27.11.1935
Neðri deild: 84. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (3585)
148. mál, útflutningsgjald
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Ég get verið þakklátur hv. minni hl. sjútvn. fyrir þá afgreiðslu, sem frv. hefir fengið hjá honum. Að vísu hefir hann ekki talið sig geta gengið að frv. óbreyttu, en það er þó stórbót í því, frá því sem nú er, að hann telur ekki rétt, að tekinn sé annar eða hærri tollur af þessum fiskafurðum en öðrum fiskafurðum, sem út eru fluttar. Hefir hv. minni hl. þó ekki séð sér annað fært en styðja hinar innlendu fiskmjölsverksmiðjur með verndartolli á þessa vöru, sem nemur 10 kr. pr. smálest.
Ég sýndi fram á það undir umr. um daginn, að aðstaða verksmiðjanna væri svo erfið, að þessi verndartollur dygði ekki til þess að þær gætu staðizt samkeppnina við Norðmenn, og út frá því varð sú niðurstaða hjá mér, að hverfa alveg af þessari verndartollsbraut. Ég þykist nú sjá forlög þess, að ekki verður hægt að fá þetta mál fært í það horf, sem ég teldi sanngjarnast, og að greiða verði 10 kr. í útflutningsgjald af smálest, eins og verið hefir undanfarið, og verð ég að sjálfsögðu að sætta mig við það, enda nokkur bót frá því, sem nú er. Til þess nú að sýna enn betur fram á, hvernig verksmiðjurnar hafa staðizt samkeppnina við Norðmenn um þessa vöru, þá hefi ég fengið reikninga frá mönnum, sem seldu fiskmjölsverksmiðjunum, og sömuleiðis frá mönnum, sem seldu Norðmönnum: Þar sýnir það sig, að verksmiðjurnar hafa keypt vöruna flokkaða í þrjá flokka. Fyrir 1. fl. hafa seljendur fengið 100 kr. pr. smálest, fyrir 2. fl. 90 kr. og fyrir 3. fl. 75 kr. Aftur á móti sýna reikningarnir, að Norðmenn hafa keypt hér sömu vöru alveg óflokkaða og gefið fyrir hana allt að 130 kr. pr. smálest. Til viðbótar hafa þeir svo orðið að borga 30 kr. í útflutningsgjald á hverja smálest. Hafa þeir því greitt 160 kr. fyrir hverja smálest á sama tíma sem fiskmjölsverksmiðjurnar borga aðeins 100 kr. fyrir fyrsta flokk.
Það er vitanlega rétt, að það er mjög mikilsvert fyrir okkur að geta í þessu efni sem öðru unnið úr hráefnum okkar sjálfir, en svo dýru verði má ekki kaupa það, að óþolandi verði fyrir eigendur hráefnanna.
Ef nú sú verður raunin á, sem allt virðist benda til, að fiskmjölsverksmiðjurnar þoli ekki samkeppnina um kaup þessara hráefna, þá er hreint og beint ekki til grundvöllur fyrir þessa iðngrein hér, og verksmiðjurnar verða að taka afleiðingunum af því, því að það er ekki hægt að krefjast þess, að framleiðendur þessarar vöru greiði svo mikla fórn til þess að halda verksmiðjunum uppi sem hér er um að ræða.
Það hefir komið fram undir umr. um þetta mál, að það væri harla undarlegt, að ísl. fiskimenn skuli selja hinum innlendu verksmiðjum afurðir sínar fyrir svona lágt verð, samanborið við það, sem hinir erlendu kaupendur greiða. Í þessu liggur þannig, að verksmiðjurnar sendu út menn til fiskimannanna og lögðu fölur á þessa vöru löngu áður en hinir erlendu kaupendur fóru að kaupa. Jafnframt munu þeir hafa boðið fram lán upp á væntanleg viðskipti. Þetta mun vera ástæðan fyrir því, að sjómenn seldu verksmiðjunum meira heldur en Norðmönnum, sem ekki byrjuðu að kaupa fyrr en beinin voru orðin þurr, en þá var komið fram á vor.
Að hægt sé að fresta afgreiðslu þessa máls til næsta þings, eins og hv. meiri hl. hefir drepið á, er vitanlega hin mesta fjarstæða. Slíkt er bara mislukkuð tilraun, eins og dagskráin er vitanlega öll, til þess að koma máli þessu fyrir kattarnef, sem sýnir ljóslega, í hve miklum vandræðum hv. meiri hl. sjútvn. er með að vísa frá svo sjálfsagðri kröfu sem krafan um lækkun beinatollsins er.
Ég vænti þess nú fastlega, að hv. dm. geti fallizt á brtt. hv. minni hl. sjútvn., sem ég sé mér ekki annað fært en fallast á, eftir því sem málið stendur nú, og bæta þannig úr hinni hörðu útreið, sem sjávarútvegsmenn urðu fyrir á síðasta þingi með hinni ósanngjörnu hækkun beinatollsins.
Verzlunin með fiskbeinin er svo að kalla ný hjá okkur, en þó er hún þegar orðin mikill stuðningur fyrir útgerðina, sem m. a. má sjá á því, að á Akranesi hafa tekjur af henni numið 6000-7000 kr. á bát. Eigi nú að fara að skerða þetta, eins og slíkur verndartollur sem þessi hlýtur óhjákvæmilega að hafa í för með sér, þá hlýtur það að koma sér mjög illa fyrir útveginn, og það ekki sízt á tímum eins og nú standa yfir. Ég fyrir mitt leyti tel ekki ná nokkurri átt að ganga svo í berhögg við útveginn. Það verður því ekki aðeins að teljast siðferðisleg skylda Alþingis að verða við þessum réttmætu kröfum sjávarútvegsmannanna, heldur beinlínis óhjákvæmileg skylda, sem ekki er hægt undan að skorast. Enda mun það svo, að sjómenn telji svo að sér búið, að hér geti ekki verið um annað fyrir Alþingi að gera en rétta hluta þeirra í þessu efni.
Að sjálfsögðu hefði ég helzt kosið, að þetta umrædda útflutningsgjald hefði með öllu verið látið falla niður, eins og ég fer fram á í frv., en eins og ég þegar hefi tekið fram, mun ég sætta mig við, að það verði framvegis eins og það var áður en það var hækkað á þinginu í fyrra.