19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (3402)
6. mál, ríkisútgáfa námsbóka
Frsm. minni hl. (Pétur Halldórsson) [óyfirl.]:
Þetta eru þó upplýsingar í lagi. N. var klofin, einn var fjarverandi og einn var andvígur frv., er allt og sumt, sem hv. frsm. meiri hl. segir, og leggur svo til, að umr. um málið verði hætt og það afgr. strax. Þetta getur þó kallazt greinagóð framsaga. Annars þykir mér ekkert undarlegt, þó að hv. frsm. meiri hl. hagi sér svona og vilji komast hjá að fara í kappræður um þetta mál. Hitt skil ég líka vel, að hann vilji fá málið sem fyrst í gegn, til þess að geta farið að maka krókinn á þessu. En það tel ég „billega“ sloppið fyrir hv. þm. að fá ríkisforlag skólabóka í hendur fyrir þá vinnu, sem hann sem form. menntmn. hefir lagt í frv. þetta. En þessir herrar fá nú stundum mikið fyrir lítið. Eins og ég þegar hefi tekið fram, þá var afgreiðsla þessa máls frá n. ekki önnur en sú, að form. hennar kallaði til sín tvo flokksmenn sína, kl. nær 11 sama kvöldið og frv. var vísað til n. Hringdi hann svo til mín í síma, eins og ég sagði áðan, og þá segist hv. þm. hafa rætt málið ýtarlega við mig í símanum. Ég skal ekki segja, hvað samtal okkar stóð lengi yfir, en þó hygg ég, að það hafi í mesta lagi staðið í 3 mínútur. Að hann hafi getað rætt málið ýtarlega við mig þessa stuttu stund, er vitanlega fjarstæða ein. Hitt er rétt, að það kom fljótlega upp, að við áttum ekki samleið um málið. En að kalla þetta samtal okkar ýtarlega viðræðu um málið, er í alla staði rangt skýrt frá. En hvers vegna hv. þm. vill svo ekki ræða málið nú, þar sem kl. er ekki nema rúmlega tvö að degi, fæ ég ekki skilið á annan veg en þann, sem ég tók fram áðan, að hann vill sem fyrst komast á jötuna. Að öðru leyti hefi ég engu við það að bæta, sem ég sagði áðan og t. d. það, að frsm. skýri frá því, hvers vegna þeir fylgi málinu og heimti það afgr. nú þegar, þá óska ég að mega taka til máls aftur.
Það er vitanlega gott að hafa góða trú og geta notað hana í nauðsyn, og má vera, að það dugi flokksmönnum hv. meiri hl. í þessu tilfelli, en þó á ég bágt með að trúa því, að það sé ekki ofraun að halda því fram, að þeir séu allir ánægðir með frv. og greiði því atkv. á ábyrgð hv. form. menntmn.