21.02.1935
Efri deild: 9. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (3377)

6. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Frv. mjög svipað þessu að efni til hefir legið fyrir nokkrum undanfarandi þingum, en ekki náð fullnaðarafgreiðslu. Í fyrra var það lagt fram af stj. í Nd. og afgr. þaðan, en svo seint, að ekki vannst tími til að afgr. það einnig í þessari hv. d. Frv. er nú lagt fram eins og Nd. gekk frá því í seinasta þingi, þegar hún afgr. það hingað til Ed. Vil ég gera að till. minni, að frv. verði vísað til menntmn. að lokinni þessari umr.