02.12.1935
Neðri deild: 88. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (3604)
148. mál, útflutningsgjald
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Hv. 3. þm. Reykv. sagði, að hann hefði nú ekki sannfærzt um það, að réttmætt væri að fella niður þetta gjald. Get ég náttúrlega ekki gert að því, þó að sá hv. þm. sé svo ómóttækilegur fyrir sannleikann í þessu máli, að hann þurfi kannske enn sterkari rök til þess að sannfærast um það rétta í málinu.
Minna má þó hv. þm. á það, að það mun talið, að Íslendingar borgi nú útflutningsgjald af saltfiskinum, sem seldur er til Spánar. Það eru ekki kaupendur fiskjarins, sem borga þetta gjald. En framleiðendur fá lægra verð fyrir fiskinn en annars mundi vera, og þannig er þetta gjald fengið. En vitanlega ræður hið almenna markaðsverð á fiskinum því, hvað kaupendur borga. Með þessum tolli á beinunum er séð fyrir því, að verðið á þeim til framleiðendanna hljóti alltaf að verða 30 kr. fyrir neðan raunverulegt markaðsverð fyrir hvert tonn. Það er því útilokað, að íslenzku verksmiðjurnar bjóði í beinin hærra verð en sem svarar 30 kr. fyrir neðan markaðsverð fyrir tonnið, á meðan þessi 30 kr. skattur helzt.
Ég hefi fúslega viðurkennt, að vel mætti vera, að norsku kaupendurnir að þessum hráefnum mundu ekki bjóða hærra verð fyrir þessa vöru heldur en innlendu verksmiðjurnar. Þó tók ég það jafnframt fram, að vel gæti samt vel farið, því að það mundi sennilega reynast svo, að hérlendir framleiðendur þessa hráefnis mundu fremur hafa tilhneigingu til að selja innlendum kaupendum vöru sína heldur en þeim norsku. Það er því ekki óeðlilegt, þó að Norðmenn bjóði 10-20 kr. meira fyrir tonnið af beinunum heldur en verksmiðjurnar hér. Þeir mundu samt hagnast. Ég sagði ekki, að það bæri að lita á þetta sem einhverja náðargjöf til Íslendinga. Þetta eru vitanlega verzlunarhyggindi, sem í þessum kringumstæðum mundu verða viðhöfð af Norðmönnum, til þess að tryggja sér meira af framleiðslunni.
Hv. 6. landsk. heldur því fram, að framleiðendur borguðu ekki tollinn. Hann sagði einnig, að tollurinn lenti ekki á þeim, sem kaupa beinin blaut, þurrka þau og selja svo aftur til norsku verksmiðjanna, af því að þær gæfu alltaf fyrir beinin eftir því, hvað hátt verð ísl. verksmiðjurnar borguðu. En það verð hlýtur alltaf að verða fyrir neðan það, sem Norðmenn mundu gefa nú, ef tollurinn væri ekki til.
Hv. 6. landsk. sagði í sinni ræðu, að tollurinn sé settur á til þess að vernda ísl. verksmiðjurnar gegn samkeppni norsku verksmiðjanna. Þetta er einmitt það, sem vakir fyrir þessum hv. þm., sem vilja hafa þennan toll, að varna því, að ísl. verksmiðjurnar verði yfirboðnar. Það er fjarri því, að það sé nein sanngirni í því að varna því, að slíkt yfirboð komi fram. Mér virðist það heilbrigt, að slíkt yfirboð komi fram. Og ef svo er, sem hv. 6. landsk. viðurkenndi, að þessi tollur sé settur á til þess að varna slíku yfirboði, þá leiðir líka af því, að það verð, sem framleiðendur fá fyrir vöru sína, mundi hækka, ef tollur þessi yrði afnuminn. Íslenzku verksmiðjurnar yrðu þá annaðhvort að sjá af beinunum til norsku verksmiðjanna fyrir hið háa verð, sem þá hefði hækkað fyrir afnám tollsins og sem tollinum svarar, eða þá að ísl. verksmiðjurnar yrðu að hækka verðið jafnt og hinar norsku. Ég veit, að hver einasti maður hlýtur að fallast á, að slíkt gjald, sem varnar því, að framleiðendur fái raunverulegt markaðsverð fyrir sína vöru, það lendir eingöngu á framleiðendunum.
Það er vitanlega út í bláinn sagt, þegar hv. 6. landsk. heldur því fram, að það sé oft 5 kr. dýrara að flytja hvert tonn á milli hafna á Austfjörðum heldur en frá sömu höfnum til Noregs. Ég er hissa á, að þessi hv. þm. skuli láta slíka vitleysu frá sér fara.
Ég vil að síðustu gera fyrirspurn til hv. 6. landsk. Ef hann heldur því fram, að ekki megi afnema þennan rangláta toll, því að með því sé verið sama sem að drepa þennan vísi til innlendrar framleiðslu, sem er fiskmjölsframleiðslan - vill hann þá ekki einnig hjálpa þessum vísi til framleiðslu með því að vera með afnámi útflutningsgjalds af sjávarafurðum? Það mál verður til umr. hér á þingi bráðlega. Mín spá er, að hv. 6. landsk. leggist á móti því máli. (JG: Ég mun svara þessu þá).