21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í C-deild Alþingistíðinda. (3441)
28. mál, námskeið fyrir atvinnulausa unglinga
Frsm. 1. minni hl. (Bjarni Bjarnason):
Ég vildi mega óska þess, að umr. um mál þetta beindust ekki inn á það svið, að þær færu mjög að koma við tilfinningar manna, svo sem það, að farið verði að gefa í skyn, að við, sem ekki getum gengið með frv., viljum spilla kjörum unglinga, svo fjölga þurfi fangahúsum. Til þess að slík kennsla, sem hér er átt við, geti komið að notum, þurfa hlutaðeigendur að hafa náin kynni við heimilin, því að það er alkunna, að skólarnir yfirleitt koma ekki að notum fyrir fólkið, nema að því líði að öðru leyti vel. Það þarf að sjá heimilisfeðrum þessara atvinnulausu unglinga fyrir vinnu, og í mörgum tilfellum að bæta húsakynni þeirra, því að klæðlitlir og hraktir unglingar hafa ekki gagn af skólanámi. Þeir geta ekki setið á skólabekkjum, svo að þeim verði það að gagni. Þegar búið verður að lagfæra þetta, þá má fara að tala um skólahald fyrir þetta fólk. En eins og ég hefi tekið fram, þá er það bæjanna að leysa þetta mál, og því ekki rétt að blanda ríkissjóði inn í það.