19.12.1935
Efri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (3359)
173. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:
Hæstv. atvmrh. hefir nú gert fyllri grein fyrir tilefni 1. brtt. á þskj. 899 en ég gerði, og get ég því sparað mér að fara frekar út í að ræða hana, en til af ummælum, sem hér hafa fallið viðvíkjandi skipun n., vil ég minna á, að það er nauðsynlegt, að n. hafi heimili í Reykjavík. Það getur þurft vikulega að bera undir hana ýms mál, er hana varða, og er það erfitt, ef nm. eiga sæti víðsvegar úti um land. Ég hefi fallizt á, að fjölmennasta bílstjórafélagið í landinu setti mann í n., en það er vandi að finna fulltrúa fyrir annan aðilja, þá mörgu menn víðsvegar um allt land, sem nota bílana, en mér finnst Alþýðusambandið ná því bezt að geta verið fulltrúi þeirra. Að Alþýðusambandið sé pólitískt félag má náttúrlega segja, en um það má mjög deila. Það eru náttúrlega öll félög, sem hafa menn með pólitískar skoðanir innan sinna vébanda, og Alþýðusambandið samanstendur af félögum, sem hafa menn úr öllum pólitískum flokkum innan sinna vébanda, svo pólitíkin ætti ekki að þurfa að vera þrándur í götu fyrir því, að Alþýðusambandið hefði fulltrúa í n. Hitt var nauðsynlegt, að fjölga í n., til þess að hægt væri að koma öllum aðiljum fyrir í n. Það er að vísu nýmæli, að atvmrh. skipar einn mann í n.
Mér skildist hv. 1. þm. Reykv. vera á móti því að taka 6 manna bifreiðar undir skipulagið. Var það rétt skilið? (MJ: Já). En það eru einmitt þessir bílar, sem draga um of frá „rútu“bílunum (MJ: Af hverju?). Af því þeir selja óýrara en „rútu“-bílarnir, en mér finnst þessir bílar alveg eins geta komið undir skipulagið og „rútu“-bílarnir.