22.11.1935
Neðri deild: 80. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í C-deild Alþingistíðinda. (3494)
62. mál, hafnarlög Siglufjarðar
Ólafur Thors:
Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. hafi öllum skilizt, á hve tæpu vaði hv. þm. Ísaf. var. Þm., sem telur sig vera sérstakan málsvara sjávarútvegsins og enda, vegna stöðu sinnar á þingi sem form. sjútvn., hefir sérstaka skyldu til að gæta hagsmuna útvegsins, getur auðvitað ekki fært því framferði bót að leggjast að jafnaði gegn hagsmunamálum sjávarútvegsins. Það var kaldhæðni örlaganna við atkvgr. í fyrra um þetta mál, lækkun tollsins á síldarmjölinu, að einmitt þessi þm. greiddi seinast atkv. og reið sjálfur baggamuninn. Og sjálfsagt telja útvegsmenn þá afsökun hæpna, að þm. hafi ekki séð fært að aflétta gjaldinu vegna fjárþarfar ríkissjóðs. Það liggur nefnilega svo ákaflega nærri, að þá sé spurt, hvort það sé yfirleitt, fyrir slíkan umboðsmann sjávarútvegsins, hægt að verja það að fella niður með öllu gjald af landbúnaðarafurðum meðan af sjávarafurðum er borgað upp í 7%. Slíka aðstöðu til mála er ómögulegt að verja. Það bar líka svo skemmtilega við, að í þessari óhönduglegu tilraun til málsvars sagði einmitt þessi hv. þm. frá því, hvað það var, er fyrir honum hafði vakað, þegar hann leyfði sér að heimta í ríkissjóð tekjur allt að 7% af framleiðsluvörum sjómanna, meðan létt er af landbúnaðinum öllum gjöldum í þessu efni. Það skauzt upp úr honum, að þetta væri af því, að h/f Kveldúlfur framleiddi þessa vöru. Þetta mun vera raunverulega ástæðan fyrir framferði þessa svokallaða umboðsmanns sjómannastéttarinnar. Hann finnur skjól í því, að hann heldur sig geta gert þessum sérstaka andstæðingi sínu einhvern óleik. En ekki hlífir það honum eða nægir til varnar í þessu máli, er hann með gífuryrðum ræðst á þm. Sjálfstfl. og sakar þá um hörku í garð útvegsins, að þeir, til þess að reyna að ráða bót á fjárhagsörðugleikum Siglufjarðar, skuli vilja leggja nýtt gjald á síldarmjöl, er nemi 1 kr. á smálest, því sé 1 kr. á smálest okurgjald, hvað mundi þá um þær 7-8 krónur, sem fyrir atkv. einmitt þessa þm. er af sjómönnum tekið af hverri smálest síldarmjöls? Ég veit, að þessi hv. þm. er ekki sérstaklega rökfimur, en ef hann hefði einhvern sæmilegan málstað að verja, þá hygg ég, að honum myndi takast að koma með einhverja sterkari vörn en þessa.
Mér var ekki fyllilega ljóst, hvað hann átti við í lok ræðu sinnar, þegar hann beindi til mín orðum út af nánu sambandi - einhverju sambandi - milli hv. 6. þm. Reykv. og þess manns, sem ég hefði átt mest í útistöðum við. Ég veit ekki, hver af andstöðumönnum mínum á þann heiður, en ég er ekki ákaflega hörundsár fyrir óhróðri og skömmum og veit ekki, hvað um mig er skrifað. Ég les lítið af því, sennilega ekki svo mikið sem 1/4 hluta. Ef ég lít í andstæðingablöðin, virðist mér sem nafn mitt sé nefnt þar oftar heldur en Allah í Kóraninum og djöfullinn í Vídalínspostillu. Mér virðist sem gefin séu út blöð, sem tali meira um mig heldur en stjórnmálin. Ég veit ekki, hver einn maður á öðrum fremur heiðurinn af að gefa út mörg blöð til þess að ræða um mína persónu, níða mig og rógbera án þess að það hafi haft nokkur áhrif - mínu pólitíska gengi hefir það ekki hnekkt. - Ég veit ekki, hverjum andstæðinga minna ég á að eigna þann heiður að vera sá, sem ég á í mestum útistöðum við. Ég hefi stundum deilt á hv. þm. Ísaf. og stundum á hv. þm. N.-Þ. á meðan hann var ritstjóri Nýja dagbl., en alltaf hefir mér þótt hálfgerð óvirðing að því að skipta orðum við þá og því sneitt hjá þeim eftir fremsta megni. Áður deildi ég oft á hv. þm. S.-Þ. Það var á meðan einhver töggur var í honum, en nú tel ég hann pólitískt dauðan, svo þunglega sem örlögin hafa hirt þennan hv. þm. Hæstv. atvmrh. og ég höfum oft deilt, og þótti mér sannast að segja einna ánægjulegast að eiga við hann, því mér finnst hann góður málsvari, þótt hann hafi allt of sjaldan á réttu að standa.
Ég veit ekki, hvern hv. þm. Ísaf. á við, og ef hann vill skjóta fram einhverju nafni, þá skal ég gefa skýrt álit héðan úr ræðustóli. En ef yfir þessu á að hvíla einhver leyndardómshula -(FJ: Það er ástæðulaust fyrir hv. þm. G.-K. að látast ekki skilja þetta). Ég skal bíða meðan hv. þm. nefnir nafnið, en ef það er svo mikið leyndarmál, að ekki má nefna það, eða ef hv. þm. Ísaf. hér kinnroða fyrir að nefna það, þá hefi ég ekki meiru að svara en ég er búinn.