19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (3410)

6. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Sigurður Kristjánsson:

Ég verð nú í upphafi máls míns að láta þess getið, að mér finnst það ákaflega óviðeigandi að sitja hér á næturfundi fram undir morgun til þess að ræða um mál, sem ég sé ekki, að nein þjóðarnauðsyn krefji, að verði knúið áfram á svona - já, næstum að segja þjösnalegan hátt.

Ég þykist hafa nokkra reynslu í þeim hlutum, sem frv. fjallar um, og hafði hugsað mér að veita nokkrar upplýsingar til þess að vita, hvort menn gætu ekki fallizt á ýmsar aths., sem ég ætlaði mér að gera. En þess er náttúrlega enginn kostur að fá neinar aths. teknar til greina, ef ljúka á af umr. um þetta mál nú um miðja nótt, og þegar svo fáir af hv. þm. eru viðstaddir, að ekki einu sinni er hægt að fá afbrigði til þess að ræða brtt. hv. 3. þm. Reykv. Vitanlega hefir hæstv. forseti vald til að haga þessu eins og honum sýnist, og er ég að sjálfsögðu skyldur til að hlíta hans fyrirmælum um þetta.

Það, sem sérstaklega vakti eftirtekt mína, þegar mál þetta kom á dagskrá nú hvað eftir annað, var, að mál þetta var búið að vera hér áður fyrir þinginu og kemur nú fram í mjög breyttri mynd. Ég benti á, þegar málið var hér áður til umr., að eftir minni reynslu væri það atriði, sem ekki er á minnzt í frv., sem þyrfti umbóta við, en miklu síður þyrfti umbóta við í þeim atriðum, sem nú eru höfuðatriði frv.

Ég hefi í mörg ár fengizt við kennslu. Og það varð þá að hreinasta vandræðamáli að ná í kennslubækur, þegar stríðið skall á og árin eftir það. Ýmissa ráða var leitað. Það, sem mér virtist erfiðast yfir að komast, var að koma í veg fyrir glundroða. Ég set því ekki út í það, þó að reynt sé að bæta úr þeim glundroða, sem nú er á því, hvaða skólabækur kennarar nota.

En það, sem jafnhliða varð ákaflega mikið áberandi, var það, hve skólabækurnar voru óviðunandi illa saman teknar. Sýndi það einmitt, að nauðsyn er á að líta eftir þessu. Ég hefði þess vegna haldið, að það fyrsta, sem gera ætti af því opinbera, væri að gera ráðstafanir til þess, að vandað verði til samningar skólabóka, svo og að höft væri á því betri regla, hvaða skólabækur eru notaðar. Nú er það vitað, að til eru fyrirmæli um að löggilda bækur til kennslu. En ég verð að segja, að mín reynsla hefir orðið sú, að þau fyrirmæli, um að kennslubækur skuli vera löggiltar, hefi ég ekki orðið var við, að hafi haft svo sem nokkra þýðingu. Þrátt fyrir þessi fyrirmæli hefir það verið sama ósamstæða ruslið, kennslubækurnar, sem fólkið hefir átt kost á. Einn kennari valdi þessa bókina og annar hina um sömu námsgrein. Þegar nýr kennari kom til sögu, þá varð bara að kasta þeim bókum, sem næsti kennari á undan notaði við kennsluna. Heimilin urðu þannig að kaupa nýjar og nýjar bækur eftir duttlungum kennaranna. Margur ungur kennari kann ekki að velja kennslubækur, þekkir kannske ekki bækurnar, sem hann velur, en fer kannske eftir trú á þessum eða hinum höfundinum og ýmsu og ýmsu.

Ég vil fúslega viðurkenna, að skólabækur eru að sjálfsögðu einn af kostnaðarliðum við skólahaldið, og það er í sjálfu sér engin fjarstæða, þó að sá kostnaður yrði lagður á ríkið á svipaðan hátt og kennslan sjálf, húsnæði, ljós og hiti o. s. frv., ef það þætti fært, að það opinbera tæki á sig allan kostnaðinn. En sá galli er á því, að ríkið tæki allan kostnaðinn á sig, að það er alls ekki á valdi ríkisins, hversu miklu hér er eytt eða hversu vel farið er með fé þess opinbera. Það verður meira eftir geðþótta nemendanna og aðstandenda þeirra, en það getur ekki farið eftir geðþótta þeirra um húsnæði, kennslukrafta, upphitun eða annað því líkt. Það fer allt eftir ákvörðun stjórnenda þessara stofnana.

Ég vildi taka þetta fram vegna þess, að ég vil ekki, að mín afstaða verði misskilin. Ég álít, að hér sé umbótaþörf, en ég tel, að til þessa máls þurfi að vanda miklu meira en gert er með þessu frv., því að ég get tekið undir það, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að frágangur frv. er með öllu óforsvaranlegur. Ég minnist þess ekki að hafa séð annað eins plagg og þetta komast eins langt í gegnum þingið. Þetta er til stórrar vanvirðu. Það var ekki lítið, sem hv. 3. þm. Reykv. taldi upp af formgöllum, sem sýnast vera komnir af göslarahætti, þekkingarskorti og þokukenndri hugsun. En það er margt fleira í þessu frv., málvillur og hreint skvaldur, sem hann minntist ekki á, svo að fyrir það eitt væri frv. óforsvaranlegt. Og fyrst frv. er svona frá formsins hlið, þá geta hv. þdm. gert sér hugmynd um, hvernig efnishliðin muni vera.

Mér er ekki ljóst, hvers vegna formælendur þessa máls leggja svo mikið kapp á að knýja það from á þessu þingi. Það hefir verið látið skína í, að þetta yrði hagsmunastarf fyrir einhverja menn. Það er eftir því búið að skipta hirtinum, áður en hann er veiddur. Þetta er náttúrlega ekki frambærileg ástæða. Það er ekki frambærileg ástæða fyrir breyt., sem eru mikilsverðar fyrir fræðsluna í landinu, að það liggi á að koma einstökum mönnum á einhvern hagsmunaspena, og ég ætla ekki að ræða þetta mál út frá því, að svo sé.

Ég vænti þess, að menn muni frá fyrri umr. um þetta mál, að það var þá rætt um nokkrar bækur, sem gefnar hefðu verða út með ríkisstyrk, og má því segja, að ríkið hafi verið við riðið. Ég hafði lesið tvær af slíkum bókum og skýrt frá, hversu gersamlega óhæfar þær væru, sérstaklega önnur, til þess að vera kennslubækur. Eins og ég sagði í upphafi, þá sýnist mér, að það fyrsta, sem þyrfti að taka til athugunar, ef setja ætti nýja löggjöf um ríkisútgáfu skólabóka, væri það, að bækurnar væru sæmilega samdar og hæfar til þess að vera kennslubækur. Hverjir eiga svo að gefa bækurnar út? Í 1. gr. segir, að ríkisstj. eigi að vera útgefandinn. Við höfum fengið svolitla nasasjón af því, hvað stj. getur verið og er nákvæm í þessum hlutum og hve grandvör og vandvirk hún er, þegar um er að ræða bækur, sem hún hefir afskipti af, veitt styrk til og þess vegna að sjálfsögðu kynnt sér, því að ég geri ekki ráð fyrir, að stj. gangist fyrir því, og því síður, að hún geri það upp á sitt eindæmi, að veita styrk til kennslubóka án þess að sjá handritið og eftir hvern það er. En þessar bækur, sem voru til umr. í þetta skipti, sem ég hefi bæði lesið og skrifað um og bent á, hversu óhæfar þær væru sem kennslubækur, þær sýna einmitt, að það er ekki rétt leið, að láta stj. gefa út slíkar bækur og hafa um það einkarétt.

Við skulum bara hugsa okkur þessar tvær bækur, sem mjög voru gerðar að umtalsefni í fyrsta skipti, sem þetta mál var til umr. í þinginu. Báðar áttu sammerkt í því, hversu mjög þær voru pólitískt litaðar, og það hefir hitzt þannig á, að hvorirtveggja höfundanna voru framsóknarmenn. Þeir settu þar langa fyrirlestra um ágæti framsóknarstefnunnar og tilsvarandi hnútur og allt að því níð um þær stefnur, sem hinir flokkarnir í landinu fylgdu. Við skulum setja sem svo, að stj. fylgdi þessari reglu áfram eða léti eftir þessari hvöt, að gefa út nýjar kennslubækur, sem væru meðmæli fyrir hennar stefnu. Við skulum segja, að Framsfl. hefði aðstöðu til að halda hér áfram og gefa út meira af bókum af þessu tægi. Hvað mundu Alþýðuflokksmenn gera, þegar þeir kæmust til valda? Það fyrsta, sem þeir gerðu, væri að brenna allt þetta upplag á báli og fela mönnum að semja kennslubækur í sömu greinum, mönnum, sem þeir treystu til þess að draga rækilega fram málstað Alþfl. Nú gæti svo farið, að Sjálfstfl. kæmist til valda. Ætli hann mundi þá þola, að kennslubækurnar væru einskonar trúboð fyrir sósíalisma hér á landi? Ég býst ekki við því, og þó að ég geri ekki ráð fyrir því, að Sjálfstfl. gerði ráðstafanir til þess að gefa út kennslubækur, sem flyttu - og sízt af hlutdrægni - hans málstað, þá gæti hann með engu móti við það hlítt, að kennslubækurnar yrðu áfram þær gömlu hlutdrægu og pólitískt lituðu, og þá mundi í þriðja sinn verða að gera upptækar þær bækur, sem fyrirliggjandi væru í þessum námsgreinum. Ég bendi á þetta til þess að mönnum verði skiljanlegt, að þótt ríkisstj. sé útgefandi, þá dugir ekki, að hún láti það verða rétt af handahófi, hverjir semji þessar bækur. Það þarf fyrirfram að tryggja hvorttveggja, að bækurnar séu samdar af mönnum, sem hafa til þess menntun og reynslu og gera þær svo úr garði, að þar sé eingöngu valið frá lærdómslegu sjónarmiði, og svo að tryggja, að þær séu ekki pólitískt litaðar eins og hefir sýnt sig, að þær bækur hafa viljað verða, sem stj. hefir sérstaklega verið við riðin.

Það, sem ég álít, að fyrst og fremst þurfi að leiðrétta, er það, að hægt sé að nota sömu bækur í öllum skólum, eða að á hverju lærdómsstigi nemenda um land allt verði notaðar sömu bækur og þar geti tekið við hver bók af annari. Það þarf að setja löggjöf um þetta, og í öðru lagi um það, að hæfir menn semji bækurnar. Það er óskaplegt fyrir kennarana að verða að taka við sumum af þeim bókum, sem þeir hafa orðið að basla við. Og jafnvel þótt höfundurinn hafi gert allt sitt bezta, þá nægir það ekki, þegar höf. skortir hæfileika og hafa gefið bókina út aðeins í hagsmunaskyni eða af hégómagirni, af því að þá langar til að verða höfundar og láta nafn sitt sjást, menn, sem ekki höfðu til þess andlega burði, svo að bækurnar hafa oft orðið að forminu til lélegar, og einatt rangar að efninu til líka. (BB: Þetta þarf að laga). Já, þetta þarf að laga, en það eru ekki gerðar ráðstafanir til þess hér. Ég er ekki að neita því, að finna megi leið til þess, en ég vil þá ekki láta knýja þessa löggjöf fram fyrr en búið er að finna þessa leið, því að ég tel víst, að hana megi finna. En það er það sérstaka eftirlit þess opinbera, sem þyrfti að vera falið pólitískt hlutlausum fræðimönnum, sem nauðsynlegt er, að sérstök lagaákvæði séu sett um. Það er því sjálfsagt að vinna að öllu með stillingu, því að það veltur ekki á mjög miklu, hvort þessi löggjöf er sett ári fyrr eða seinna, en afaráriðandi, að hún misheppnist ekki.

Það sest á þessu frv., að tilgangurinn er að gera útgáfu bókanna ódýrari en hún er, og það þarf ekki að efast um, að með því að gefa út stór upplög er hægt að færa verðið eitthvað niður, en ég held, að menn geti ekki neitað því, ef þeir tala um það af sanngirni, að yfirleitt er gætt meiri hagsýni hjá einstaklingum en hjá ríkinu, og ég skil ekki, að menn geti gert sér von um, að ríkisútgáfa verði ódýrari en útgáfa einstakra manna, og það getur alveg verið í valdi þess opinbera, hvað megi leggja á þessar bækur, og á þann hátt koma í veg fyrir okur á þeim.

Það mundi taka allt of langan tíma hjá mér, ef ég ætlaði að fara út í hverja gr. frv., þó að það sé náttúrlega ætlazt til þess, að einstakar gr. séu ræddar við þessa umr. og þær hafi flestar mikla þörf á því, að þær séu teknar til athugunar, en hv. 3. þm. Reykv. tók frv. grein fyrir grein, og mér skildist á mörgum hér, og þar að meðal sýndist mér á hæstv. fjmrh., að honum þætti þetta næsta skoplegt, og ég get vel hugsað, að það sé skoplegt frá sjónarmiði þeirra, sem vilja ekki einu sinni láta ræða þetta mál og telja það ekki þess vert, að það þurfi nokkurrar umþenkingar við. Sannleikurinn er sá, að þótt málið sé ekki mjög umfangsmikið fjárhagslega, þá er það mikið vandamál, og það vita allir, sem eitthvað hafa fengizt við kennslu.

Ég er ekki í neinum vafa um það, þótt ég hafi mjög góða kynningu af sumum þeim mönnum, sem hafa áætlað kostnaðinn við þessa útgáfu, að sú áætlun er fjarri öllum sanni. Þeir menn eru því ákaflega ókunnugir, hvað það hefir kostað að sjá nemendum fyrir bókum hér á landi, sem geta látið sér detta í hug, að það kosti ekki nema 5-8 kr. á hvert heimili, sem hefir barn eða börn á framfærslu, að sjá þeim fyrir öllum bókakosti árið yfir. Það er mesta fjarstæða. Menn verða að athuga, að þótt menn hafi skýrslur frá Ameríku eða einhverjum öðrum stórlöndum, þá er ekki hægt að byggja á þeim hér. Þar er hægt að gefa bækurnar út í margra milljóna tali, og þau tæki öll, sem menn hafa þar til prentunar, bókbands, myndamótagerðar og annars slíks, sem er þar allt í svo ákaflega stórum stíl, eru náttúrlega ekki sambærileg við það, sem gerist hjá okkur. Það er eðlilegt, að þeim, sem gleypa við slíkum pappírum, fatist í kostnaðaráætlunum sínum.

Ég vil líka segja, að það er ákaflega varhugaverð leið að ætla að afla þessa fjár án tillits til þess, hversu mikið gjaldendur fá í aðra hönd. Það er ætlazt til, að öll heimili gjaldi jafnmikið hvort sem þar eru mörg eða fá börn og hvort sem þau þurfa meira eða minna af kennsluáhöldum. Þetta er ákaflega óréttmætt. Sérstaklega vil ég þó vara menn við að gleypa þessa áætlunarflugu. Hún er áreiðanlega fölsk, þó að það sé ósjálfrátt. Ríkið hefir oft flaskað á því áður að áætla skakkt hluti, sem stjórnendur landsins hafa ekki haft með að gera. Ég skil ekki annað en að mönnum sé minnisstætt, þegar ríkið rak einu sinni verzlun og var komið með í hana 3-4 sinnum meira en öll útgjöld fjárl. voru þá, en þá voru öll fjárlagaútgjöld ríkisins um 21/2 millj., og það kapital, sem ríkið þurfti í þessa verzlun, var komið á 10. millj. kr. á ári. Ég skal bæta því við, að ríkið eða stj. vaknaði þarna upp við vondan draum, við þann vonda draum, að þetta verzlunarfyrirtæki var búið að binda í sér kapital, sem var fjórum sinnum meira en út gjöld fjárl. Það ár, og að tap verzlunarinnar skipti milljónum króna. Þá var það ráð tekið, að lagt var sérstakt gjald á tvær helztu nauðsynjavörur, sem til landsins fluttust, kol og salt, til þess að bæta upp þetta tap. (ÞorbÞ: Hvenær var það gert?). Það var 1919 eða 1920. Það var gott að geta sagt hv. þm. það litla, sem vantaði á þekkingu hans.

Það er það einkennilega, að síðan þetta gerðist eru liðin 15 ár (Fjmrh.: Er það svo einkennilegt?), og ennþá situr þessi skattur að talsverðu leyti á kolum og salti, kr. 1.50 á smálest af kolum og 1 kr. á smálest af salti. ég er hræddur um, að þegar á að leggja 5-8 kr. á barnaheimilin til þess að standa undir þessari bókaútgáfu, þá verði ríkið að fá sér rekstrarfé, og þá er ég hræddur um, að svo gæti farið, að þessi leiðinlegi draugur gengi aftur þannig, að þyrfti að leggja gjald, t. d. á bækur og skólaáhöld á ókomnum tíma, til þess að vinna upp það tap, sem orðið hefði á þessari útgáfu.

Það er annars einkennilegt, ef ríkið er svo ákaflega þyrst í að fá að leggja fram fé í sérstakan rekstur, meðan einstakir menn fást til að leggja þetta fé fram og hafa alla áhættuna og meðan ríkið getur sett reglur og haft óskoraðan rétt til íhlutunar, hvernig þetta er gert, þá er einkennilegt, að ríkið skuli vera þyrst í að leggja fé í svona hluti. Maður skyldi ætla, að á jafnerfiðum tímum mundi ríkið vilja koma þessu af sér að sem mestu leyti og hafa sem flest járn í eldinum, hafa sem minnst að gera annað en að hugsa um rekstur ríkissjóðs sjálfs, og láta borgarana um að reka fyrirtækin, a. m. k. þau, sem ríkið hefir fullkomna aðstöðu til að hafa eftirlit með, eins og það getur a. m. k. skapað sér í þessu efni.

Ég veit ekki, hvort hv. þm. hafa almennt gert sér grein fyrir því, hvað er hægt að fá af skólabókum og áhöldum fyrir þessar 5 kr., sem gert er ráð fyrir, að greitt sé af hverju heimili, þar sem börn eru á skólaaldri, eða eldra fólki við nám. Það má ekki heimta meira af slíkum heimilum en 15 kr., hvað margir sem nemendurnir eru. Maður veit, að ein einasta orðabók kostar meira en 15 kr. Þetta virðist vera mesta fjarstæða.

Ég sagði áðan, að ég vildi ekki fara út í gr. frv. hverja fyrir sig. Ég vil þó aðeins minnast á eina gr., sem hv. 3. þm. Reykv. skildi ekki. Það er 9. gr. Ég skal játa, að ég skil hana ekki heldur. Ég var búinn að merkja við þessa gr. og ætlaði að vita, hvort ég gæti fengið nokkurn, sem gæti frætt mig um hana. Þar segir svo, að það sé bannað, að viðlagðri 10-100 kr. sekt, að láta þessar bækur ganga kaupum og sölum. Veit nokkur, við hvað er átt með þessu? Ég veit, að allir geta sagt sér það sjálfir, að ef heimilin eiga að fá skólabækur ókeypis, þ. e. a. s. gegn þessu 5-8 kr. gjaldi, þá muni heimilin ekki óska eftir að fá að kaupa bækurnar. Ætli þeim, sem sömdu þetta frv., hafi dottið í hug, að þegar búið væri að borga 5-8 kr. til þess að fá nýjar bækur, já mundu menn vilja fara að kaupa þær? Ég geri ráð fyrir, að ef nokkurt vit er í þessari gr., þá eigi hún að koma í veg fyrir, að hægt væri að setja upp verzlun með þessar bækur í fornsölu. En hverjir mundu kaupa á þeirri fornsölu? Ekki börnin, því að þau eiga að fá bækurnar ókeypis. Það væru þá helzt menn, sem vildu fylla bókaskápa sína með þessum bókum. Og hvað væri þá á móti því, að þeir mættu kaupa þær? Annaðhvort er þessi gr. byggð á misskilningi, þeirri hugsunarvillu, að menn muni þyrsta í að kaupa bækur, sem þeir geta fengið ókeypis, eða þá að það er meint, að ekki megi láta bækurnar í fornbókasölu, og það er hreinasta fjarstæða.

Hér kemur svo hver greinin eftir aðra, sem gera það að verkum, að alltaf þarf meira og meira fé í þetta ríkisforlag. 9., 10., 11. og 12. grein, allar auka þær á rekstarfjárþörfina.

Ég hefði gjarnan kosið að tala nánar um það, út á hvað ég teldi, að löggjöf um þessa hluti þyrfti að ganga, en ég verða að sleppa því nú, því að ég tel ekki forsvaranlegt að þurfa að ræða mál, sem tekið er í alvöru, um hánótt. Auk þess er ekkert spaug að ræða við fylgismenn frv. þessa nú, þar sem þeir hafa tekið upp þá „taktik“ að þegja við öllu, sem þeir eru aðspurðir.

Hvað frágang frv. snertir, þá er hann slíkur, að ég trúi varla, að nokkur úr hópi þm. haft fengizt við samningu þess. Ég ætla ekki að fara í neinn sparðatíning hér, en þó má nefna setningu eins og t. d. þessa: „Þar með talinn Eiðaskóli og gagnfræðaskólana“. Hér er hvorttveggja vitlaust, tala og fall, og svona mætti lengi telja Slíkur göslaraháttur getur alls ekki réttlætt það, að málið gangi í gegnum þingið athugasemdalaust. Annars mun óþarfi að vera að eyða miklum tíma í að ræða mál þetta nú, því að ég þekki hv. dm. svo vel, að þetta mál mun aldrei slampast í gegnum deildina.