21.12.1935
Sameinað þing: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (335)
1. mál, fjárlög 1936
Forseti (JBald):
Það er rétt hjá hv. þm. Borgf., að frsm. fjvn. ættu jafnan að vera við, þegar fjárl. eru rædd, og skal ég því gera ráðstafanir til að ná í frsm. Að ég hefi ekki séð mér annað fært en að láta hefja umr. um fjárl. nú þegar, enda þótt fáir séu mættir, er sakir þess, hve stuttur fundartími er ætlaður til umr. um fjárlfrv. að þessu sinni.