann er ákaflega þrautseigur maður og dulur og talsvert erfitt við hann að eiga um þá hluti, sem snerta hans prívatlíf. Svo er það nú einu sinni svo. að listamenn, og það ekki sízt á þessu sviði, lifa og hugsa í rauninni allt öðruvísi heldur en við leikmenn á andans sviði. Ég veit það af persónulegri kynningu, að Þórarinn elur þá von í brjósti, að þó hann e. t. v. njóti aldrei ánægjunnar af að sjá verk sín hljóta viðurkenningu. þá muni þó land hans ein-hverntíma njóta frægðar af þeim, þegar hann er kulnaður út einsamall úti í heimi. Það er sú von og vissa, sem vakir alltaf í huga hans og virðist geta honum þrek til að mæta ýmsu mótlæti, sem ekki þarf að lýsa, en menn vita, að eltir oft févana útlendinga úti í heimi. Ég tók það fram, að það er ekki vottur þess, að Þórarinn sé iðjulaus, þó lítið heyrist frá honum. Það er svo fjarri eðli hans, eftir því sem ég hefi komizt næst, að reyna til þess að vekja á sér athygli, að það er hálfgerð raun að því fyrir þá, sem vita, hvers virði maðurinn er. Ég vonast til, að bæði þeir, sem heyra þessi orð mín. og hinir aðrir, sem ekki eru hér viðstaddir, en þekkja sögu þessa fátæka sjómanns af Austurlandi, sem réðst í að fara út í heim efnalaus til þess að vinna að því að fullnuma sig í tónlagasmíði, styðji að því, að hann þurfi þó ekki að sálast úr hungri, liggur mér við að segja, meðan hann er að koma áleiðis þeim verkum, sem hann hefir með höndum.

Síðasta brtt., sem ég vildi minnast á, er á sama þskj., en hafði misritazt nokkuð, og er því prentuð upp á öðru þskj. Hún er við 22. gr. og fer fram á, að ríkið ábyrgist 40 þús. kr. lán fyrir vestmannaeyjakaupstað, sem ætlunin er að verja til þess að bærinn geti eignazt hús fyrir gagnfræðaskólann. Það hefir verið haldið uppi gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum í nokkur ár, og eins og menn geta nærri, er þar nóg af ungu fólki, sem þarf að ganga í skóla, til þess að fylla eitt skólahús. Skólinn naut í fyrstu heldur lítilla vinsælda, en hann hefir þroskazt og eflzt að vinsældum eftir því sem honum hafa aukizt starfskraftar, og er óhætt að fullyrða, að húsnæðisleysi er farið að há honum mjög. Fyrst var hann hafður í barnaskólahúsinu, en sökum þrengsla þar neyddist bæjarstj. til að byggja honum út og leigja handa honum húsnæði annarsstaðar, en nú er varla hægt að koma honum í viðunanlegt horf, nema hann fái nýtt húsnæði. Það hefir komið til mála, að bærinn eignaðist stórt og allveglegt hús, sem mun losna innan skamms, og er meiningin með þessari till., að Alþingi hjálpi bænum til að koma skólanum á þann hátt í sæmileg húsakynni, svo hann geti orðið að því gagni, sem hann þarf að vera, og til þess vænti ég liðsinnis hv. þm.