30.11.1935
Neðri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (3510)

62. mál, hafnarlög Siglufjarðar

Finnur Jónsson:

Ég skal ekki lengja mikið þessar umr., en ég hefi áður í þessu máli, þegar það hefir verið á dagskrá, bent á, hvert herfilegt óréttlæti síldarútvegsmönnum væri sýnt, ef þetta frv. næði fram að ganga, þar sem Siglfirðingar taka nú vörugjald af afla eins meðalmótorbáts, 1000 kr., í hafnarsjóð, og þeir myndu, ef þetta frv. yrði samþ., auk þess taka 1000 kr. af sama bát í bæjarsjóð. Það hefir verið bent á, að það væri nauðsynlegt fyrir Siglfirðinga, að bærinn nyti þessara hlunninda, að geta lagt skatt á útgerðina, sem þangað kæmi. Ég hefi bent á, hve miklar atvinnubætur Siglfirðingar hafa af þessari útgerð, og auk þess vil ég benda á það, að Siglfirðingum hér eftir útsvarslögunum að fá hluta af útsvari þeirra skipa, er þarna leggja upp síld. Ef þessi hlutur Siglufjarðarkaupstaðar verður heldur rýr, stafar það af því, að útsvör þessara skipa þar, sem þau eiga heima, eru lítil. Og hvers vegna eru þau lítil? Það er af því, að útgerðin ber sig ekki. Mér er kunnugt um, að mjög víða er ekki lagt á þessi skip meira en 4-500 kr. í útsvar á þeim stöðvum, þar sem skipin eiga heima allt árið. En í þessu ósvífna frv. er ætlazt til, að Siglfirðingar geti lagt á þá 1000 kr., auk þeirra 1000 kr., sem þeir áður hafa fengið í vörugjöldum í hafnarsjóð. Ég get ekki skilið, að í þessu sé neitt réttlæti. Út af brtt., sem hv. 2. þm. N.-M. flytur við þá brtt, sem ég hefi lagt hér fram ásamt hv. 3. landsk. þá get ég vitanlega sagt það, að hún er aðgengilegri heldur en sjálft frv. og brtt. hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Vestm., en eigi að síður er ég á móti þessari till, þar sem ég álít, að það sé algerlega rangt af Alþ. að gefa einstökum sveitarfélögum möguleika til slíkra tekjustofna, en neita öðrum um að fara fram á hið sama. Á ég þar við þá almennu vörugjaldsheimild, sem felld var hér í hv. d., þegar Sauðárkróksheimildin var til umr. Það hefir verið bent á, að það væri áríðandi að afgr. þetta frv. nú þegar, því að Siglufjarðarkaupstaður þyrfti á þessum tekjum að halda þegar fyrra hluta næsta árs. En út af þessu vil ég segja það, að aðaltekjurnar, sem Siglfirðingar myndu fá af þessu, eru af þeim vörum, sem fluttar eru að og frá vegna síldveiðanna, en þeir vöruflutningar byrja ekki fyrr en það löngu eftir að næsta þing kemur saman, sem væntanlega afgr. löggjöf um tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, að af þeim ástæðum er engin nauðsyn að afgr. þetta nú þegar.