27.03.1935
Neðri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (3562)

55. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Ég vil ekki láta ómótmælt þeim orðum hæstv. landbrh., að ég hafi farið rógsherferð á hendur samsölunni með því að spyrjast frekar fyrir um atriði, sem mjög ófullnægjandi upplýsingar voru fyrir hendi um. Ég veit vel, að hv. dm. var kunnugt um, hvað ég átti við. Hæstv. ráðh. var svo ógætinn að upplýsa það nú, að eðlilegur og réttmætur grundvöllur hefði hvílt undir fyrirspurn minni. Hann upplýsti það, að fyrir utan það fé, sem samsalan greiðir framleiðendum fyrir mjólk - og hann hrósaði sér af því, að það væri hærra en áður hefði verið -, þá hafi samsalan yfir fé að ráða, einnig frá framleiðendum, sem færi til þess að borga stofnkostnaðinn, sem væri 36300 kr. Það var því engin fjarstæða, þótt ég spyrði, hvort það fé, sem samsalan hefir með höndum umfram það, sem hún borgar framleiðendunum, væri allt í sjóði og hvort ekki væri tekið af því fé til þess að bæta upp lítratöluna.

Hæstv. ráðh. upplýsti það með frásögn sinni um stofnkostnaðinn, að rétt var til getið hjá mér, að samsalan hefir mikið fé umfram það, sem hún þarf til þess að greiða framleiðendum á hverjum tíma. (Forsrh.: Ekki spillir það neitt fyrir samsölunni). Vissulega ekki. En ef það spillir fyrir bændum, þá má ekki gleyma því heldur. Ég hélt, að þeir hefðu nóg með sitt fé að gera, þótt þeir séu ekki að fleygja því í samsöluna til þess að greiða ýmislegt, sem mætti fresta að greiða, eða til þess að bæta upp fyrstu lítratöluna, af því að samsalan þarf ekki að skila af sér andvirði mjólkur, sem henni berst siðar, jafnóðum.

Hæstv. ráðh. svaraði ekki því atriði, sem ég spurði hann um í sambandi við þær upplýsingar, sem hann gaf. Hann sagði að vísu, að í sjóði væri mikið fé, sem framleiðendur ættu hjá samsölunni, en hinsvegar á hann eftir að svara hinu, sem ég spurði hann um, hvort samsalan væri reiðubúin til þess að borga áfram sama verð og nú fyrir mjólk, sem hún fær. Ég ætlast til þess, að hv. meiri hl. landbn. sjái til þess, að framkvæmdur verði vilji þessa meiri hl. í þeim till., sem hann hefir borið fram í hv. n. um það, að lítið sé á fleira en það, sem hæstv. ráðh. þóknast að gera, sem sé, að líka verði lækkað verðjöfnunargjald hjá framleiðendum í Reykjavík úr 3000 niður í 2500 lítra. Ég hefi bent á það, að hægt væri að gera það með því t. d. að lækka hundraðstöluna, sem verðjöfnunargjaldið er nú reiknað með, 8%, sem raunverulega er reiknað með, því að í lögunum er gert ráð fyrir því, að ef það komi í ljós við rannsókn, að nauðsynlegt sé að hækka verðjöfnunargjaldið úr 5% upp í 8%, þá sé heimild til þess. Engin slík rannsókn hefir farið fram, en verðjöfnunargjaldið var þegar í öndverðu ákveðið 8%. Ég bendi á, að þessa lagfæringu má gera, ef hv. meiri hl. landbn. gengur eftir því, með því að lækka verðjöfnunargjaldið á þann hátt, sem bent var á.