25.03.1935
Neðri deild: 37. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (3450)
77. mál, bæjargjöld á Akureyri
Guðbrandur Ísberg:
Ég vil leyfa mér að þakka meiri hl. fjhn. fyrir afgreiðslu þessa máls, þar sem hann hefir lagt til, að frv. verði samþ. Að vísu hefir hv. meiri hl. borið fram tvær smábrtt. við frv., og er annað orðabreyt., en hitt er um það, að l. gildi til ársloka 1936, í staðinn fyrir til ársloka 1937.
Ég tók fram við 1. umr. helztu atriði þessa máls, en ég vil þó drepa á það, að ég minntist sérstaklega á, að frv. væri borið fram vegna eindreginna áskorana frá bæjarstj. Akureyrar, vegna þess að brýn nauðsyn er að afla bæjarfélaginu aukinna tekna, og vil ég í því sambandi geta þess, að útsvörin hafa hækkað á 2 árum um þriðjung, úr ca. 200 þús. kr. upp í ca. 300 þús. kr. Ég vil sérstaklega benda á, að bæjarstj. hefir athugað gaumgæfilega, hvaða leið sé heppilegast að fara til þess að afla aukinna tekna, og hefir hún einróma lagt til, að þessi leit væri farin, og vil ég undirstrika það, að fulltrúar jafnaðarmanna og framsóknarmanna í bæjarstj. hafa greitt atkv. með því, að þessi leið væri farin. Og það ræður af líkum, að menn, sem búsettir eru á Akureyri, eru kunnugri því, hvernig þessu máli horfir við, og eru færari til þess að ákveða, hvaða leið sé heppilegast að fara.
Það hefir sérstaklega á það bent og að því fundið, að frv. höggi nærri mönnum, sem ekki eru búsettir á Akureyri, en kaupa nauðsynjar sínar þar. Það er að vísu rétt, að á þá er lagt lítið gjald, en það er ekki svo mikið, að það nemi neinu, sem hægt er að telja, og það er vegna þess, að þessi gjöld eru lægri á Akureyri en nokkursstaðar annarsstaðar, vegna hinnar ágætu hafnar og þess, að hafnarmannvirkin hafa verið byggt smátt og smátt og aldrei stofnað til mikilla skulda vegna hafnarmannvirkjanna, er hefði áhrif á hafnargjöldin. Þetta atriði hefir verið athugað af fulltrúum Framsfl. í bæjarstj., og vil ég undirstrika það, að forstjóri stærsta samvinnufélagsins á Akureyri, en það er forstjóri kaupfélags Eyfirðinga, á sæti í bæjarstj. Hann hefir látið svo um mælt, að í sama stað komi niður, hvort þessi leið væri farin eða sú, að hækka útsvörin, því sú útsvarahækkun hlyti nær eingöngu að lenda á verzlunarfyrirtækjum bæjarins, og yrði í gegnum þau að leggjast á vöruna. Það skiptir því ekki öllu máli, hvor leiðin er farin, en þessi leit, sem lagt er til í þessu frv., að farin verði, mun vinsælli og gjaldið innheimtast jafnara og betur.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en ég vænti þess, að hv. þdm. athugi það, að um leið og þeir greiða atkv. á móti þessu frv. eru þeir að dæma flokksmenn sína í bæjarstj. Akureyrar.