21.12.1935
Efri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (3369)

173. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Bernharð Stefánsson:

Ég á hér litla brtt. við frv., á þskj. 918, en efni hennar er svo einfalt, að ég held hún þurfi engra skýringa við. Hún er við brtt. á þskj. 899, og er þess efnis, að ef myndað verður landssamband bifreiðastjóra, þá skuli það hafa rétt til þess að nefna mann í þá n., sem gert er ráð fyrir í frv, í stað þess manns, sem þar er ætlazt til, að bifreiðarstjórafél. „Hreyfill“ skipi í n. Mér finnst það miklu réttara, ef það á að skoða þennan nm. sem fulltrúa bifreiðastjórastéttarinnar, og ef það þykir á annað borð rétt, að blanda slíkum stéttarfélagsskap inn í þessa n., að allir bifreiðarstjórar í landinu hafi aðstöðu til þess að tilnefna manninn.