21.12.1935
Efri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (3368)
173. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:
Við 2. umr. þessa máls var frestað að greiða atkv. um brtt. meiri hl. samgmn., og skildist mér, að það væri meðfram af þeirri ástæðu, að hugsanlegt væri, að einhverjar breyt. yrðu á þeim gerðar. En mér er ekki kunnugt um, að til standi að gera neinar slíkar till., enda tel ég slíks ekki þörf.
Fyrri brtt. hv. þm. N.-Ísf. miðar að því að rýra gildi okkar brtt. viðvíkjandi fólksflutningum til Þingvalla. Hv. þm. ætlast sem sé til, að stórar bifreiðar megi ekki hafa fastar áætlunarferðir heildarleiðina til Þingvalla, nema þær, sem hafa sérleyfi. Nú er það vitanlegt, að það er sérleyfi á þessari leið, að því, er snertir stórar bifreiðar. Og eftir till. hv. þm. N.-Ísf. væri algerlega útilokað, að aðrar stærri bifreiðar, hversu rík sem þörfin væri á, mættu flytja fólk á þessari leið. Á sunnudögum þarf mikinn bílakost, til þess að fullnægja eftirspurn eftir flutningi á fólki þessa leið. Er því hart að meina bifreiðarstjórum yfirleitt að koma þessu fólki á ákvörðunarstað, þegar svo ber undir. En meginástæðan til þess, að brtt. samgmn. kom fram. er, að í frv., sem fyrir liggur, er ætlazt til, að bifreiðar, sem geta flutt 6 farþega, eigi að komast undir skipulagið. Hér í bænum og sennilega í Hafnarfirði líka (og má einnig vel vera, að hið sama megi segja um Akureyri) er stór hópur bifreiða, einmitt af þessari stærð, sem hingað til hafa getað verið nokkurnveginn frjálsar ferða sinna á þessum leiðum og hafa getað skapað sér nokkra atvinnu með flutningum þar, þegar eftirspurn hefir verið eftir slíkum flutningum. Nú er ætlazt til, að þessum bifreiðum verði hannað að halda uppi áætlunarferðum. En þá er sá ljóður á, að sérleyfin eru komin í hendur ákveðinna manna og nokkur hluti þessara bifreila útilokast þar með frá því að mega aka á þessum leiðum, nema undir alveg sérstökum kringumstæðum. Þeir menn, sem að slíkum bifreiðum standa, halda því fram, að þeir séu með ákvæðum frv. sviptir atvinnumöguleikum og fái ekkert í staðinn. Því að það er ekki hægt að skella þeim mönnum, sem utan við sérleyfin standa, inn í sérleyfi, því að þau hafa verið ákveðin til 3 ára. Til þess að láta til þessara bílstjóra koma fríðindi 5 móti þeim atvinnumissi, sem þeir verða fyrir eftir ákvæðum frv., var fundin sú leið að gefa frjálsa fólksflutninga með bifreiðum, sem okkar till. ræðir um, og þar með, að þær mættu halda uppi ferðum til Þingvalla, þegar fólksstraumurinn þangað er mestur. Vitanlega er á móti þessu unnið af þeim mönnum, sem þarna hafa hagsmuna að gæta. Vitanlega vill sá sérleyfishafi, sem hefir Þingvallabrautina, halda sem fastast í þann rétt, sem hann þar hefir. Þessi leið er líklega albezta leiðin í þessu sambandi af öllum leiðum á landinu, a. m. k. á vissum tíma árs. Mér skilst hv. þm. N.-Ísf. vera hér talsmaður þess manns, sem hér á þessara hagsmuna að gæta. — Þá breiddi hv. þm. N.-Ísf. sig mjög út yfir 2. brtt. okkar, um að stækka tillögun., og taldi þá brtt. óþarfa og að nóg væri að hafa þrjá menn í þessari n. Í gildandi l. er gert ráð fyrir því og það hefir verið framkvæmt svo, að sérleyfishafar einir eigi að gera till. til póst- og símamálastjóra um flutninga samkvæmt þeim l. En það hefir komið í ljós, að smærri bifreiðaeigendur og allmargir bifreiðarstjórar álíta, að þetta fyrirkomulag komi þeim illa að ýmsu leyti. Og það er ekki hægt að ganga fram hjá rétti þeirra með nokkurri sanngirni, sem hér hafa hagsmuna að gæta, en eru þó ekki sérleyfishafar. Og vegna hagsmuna þeirra er þessi brtt. komin fram. — Það virtist vera hv. þm. N.-Ísf. mestur þyrnir í augum, að Alþýðusamband Íslands eigi að hafa fulltrúa í tillögun. En ég vil á engan hátt hvika frá þeirri till. meiri hl. samgmn., að það tilnefni einn mann í n. með tilliti til hagsmuna hinna mörgu bifreiðastjóra og eigenda vörubifreiða og alls þess fjölda manna, sem skipulagið snertir beint og óbeint, sem er verkalýðurinn í landinu.