20.12.1935
Sameinað þing: 33. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (330)
1. mál, fjárlög 1936
Eiríkur Einarsson:
Þótt maður vildi nú lítils háttar skýra till. sínar hér, er það e. t. v. ekki til mikils, því ég sé, að það er orðið fámennt í salnum, svo að eftir sitja á þingbekkjunum aðeins þeir allra þaulsætnustu.
Á þskj. 890 á ég skylt við fjórar till., og vil ég minnast á þær í þeirri röð, sem þær eru þar skráðar. Fyrst er þá að nefna brtt. II., sem er um nýja símalínu frá Ásum í Gnúpverjahreppi að Ásólfsstöðum. Sú lína, sem er 10 —12 km. löng, er áætluð að kosti 5500 kr. Það mun vera öllum hv. þm. kunnugt, að hér er um að ræða leiðina hið efra um Gnúpverjahrepp, sem er töluvert langsótt þar upp til fjallanna, en þýðingarmikið fyrir ferðafólk að sumrinu að vita þar af síma að Ásólfsstöðum, með því að þar er fjölsótt gistihús, sem margir leita til um helgar. Veldur þá oft trafala, að símalaust er, þegar fólk vill spyrjast fyrir um, hvort það geti fengið gistingu; er það jafnbagalegt fyrir þann, sem rekur gistihúsið, eins og fólkið, sem þangað vill leita. Þó ekki væru aðrar ástæður fyrir hendi, ætti þetta að nægja til þess, að þessi lína yrði lögð á næsta sumri, eins mikið og gert er til þess af Alþingi að hjálpa fólki til að komast á líklegustu staðina til að skemmta sér og njóta hvíldar að sumrinu. Nú eftir að Geysir var endurvakinn ætlar t. d. þing og stjórn að leggja fé til þess að gera góðan veg þangað upp eftir. Þykir mér mjög vænt um það, en það, sem hér er um að ræða, vil ég segja, að sé nokkuð hliðstætt því. Þarna í Þjórsárdalnum er líka margt merkilegt og yndislegt að sjá fyrir sumargesti, er þangað leita. Auk þessa er sveitinni mjög mikil nauðsyn að fá þennan síma, því að erfitt er til samgangna, en mikil þörf á öllu því, er tengir hin strjálu heimili til samneytis. Því hefir nú verið lofað frá ári til árs að framkvæma þessa símalagningu. Sé ég því ekki ástæðu til að ætla annað en að nú verði þessu loforði fullnægt og till. samþ.
Þá er önnur brtt., sem ég á á sama þskj., Xl. brtt. Við 2. umr. fjárl. fór ég fram á það, að tillagið til Gnúpverjahreppsvegar yrði hækkað úr 5000 kr. upp í 6500 kr., en sú till. fékk ekki náð fyrir Alþingi. Nú læt ég mér nægja að fara fram á 1200 kr. hækkun, að tillagið hækki upp í 6200 kr. Virðist það ekki ósanngjörn krafa, með tilliti til þess, að fjárveiting til Hrunamannahreppsvegur hefir verið hækkuð úr 5000 upp í 8000 kr. eftir till. fjvn., sem var í alla staði sanngjarnt. En þangað náði réttlætið, og ekki lengra. Hefi ég áður minnzt á svipaða aðstöðu þessara nágrannasveita. Fjvn. bar að minnast beggja þessara sveita og hækka tillagið til Gnúpverja, þó að ekki væri jafnmikið. Ég geri því ráð fyrir, að réttlætistilfinningin knýi menn til að samþ. þessa lækkuðu till. mína.
Þá er 3. brtt. mín, sú XIX á sama þskj., þar sem farið er fram á 5000 kr. til lendingarbóta á Stokkseyri. Stokkseyringar báðu reyndar um 6000 kr., en ég hefi klippt þarna 1000 kr. af, til þess að biðja áreiðanlega ekki um of mikið. Sá aðili, sem stendur að umbótum á innsiglingunni þar á staðnum og þessari beiðni, er fiskifélagsdeildin á Stokkseyri, og þá fyrst og fremst Jón Sturlaugsson hafnsögumaður. Ég hefi það eftir vitamálastjóra, að nóg sé að heyra nafn Jóns Sturlaugssonar í sambandi við þessa beiðni til að sannfærast um, að um nauðsyn sé að ræða og kröfunni í hóf stillt. Þó hefir hv. n. ekki tekið beiðnina til greina. Þarna er erfið innsigling, og hafa margir verið hætt komnir þar á sundinu, en frá þessum stað er sjóróður sóttur af Stokkseyringum, öðrum Árnesingum og fleirum. Alþingi hefir áður veitt fé til þessara aðgerða, og er það þakkarvert. Hefir það verið vel hagnýtt, og hefir verið staðið við allar skuldbindingar um framlög, sem koma skyldu á móti. Efast ég ekki um, að fiskifélagsdeildin þar á staðnum myndi að þessu sinni standa eins vel við allt eins og áður og fullnægja settum skilyrðum. Þarna þarf að brjóta grjót í brimgarðinum og hreinsa lausamöl á bátaleiðinni innan við sundin, og er það talsvert verk. vænti ég þess, að hv. þm. sjái, hver nauðsyn er að hjálpa sjómönnum Stokkseyrar í þessu nauðsynjamáli þeirra. Til þess að hin aukna útgerð á Stokkseyri geti notið sín, er frumskilyrðið, að sú aukning sé tryggð með því að bæta brimlendinguna og innsiglinguna betur en orðið er, þótt mikið hafi verið lagfært. Mér þykir gleðilegt, að hv. fjvn. heyrði bænina um hjálp til að fullgera bryggjuna þarna á staðnum, en því meir undrast ég, fyrst hún varð við þeirri beiðni, að hún skuli hafa daufheyrzt við þessari. Vona ég því, að hún sýni þann drengskap að ljá einnig þessari beiðni lið og tryggi henni framgang.
Þá er 4. till. á sama þskj., sem ég á skylt við, sem sé sú XXV. Ég flutti þessa till. við 2. umr. fjárl. ásamt báðum hv. þm. Rang. Ég skal ekki endurtaka það, sem ég sagði þá um nauðsyn þessara samgöngubóta. Aðaluppástunga okkar er sú, að af atvinnubótafé sé varið 150 þús. kr. til Hellisheiðarvegar. Í sambandi við benzínskattinn nýja hefir komið fram till. um að leggja 70 þús. kr. af honum til þess vegar á árinu 1936, eða jafnvel meira, ef mikið fé kemur inn á þennan hátt. En ég vil benda á það, að til þess að framlagið fyrir árið 1936 sjái staði, veitir ekki af 150 þús. kr. Hinn nýi vegur á að beygja frá þjóðveginum út Ölfusið til Vindheima. Það er um 14 km. Er þetta óumdeild leið. Nýjar uppástungur um breytt vegarstæði koma ekki til greina fyrr en komið er úr Ölfusbyggð. Þessi 14 km. vegur út Ölfusið mun kosta nál. 150 þús. kr. Sést á þessu, að till. okkar, 150 þús. kr. framlag, er í hóf stillt, ef á annað borð er miðað við, að það, sem unnið er, sjái fljótt nokkra staði. Sé nú spurt, hvort þetta sé gerlegt, þá verður að svara því bæði játandi og neitandi. Ef miðað er við hið erfiða fjárhagsástand, sem nú er, gæti svarið orðið neitandi. En ef litið er á sérstaka möguleika til þessara framkvæmda, verður að svara því játandi, og kemur þá að því, að verja beri fyrirhuguðu atvinnubótafé til þessara hluta. Ég hefi tekið það fram áður og endurtek það, af því að mér er þetta sannfæringarmál, að við fé, sem ríkið leggur fram til atvinnubóta, er ekki neitt að segja, ef það er í réttri merkingu atvinnubótafé, sem fullnægir þörfum fátæklinganna, og ef því er varið með þvílíkri forsjálni af þingi og stj., að fyrir það séu unnin raunverulega nytsöm verk. Ef þessa er gætt, hætta slíkar fjárveitingar að valda hneykslum og yfirfærast í það form, að tryggt sé, að þeir sitji fyrir þessu fé til vinnulauna, sem helzt þurfa þess, og að ríkið láti framkvæma þau verk, sem nauðsynleg eru. Með tilliti til þess, að fjárveitingar til atvinnubóta færist í þetta form, þá tek ég það fram, enda þótt mikil nauðsyn sé á að spara, að ég get ekki greitt þeirri till. atkv. mitt að færa atvinnubótafé úr 500 þús. niður í 300 þús. Ef byrjað verður á þessum framkvæmdum á Hellisheiði fyrir atvinnubótafé, hlýtur það að vera hinu háa Alþingi til léttis við samþykkt svo hárra framlaga, að svo nauðsynlegu verki á að hrinda á stað með þeim. Ég greiði atkv. á móti benzínskattinum, þrátt fyrir þá gylltu flugu, að verja eigi 70 þús. kr. af honum til vegabóta á Hellisheiði. Það hefir mikið verið rætt um skatta- og tollaþunga þann, sem nú hvílir á almenningi, en af þeim held ég að benzínskatturinn yrði einna þungbærastur. Ýmsar aðrar vörur er oft hægt að neita sér um, jafnvel kaffi og sykur, en benzínið er nauðsyn, sem ekki verður komizt hjá, sízt af þeim, sem erfiðast eiga. Þó að þeir, sem aka í bílum sér til skemmtunar, geti látið af þeim ferðum, þá geta langferðamenn, er ferðast vegna nauðsynja, og bændur við flutning vöru sinnar eftir löngum akvegum ekki neitað sér um bílanotkunina. Þetta hefir tekið af skarið um það, að með benzínskattinum get ég ekki verið. En hinsvegar er atvinnubótaféð veitt, með því á Hellisheiðarvegurinn að byggjast, en ekki af benzínskatti, er ekki má ná samþykki Alþingis. Þeirri viðbáru, að Reykjavík, sem sjálf leggur fé til atvinnubóta, eigi að hafa hönd í bagga um það, hvernig atvinnubótafénu sé varið, vil ég að lokum svara því, að ef forráðamenn Reykjavíkur vildu gera það upp með sér, hverju henni ríður mest á af verklegum framkvæmdum, þá myndu þeir komast að þeirri niðurstöðu, að ekki væri annað þýðingarmeira en þessi vegagerð. Allir vita, hvað samgöngurnar austur gilda fyrir Reykjavík. Reykjavík er nú búin að tryggja öryggi samgangnanna á sjó með góðri höfn, en ennþá vantar hana þetta sama öryggi með tilliti til samgangna á landi. Einn ef framsýnustu Reykvíkingum, Jón heitinn Þorláksson, sá þetta og játaði þörf Reykjavíkur fyrir þessar vegabætur.
Að lokum vil ég snúa mér til hæstv. stj. og benda á, að þar sem ríkið á allmikil lönd í Árnessýslu, sem hagnýta á til nýbýlastofnunar, þá átti henni að vera fullt áhugaefni að fá þessar vegabætur, því að hvað verður um aumingja fátæklingana, sem þessi nýbýli stofna, ef þeim eru ekki sköpuð skilyrði fyrir sæmilegum samgöngum? Til þess að þessar nýbýlastofnanir verði ekki tóm vitleysa og hreinasta hermdargjöf, verður að tryggja þessar samgöngur þegar í byrjun, en þá ættu líka hinir vantrúuðu að geta séð og sannfærzt um, að hér getur verið um nytsemismál að ræða.