30.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2322 í B-deild Alþingistíðinda. (3306)
154. mál, verslun með kartöflur og aðra garðávexti
Jón Pálmason:
Ég geri ráð fyrir, að hv. frsm. landbn. tali eitthvað áður en þessari umr. lýkur. En ég vildi segja nokkur orð áður.
Eins og menn sennilega muna, þá bar ég fram við 2. umr. þessa máls víðtækar brtt. við þetta frv., en það fór svo um þessar till., að stjórnarliðið hér í hv. d. var samtaka um að fella þær. Þar af leiðandi er þetta frv. náttúrlega í því formi, sem ég tel alveg óviðunandi, verði það að lögum. — Síðasti ræðumaður sýndi fram á ýmsa annmarka á frv., en vék ekki að því, af hverju mótsagnir þessar stöfuðu, en það er einmitt af því, að grautað er þar saman einkasöluheimild og verzlun með innlenda framleiðslu. Það eru tveir ólíkir hlutir, sem ekki eru nægilega skilgreindir út af fyrir sig, og þessvegna eru mótsagnirnar í frv. Með því að nema burt heimildina um einkasölu á aðfluttum kartöflum, en láta þessa heimild ná til viðskipta með innlenda framleiðslu, þá myndu þessar mótsagnir hafa horfið að mestu leyti. Ég tel ekki náð tilganginum, sem til var ætlazt, með þeim ákvæðum, sem hér eru sett. Því tel ég bezt, að frv. verði geymt og samþykkt dagskrá hv. þm. Ak., eða frv. látið daga uppi. Ég tel nauðsynlegt að láta athuga til næsta þings, hvaða aðferð bændur vilja hafa til að láta koma málinu í æskilegt horf. En það er þá fyrst, þegar framleitt er í landinu nægilegt af garðjurtum til að fullnægja markaðinum innanlands og þegar aðgangur er svo greiður fyrir framleiðendur vegna góðra samgangna, að ekki sé of kostnaðarsamt að nota markaðinn.
Nú er tækifæri til að bera þetta mál undir Búnaðarfélag Íslands milli þinga. Búnaðarfélagið hefir skrifað öllum búnaðarsamböndum landsins um þetta mál. Væri því heppilegra að geyma frv. til næsta þings, því að það er enginn skaði fyrir málið. Nú hefir verið ákveðið að setja á fjárlög ákveðna upphæð til að greiða fyrir framleiðslu á kartöflum. Það raskaði ekki neinu að láta liðinn standa, og mætti eins geyma að samþykkja þessa löggjöf til þingsins síðar í vetur. Þá verður hægt að vera búið að fá till. víða af landinu um það, hvaða aðferðir bezt nái þeim tilgangi, sem til er ætlazt. Með öðrum orðum, með þessum hætti er hægt að ná því, sem ég tel bezt í allri löggjöf, að hlutaðeigandi menn, sem eiga að njóta hagsmuna af löggjöfinni, geri till. um öll atriði hennar. En þetta hefir oft vantað í löggjöf okkar. Henni hefir verið slengt á af Alþingi og ríkisstjórninni, án þess að knýjandi alda frá almenningi í landinu hafi borið hana fram. — Ég skal ekki fara um þetta fleiri orðum, því að þess er ekki þörf, en ég vildi láta þetta koma fram; úr því ekki gat orðið samkomulag um að samþykkja þá brtt., sem ég bar fram við 2. umr., þá er bezt, að þetta mál sé látið bíða til næsta þings og rannsakað, hver sé vilji þeirra, sem mest eiga undir samþykkt þess úti um sveitir landsins.