21.12.1935
Sameinað þing: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (355)
1. mál, fjárlög 1936
Bjarni Ásgeirsson [óyfirl.]:
Ég á hér aðeins tvær litlar brtt. á þskj. 929, og get ég verið fáorður um þær, og það því fremur, sem þær mæla með sér sjálfar. — Önnur fer fram á að veita Kristínu Pálsdóttur ljósmóður 300 kr. eftirlaun. samskonar og veitt hefir verið öðrum undanfarin ár. Kristín er kona öldruð, um áttrætt, og hefir látið af þessum starfa fyrir mörgum árum, en hún hefir gleymzt eftir 30 —40 ára starf, og ekki verið tekin upp eins og aðrar starfssystur hennar. vænti ég nú, að hv. Alþ. bæti upp þessa vanrækslu og neiti henni ekki um þann rétt, sem hún á, enda mun nú æfi hennar fara að styttast úr þessu.
Önnur brtt. mín á sama þskj., Vl. liður, er flutt af mér og hv. 2. þm. Rang. vegna ekkju Þorsteins Sigurgeirssonar bókara, um að veita henni styrk vegna tveggja barna hennar innan 16 ára aldurs, 300 kr. til hvors. Hún hefir haft eftirlaun síðastl. ár frá bankanum, 2000 kr. alls, en hv. fjvn. hefir lækkað þetta niður í 1000 kr. Ég veit, að hún muni eiga mjög örðugt, ef þetta er skorið niður, og mundi henni mikil hjálp að fá styrk með börnunum. Þó þetta yrði samþ., þá er það ekki sambærilegt við eftirlaun ekkna skrifara Landsbankans. vænti ég þess, að hv. alþ. samþ. þessa fjárveitingu, og eyði ekki fleiri urðum.