30.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2310 í B-deild Alþingistíðinda. (3301)
154. mál, verslun með kartöflur og aðra garðávexti
Frsm. minni hl. (Guðbrandur Ísberg):
Mér er næst skapi að mæla með till. hv. þm. Hafnf. út frá því sjónarmiði, að því vitlausara sem frv. verður gert, því betra. Hann vill skylda framleiðendur til þess að selja einkasölunni og engum öðrum, vegna þess að hætta sé á því, að verzlanir undirbjóði einkasöluna. Ég er nú dálítið hissa á því, að þessi brtt. skuli koma frá sósíalista, því að ég hélt, að það væri ekki á þeirra stefnuskrá að stofna til verðhækkunar á nauðsynjavörum. Annars er alveg auðsætt, hvert stefnt er með þessu frv. Fyrst eru verðlaunin miðuð við 10 tn., síðan 5, og nú kemur hv. þm. Borgf. með brtt. um að miða þau við 3 tn. Sjálfsagt verða þau að lokum veitt fyrir 1/2 tn. Þetta sýnir hvert stefnir um kröfur framleiðenda.
Hvernig á nú einkasalan að fara að ákveða verðið, þegar sumstaðar er hægt að framleiða kartöflur fyrir 9 kr. á tunnu, en annarsstaðar kostar það 18 kr. og þaðan af meira. Allt virðist stefna að því, að kartöflur stórhækki í verði, án þess að trygging sé fyrir því, að heilbrigð framleiðsla aukist nokkuð.