21.12.1935
Sameinað þing: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

1. mál, fjárlög 1936

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Í brtt. III. á þskj. 929 er gert er ráð fyrir heimild handa ríkisstj. til þess að verja 25 þús. kr. atvinnubótafé til atvinnubóta fyrir unga menn og konur, gegn hlutfallslegu framlagi frá bæjar- og sveitarfélögum. Í sambandi við þessa till. skal ég geta þess, að það hefir komið greinilega í ljós, að óhjákvæmilegt hefir verið að miða úthlutun atvinnubótavinnu við heimilisástæður manna. Hinsvegar hefir mörgum verið það áhyggjuefni — mjög að vonum —, hversu mikill fjöldi af ungum mönnum fær hvergi að komast í vinnu. Á síðastl. ári var tilraun gerð í þessu efni og varið af atvinnubótafé um 10 þús. kr. fyrir unga menn, og ég teldi mjög vel fallið, ef hægt væri að halda því áfram. — Einnig er það svo í kaupstöðum, að konur, sem hafa fyrir heimilum að sjá, bornum sínum og öðru skylduliði, hafa um langan tíma árs litla sem enga atvinnu. En með því að koma upp t. d. saumastofum, þar sem saumaðar væru algengar flíkur, sem ekki þyrfti sérstaka kunnáttu við, mætti sjá þessum konum fyrir nokkurri atvinnu.

Þá er á þskj. 884 till. frá minni hl. fjvn; þess efnis, að framlagið til atvinnubóta sé lækkað úr 500 þús. niður í 300 þús. kr. Um þessa till. þarf ég ekki að fara mörgum orðum. Það kemur öllum saman um, að atvinnuástandið er mjög ískyggilegt og litlar líkur eru til, að það fari batnandi á næsta ári. mér er um það manna kunnast, hversu erfitt hefir verið að láta þetta framlag, sem í fjárl. er, hrökkva til, og ég sé því fram á það, að þessi upphæð, sem þarna er áætluð, er með öllu ófullnægjandi. Mér er kunnugt um, að mörgum bæjarfélögum hefir beinlínis verið hjálpað með atvinnubótaframlagi til þess að komast úr vandræðum með sína þurfamenn. Verði því af atvinnubótaframlaginu skorið eins og þarna er lagt til, þá er það víst, að það hlýtur að leiða til mikilla óþæginda fyrir bæjarfélögin, auk þess sem það eykur atvinnuleysi og vandræði fólksins. Um síðari hluta till., að bæjar- og sveitarstjórnir skuli verja 1/4 af atvinnubótafé því, sem þær hafa til umráða, til þess að kaupa innlendar matarafurðir til greiðslu upp í verkalaun við atvinnubótavinnu, þarf ég ekki heldur margt að segja. Ég held, að þetta mál sé þannig vaxið, að það þurfi að athugast betur, og séu slíkar ráðstafanir gerðar, þá þurfa þær að vera sem almennastar, en ekki aðeins einn hópur manna tekinn út úr, atvinnuleysingjarnir, og sagt, að þeir skuli fá sitt kaupgjald greitt á þennan hátt. Ég álít, að það megi taka það til athugunar, hvort ríkið geti að einhverju leyti bundið greiðslur til starfsmanna sinna við það, að þeir noti íslenzkar afurðir fyrir vissan hluta af kaupi sínu, en að ætla sér að setja þetta sem skilyrði fyrir atvinnubótavinnu, hvernig svo sem ástatt er, það álít ég, að komi ekki til nokkurra mála. Ég vil því eindregið skora á hv. þm. að greiða atkv. gegn þessari till. í heild. af þeim ástæðum, sem ég nú hefi greint.

Þá er hér 25. till. á þskj. 890, um að 150 þús. kr. skuli varið af atvinnubótafé til vegagerðar. Nú er það svo, eins og menn vita, að atvinnubótavinna er yfirleitt unnin á tímanum frá því í janúar og fram í apríl og frá því seint í september og fram undir áramót. Síðari hluta vetrar, frá því í janúar og fram á vor, er ekki hægt að gera ráð fyrir því með neinni skynsemi, að hægt sé að stunda vegagerð til atvinnubóta, a. m. k. þá ekki nema rétt niður við sjó, sem er hæpið þó. Aftur á móti mætti vel stunda vegagerð fyrri hluta vetrar, þegar svo viðrar. Mun það verða tekið til athugunar, og ef fært þykir, mun verða reynt að verja einhverju af atvinnubótafénu í þessu skyni. En að gefa nokkurt loforð um það, hvað miklu skuli varið í þessu skyni, er ekki hægt. Það er undir svo mörgu komið, tíðarfari og öðru slíku. — Hinsvegar vil ég benda á það, að eins og hv. þm. er kunnugt, þá hefir verið tekið upp myndarlegt framlag til þessa vegar, 70 þús., af því fé, sem af benzínskattinum kemur.

Þá er næsta brtt. á sama þskj. um það, að bata sauðfjáreigendum þann halla, sem þeir hafa orðið fyrir vegna takmörkunar á útflutningsleyfum á ull og gærum héðan til Þýzkalands. Af öllum vitlausum till. er þetta sú vitlausasta. Hvernig á að reikna þennan halla út? Með því að bera saman það, sem flutt var héðan til Þýskalands á árinn 1935, og það, sem flutt var þangað árið áður? En þá mundi það sýna sig, að markaður hefir verið miklu meiri nú í ár til þýzkalands heldur en í fyrra, og það verð, sem bændur hafa fengið fyrir sínar afurðir, miklu hærra. Að þessir möguleikar hafa verið fyrir hendi á sölu til Þýzkalands, stafar af því, að stj. hefir beinlínis beint kaupunum þangað og þannig skapað aukna verzlunarmöguleika þar. — Um framlag til kjötverðjöfnunarsjóðs vil ég segja það, að sem betur fer hefir verið greiðara um kjötsöluna nú í ár heldur en síðastl. ár, og að fullnaðarniðurstöður eru enn ekki fengnar. Að þessu hvorutveggja athuguðu sé ég ekki ástæðu til að ákveða þetta framlag, hvað sem upp verður, þegar fullnaðarniðurstöður eru fengnar.