22.11.1935
Efri deild: 76. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (3383)

6. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson):

Það er e. t. v. eðlilegt, að þetta mál sé tekið á dagskrá, en við höfum haft svo mikið að gera í fjvn., að við höfum ekki getað haldið nægilega fundi í öðrum n. — Það hafa komið fram í þessu máli nauðsynlegar og gagngerðar brtt., sem n. hefir ekki tekið til meðferðar, þannig að ómögulegt er að taka málið fyrir nú, og ekki fyrr en n. hefir gert nauðsynlegan undirbúning, sem þarf viðvíkjandi þessum brtt. Neyðist ég því til að biðja hæstv. forseta að taka málið út af dagskrá.