22.11.1935
Neðri deild: 80. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í C-deild Alþingistíðinda. (3498)

62. mál, hafnarlög Siglufjarðar

Finnur Jónsson:

Ég skal ekki þreyta hv. þdm. með langri ræðu. - Ég skal ekki fara út í það að tala um samræmi yfirleitt, og sízt í skattamálum, þar sem það er ekki hér á dagskrá. En ég vil þó segja það í þessu sambandi, að það virðist ekki mikið samræmi í því að láta sum bæjarfélög hafa heimild til slíks vörugjalds, en láta önnur ekki fá hana.

Nú er mér það ljóst, að með því að greiða hið háa gjald, sem nú er greitt af síldarmjöli og síldarlýsi, þá er lagður stór steinn í götu þeirra, sem þessa atvinnu stunda, og meðfram þeim gert örðugra, sem stunda fiskveiðar. En það mundi þó, svei mér, ekki bæta úr skák eða verða til að auka samræmið - þó að ég eða mínir flokksmenn höfum hingað til ekki séð fært að lækka þetta gjald, - ef við nú ættum að leyfa Siglufirði að hækka þetta háa gjald eins stórkostlega og hv. 6. þm. Reykv. leggur til. Ég sé ekki, að í því sé neitt samræmi hjá honum.

Ég vil ennfremur segja það, að það er lítið samræmi í því hjá hv. þm. Vestm., sem vill fá útflutningsgjaldinu aflétt, sem er viðurkennt, að er talsvert þungbært, að þegar því fæst ekki aflétt, þá skuli hann vilji bæta öðru jafnháu eða hærra gjaldi ofan á.

Hv. þm. Vestm. hélt því fram, að mér hefði þótt það nóg, þegar útflutningsgjald af síld var fært til samræmis við annað af sjávarafurðum, að útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum var fellt niður. Þetta hefi ég ekki sagt, heldur það, að um leið og létt var af útflutningsgjaldinu af landbúnaðarafurðum, þá hefði verið fært til samræmis útflutningsgjald af síld, og hefði sú lækkun numið miklu meiru en útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum.

En þegar verið er að ræða um útflutningsgjald, hvað það nemi miklu, þá er vert að athuga það, að útflutningsgjald í ríkissjóð af 1000 skpd. af þurrfiski með 60 kr. verði nemur um 1000 kr., en 1000 skpd. þykir góður afli í mótorbát. Þegar verið er að kvarta um, hvað þetta sé þungur skattur, þá má ítreka það, sem ég hefi áður bent á, að Siglufjarðarkaupstaður tekur nú jafnháan skatt og þessi er í hafnarsjóð af meðalsíldarafla eins mótorbáts. Og með frv. þessu er nú farið fram á, að Siglufjarðarbær fái að taka aðrar 1000 kr. í viðbót í bæjarsjóð Siglufjarðar. Gjaldið af ekki stærri síldarbát með sæmilegum afla á Siglufirði yrði þá samkv. till. þessara hv. þm. 100% hærra en útflutningsgjald í ríkissjóð er af 100 skippundum af fiski, sem er mjög sæmilegur þorskafli á mótorbát.

Hv. þm. Vestm. var að tala með lítilsvirðingu um einhvern fylgihnött. Ég get sagt hv. þm. Vestm. það, að ég óska honum til hamingju með þann fylgihnött, sem mun skyggja stórlega á hann áður en langt um líður.