08.11.1935
Efri deild: 64. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (3672)
14. mál, jarðræktarlög
Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson) [óyfirl.]:
Hv. form. landbn. hefir nú gert ýtarlega grein fyrir till. meiri hl., til viðbótar því, sem ég sagði í gær, og að nokkru leyti svarað því, sem þá kom fram frá hv. andmælendum okkar, svo að það er minni ástæða til þess fyrir mig að vera langorður í þetta sinn. Enda er hv. 1. þm. Eyf. sennilega kunnugastur högum manna í sveitunum af okkur fjórum, sem höfum deilt um þetta mál, að hv. 10. landsk. og hv. 2. þm. Rang. alveg ólöstuðum. Það er líka eðlilegt, að sá maður, er sjálfur hefir stundað landbúnað sem atvinnurekstur, hafi mesta kynningu af honum, enda þótt hv. 10. landsk. hafi um skeið verið búsettur í sveit sem prestur.
Ég get þó ekki gengið alveg framhjá ýmsum svigurmælum hv. 2. þm. Rang. og hv. 10. landsk., þar sem þeir héldu því fram, að með till. okkar um að vísa þessu frv. til stj. segðum við það eitt, að engin ástæða væri til þess að styðja landbúnaðinn meira en nú er gert. Þetta er svo herfilegur útúrsnúningur, að hann er a. m. k. ekki samboðinn hv. 2. þm. Rang.
Það kemur greinilega fram í nál. meiri hl. n. og átti einnig að vera ljóst af framsöguræðu minni í gær, að við í meiri hl. landbn. vildum fullkomlega styrkja landbúnaðinn, en værum hinsvegar ekki viðbúnir að gera till. um, á hvern hátt það hentaði bezt. Aðstaða landbúnaðarins er að mörgu leyti gerbreytt síðan 1923, þegar jarðræktarlögin voru sett. Nú hefir hann að ýmsu leyti aðra annmarka við að stríða en þá; þetta hefir oft verið tekið fram af mér og hv. 1. þm. Eyf. Hv. andmælendur okkar hafa því engan rétt til þess að halda því fram, að við viljum ekkert gera fyrir landbúnaðinn. Þeim svigurmælum vísa ég á bug sem algerlega ósönnum og óréttmætum.
Hv. 2. þm. Rang. flutti langt mál um sölu á landbúnaðarafurðum og taldi, að það mundi mega selja miklu meira af íslenzku kjöti erlendis, ef hæfari menn fengjust til að fara með þá verzlun en verið hefir hér á landi undanfarið. Og hv. 1. þm. Eyf. fór alveg rétt með ummæli hv. 2. þm. Rang. Ég skrifaði þau hjá mér og býst við, að það hafi fleiri gert. Hv. þm. sagði, að það, sem hingað til hefði verið gert til þess að útvega markað fyrir kjötið erlendis, væri aðeins lítilfjörlegt fálm vanmegna og lítt hæfra manna. Þetta eru óneitanlega stór orð og hörð. Ég hefi að vísu ekki kynnt mér nákvæmlega, hvernig kjötsalan hefir verið framkvæmd. En eftir því, sem ég veit bezt, þá verð ég að líta svo á, að í þessum orðum hv. 2. þm. Rang. felist mjög hörð árás, a. m. k. á tvo menn sérstaklega, sinn úr hvorum flokki verzlunarstéttarinnar, annan í kaupmannastétt, en hinn í Samb. ísl. samvinnufél. (PM: Þetta er allt slitið úr samhengi, og mun ég skýra það nánar síðar). Mér finnst, að hin ómaklegu ummæli hv. þm. snerti sérstaklega illa þessa tvo menn, og ég get gjarnan sagt, hverjir þeir eru, því ég veit að þeir hafa manna mest unnið að því á síðari árum að selja íslenzkar landbúnaðarafurðir erlendis. Þeir eru Garðar Gíslason af hendi kaupmanna og Jón Árnason framkvæmdarstjóri fyrir samvinnufélögin í landinu. Ég verð að segja það, að ég skil ekki, hvernig hv. 2. þm. Rang. fer að burtforklára þau orð úr ræðu sinni, sem hann hafði um þetta og þá sölustarfsemi, sem rekin hefir verið á þessu sviði. (PM: Ég sagði, að tilraunirnar hefðu verið fálm, sem þó hefði borið nokkurn árangur). Ætli það sé nú ekki viðbót frá hv. þm. eftir á? (PM: Það stendur sjálfsagt hjá skrifurunum). Ég tek fullkomlega undir það með hv. 1. þm. Eyf., að ef þau ummæli hv. 2. þm. Rang. hafa við rök að styðjast, að það sé hægt að margfalda markaðsmöguleika fyrir íslenzkt kjöt erlendis, þegar hæfir menn fara með þau mál, þá er hnúturinn leystur, og væri það sannarlega fagnaðarefni, ef treysta mætti fullyrðingum hv. þm.
Út af svigurmælum hv. þm. um það, að við viljum ekki styðja landbúnaðinn, get ég minnt á nýbýlamálið; það er leið, sem bent hefir verið á til þess, að fleira fólk geti lifað í sveitunum, sérstaklega þar, sem landið er ódýrt og fólkið getur stundað jöfnum höndum landbúnað og sjómennsku, eins og gert hefir verið frá landnámstíð. En síðan fólkinu fjölgaði í bæjunum, hefir mjög dregið úr þessu, og útgerðin að mestu leyti verið rekin þaðan og úr sjávarþorpum. Ég hefi áður flutt hér á Alþingi frv. um fjölgun smábýla í grennd við kaupstaði og sjávarþorp, og virðist mér það liggja opið fyrir, að fjölskyldur, sem hefðu þar aðsetur, ættu um að velja fjölbreyttari atvinnugreinar en jarðrækt og sjóróðra. Bóndinn gæti stundað sjó á vertíðinni, jarðrækt og heyskap að sumrinu á landi sínu, og daglaunavinnu eða önnur störf þess á milli. - Sú hugsun hefir aðallega verið lögð til grundvallar fyrir nýbýlum, að þar gæti fleira fólk lifað í sveitunum á tiltölulega litlu landi, í nýbýli, og haft þar fjölbreyttari framleiðslu og verkefni en áður var; og reynsla nágrannaþjóðanna hefir sýnt, að þetta gefst vel þar. Ég tel því heppilegast að veita landbúnaðinum aukinn stuðning til fjölbreyttari búnaðarhátta í sambandi við nýbýli. En frv. hv. 10. landsk., sem hér er til umr., miðar eingöngu að því að styrkja landbúnaðinn eins og hann var rekinn 1923. Ég skil ekki annað en að hv. andmælendur mínir hljóti að játa, að stórfelldar breyt. hafi orðið í búnaðarháttum hér á landi síðan 1923, er jarðræktarlögin voru sett, og að það er annað og fleira, sem stendur landbúnaðinum fyrir þrifum nú, en vöntun á ræktuðu landi.
Hv. frsm. minni hl. talaði um kauphækkunina í sveitunum, sem mjög hefði aukið á erfiðleika bænda; en hv. þm. færði engin rök fyrir þeirri fullyrðingu sinni. Að vísu sagði hann, að kaup trésmiða og steinsmiða hefði hækkað til muna í sveitunum. En ég sé ekki, að það standi í neinu sambandi við hækkun á vegavinnukaupinu. Mér þykir sennilegra, að það stafi af því, að óvenjulega mikil atvinna hafi verið við byggingar í nágrannakaupstöðunum. Annars er mér ekki kunnugt um, að kaup smíða hafi hækkað svo mikið á síðustu missirum sem hv. þm. heldur fram. En hinu fell ég ekki frá, að meiri hlutinn af kauphækkuninni í vegavinnu ríkisins hefir runnið til sveitanna, beint eða óbeint. Það má vera, að hækkunin hafi ekki runnið beint í vasa bænda nema að nokkru leyti, en ef hún hefir aukið tekjur á heimilum þeirra, sem engum blöðum þarf um að fletta, vegna vinnu sona þeirra eða heimilisfólks við vegagerð, þá er sama sem það komi bændum til tekna. Og þó að nokkuð af kauphækkuninni renni til lausamanna, sem eiga heima í sveitunum, þá kemur það líka að gagni fyrir þær.
Þá kem ég að því, sem hv. þm. sagði um afurðasöluna, og þeim ummælum, sem hann hafði eftir mér úr svarræðu minni í gær og hann vildi fá staðfest. - Það er rétt, að ég hélt því fram í ræðu minni, að með kjötlögunum hefði norðlenzkt kjöt verið keypt út af innlenda markaðnum hér í Rvík. En hv. þm. tók þessi orð mín ákaflega strangt og bókstaflega. Það er vitanlegt, að norðl. kjöt og kjöt úr ýmsum landshl. hefir verið talsvert mikið á markaði hér í Rvík á síðari árum. Og það, sem ég átti við með þessum orðum, var, að með kjötlögunum hefðu framleiðendur sunnan- og vestanlands keypt af sér þá skriðu af kjöti úr öðrum landshlutum, sem annars hefði runnið hingað á Reykjavíkurmarkaðinn og valdið hruni á kjötverðinu innanlands. (PM: Skriðan hefir bara hlaupið þrátt fyrir það, að lögin voru sett). Nei, skriðan hefir ekki hlaupið. Það sést bezt á því, hvað mikið kjöt hefir verið selt til útlanda. Það er fullvíst, að bændur norðan- og austanlands hefðu aukið geysilega kjötflutninga til Reykjavíkur, ef lögin hefðu ekki sett takmörk fyrir því. Menn hugsa ekki svo mikið um náungann, þegar verið er að keppa um verðmætin. Og norðlenzkir bændur eru yfirleitt ekki betri en það, að þeir hefðu sennilega viljað selja kjöt sitt fyrir 10 aur. hærra verð á kg. til Reykjavíkur heldur en þeir gátu fengið fyrir það í Noregi. Þessu kjöti þeirra hefir því í raun og veru verið rýmt hér af markaðnum frá sunnlenzkum bændum.
Það er ekki gott viðfangs, þegar framleitt er miklu meira af kjöti en hægt er að selja í Noregi og Englandi. Í báðum þessum löndum eru kvótarnir of litlir, og verkefni kjötlaganna er að hindra það, að kjötsalan lendi í hnút hér innanlands og safnist of mikið hingað til Reykjavíkur; og verðjöfnunargjaldið er sömuleiðis sett til þess að hindra það, að kjötmarkaðurinn verði eyðilagður hér í Reykjavík fyrir sunnlenzkum bændum. Ég held því, að hv. 2. þm. Rang. þurfi ekki að kæra yfir þessari meðferð á þeim. (PM: Hún er svívirðileg). Hv. þm. segir, að hún sé svívirðileg. En getur hann ekki skilið, að það sé líka dálítið erfitt fyrir bændur í öðrum landshlutum að þurfa að sæta miklu lægra verði fyrir kjöt sitt heldur en hægt er að fá fyrir það hér í Reykjavík? En með kjötlögunum er þeim bægt frá þeim markaði.
Hv. 2. þm. Rang. minntist á þann sparnaðarmöguleika að leggja niður fiskimálanefnd og vildi ekki fallast á, að hún hefði átt upptök að neinum úrlausnum í fisksölumálunum. Við erum þar sinn á hvorri skoðun. Ég benti á í ræðu minni í gær, að hún átti mestan þátt í harðfiskverkuninni, og ég álít ennfremur, að fiskimálanefnd hafi unnið sérstaklega þarft verk með því að undirbúa karfaveiðarnar og koma þeim á stað, sem bættu mikið úr því, hvað síldveiðin reyndist lítil. Það er aftur á móti rétt hjá hv. þm., að það misheppnaðist salan á hraðfrystum fiski til Póllands. En það vill nú svo einkennilega til, að sá maður, sem átti hlut að þeirri sölu og stóð fyrir henni ásamt nefndinni, var mjög dáður af hv. 2. þm. Rang. í þingræðu í fyrra. Þessi maður er Magnús Andrésson. Það vill nú oft verða svo, að slíkar tilraunir sem þessi mistakist í byrjun, og verður fiskimálan. ekki álasað fyrir það, þó að hún geri tilraunir um markaðsleit, sem ekki verður vitað um fyrirfram, hvern árangur gefur. Það ríður mjög mikið á því að selja sem mest af nýjum og hertum fiski, af því að horfurnar fyrir saltfiskssölunni eru svo slæmar; og má jafnvel telja það lífsspursmál fyrir þjóðina að fá markað fyrir nýjan fisk. Allar tilraunir, sem gerðar eru til þess að rýmka fiskmarkaðinn, eru mjög virðingarverðar. Sú tilraun, sem gerð var með harðfiskinn, gefur fulla bendingu um, að í framtíðinni muni takast að létta mikið á saltfisksmarkaðinum. Á því er enginn vafi. - Er hv. þm. ekki svo fróður, að hann viti, að á fyrri öldum var fiskurinn yfirleitt verkaður þannig hér á landi? Sá fiskur, sem átti að geymast, var hertur. Og það er tiltölulega stutt síðan breytt var um þá verkunaraðferð og farið að salta fiskinn til útflutnings. M. a. má á það benda til meðmæla harðfiskinum, að ekki þarf að flytja í hann salt frá útlöndum, og út af fyrir sig sparar það erlendan gjaldeyri. Því fyrr sem byrjað er á að herða fiskinn, því betra.
Þessar umbótatilraunir má beinlínis þakka fiskimálan., og álít ég, að hún hafi þar unnið mjög gott starf á þessu ári. Tel ég því í mesta máta varhugavert að leggja hana niður, eins og nú er ástatt, þegar þörfin er svo brýn á því að leita nýrra markaða. Hitt tel ég fjarstæðu, að fela stjórn fisksölusambandsins að taka við þessum verkefnum; hún á aðeins að hafa saltfisksverzlunina, og virðist það fullerfitt. Sú sparnaðartill. hv. þm., að leggja niður fiskimálan., er því bæði vanhugsuð og óheppileg.
Þá fór hv. 2. þm. Rang. í lok ræðu sinnar að bera lof á hv. 10. landsk. fyrir þau störf, sem hann hefði unnið í þágu landbúnaðarins meðan hann var ráðh. Ég skal ekki draga mikið úr því lofi, en þó hygg ég, að hin stærri löggjafarmálefni, sem Alþingi afgreiddi í stjórnartíð hv. 10. landsk. á sviði landbúnaðarins, hafi verið flutt að frumkvæði annara og undirbúin að ýmsu leyti áður en hann tók við, enda þótt það félli í hans hlut að leggja þau fyrir þingið og framfylgja þeim. Það, sem ég fann sérstaklega að við framkomu hv. 10. landsk., var, að hann vildi tiltölulega litlu fórna fyrir landbúnaðinn á meðan hann var ráðh. og átti þá frumkvæði að fáu í þá átt; en nú, eftir að hann er orðinn gersamlega áhrifalaus á Alþingi, virðist hann lostinn svo eldlegum áhuga, að hann kann sér ekki hóf í kröfum um framlög til landbúnaðarmála. Þegar hann er orðinn svo vanmáttugur, að hann situr nú líklega aðeins við annan mann í flokki hér í þinginu, þá gerist hann svo aðgangsfrekur, af því hann veit, að hann þarf ekki að svara til ábyrgðar eða sýna lit á að framkvæma till. sínar.
Það hefir einhver frægur stjórnmálamaður sagt, að bezt sæist, hvað í mönnum byggi, er þeir kæmust í valdaaðstöðu - hver hugur fylgdi máli með áhugamál þeirra. En þetta á ekki við um hv. 10. landsk., því að það er fyrst þegar hann er búinn að vera í valdastóll og hafa máttinn, en ekki dýrðina, að hann fær áhuga á þessum stórlandbúnaðarframförum. Till. hans er líka snauð af nýjum hugmyndum til bjargar út úr erfiðleikunum. Hann dregur upp slóð, sem mér virðist ekki fært að halda lengra á. Maður þarf að láta sér detta eitthvað nýtt í hug til bjargráða. Eitt er víst, og það er, að við verðum að spara sem mest kaup á útlendum mat og búa meira að okkar eigin framleiðslu. Íslendingar verða sannarlega sjálfir að hugsa um þessa hluti, því að þrátt fyrir öll vinsamleg orð milli þjóða er enginn, sem hugsar um neina þjóð, nema hún geri það sjálf. Eiginlega þarf ég eftir þetta engu að svara hv. 10. landsk. Ræða hans var mest endurtekning á því, sem hv. 2. þm. Rang. hafði sagt. Hann var að tala um kauphækkunina, sem þegar er búið að svara. Ég verð að segja það, að mikið af ræðum þessa hv. þm. finnst mér vera þannig, að ekki sé hægt að festa hönd á neinu - ekki af því hve mikil rök eru hjá honum, heldur af því, hve röksemdir hans eru lítilfjörlegar og allt afsleppt hjá honum. Hann var að bera saman ástandið 1923 og nú, þegar jarðræktarl. voru sett, en hann verður að athuga það, að þá var enginn hörgull á að selja framleiðsluna. En nú þarf að hugsa til breyt. á atvinnuvegunum. Það þýðir ekkert að styrkja framleiðslu þar, sem ekki er hægt að sela, eins og hv. 1. þm. Eyf. réttilega tók fram. Þó að óhætt hafi verið að styrkja þessa einhæfu framleiðslu landbúnaðarins 1923, þá hafa miklar breyt. orðið síðan, og það er að mínu áliti ekki fært lengur. Þótt við, hv. 1. þm. Eyf. og ég, viljum vísa þessu máli til stj., þá þýðir það ekki það, að við viljum á engan hátt styrkja landbúnaðinn. Hv. 10. landsk. talaði um sölu á kjöti og bar okkur saman við Noreg í því efni. Hann sagði, að Norðmenn seldu kjöt til Frakklands með góðum árangri. Ég dreg engan efa á, að þetta sé rétt, en það verður að athuga, að það er dálítið annað að selja kjöt frá Íslandi heldur en Noregi. Bændur í Noregi geta sent kjötið úr sláturhúsunum inn í járnbrautarklefa og látið það svo fara beina leið til Frakklands; þetta getum við ekki gert. Okkar land liggur langt úti í Atlantshafi, en það þýðir, að okkar vörur verða eldri og allur umbeini kostnaðarsamari heldur en hjá Norðmönnum. Ég fékk tækifæri til þess að sjá þetta sjálfur í sumar ásamt hv. 1. þm. Skagf., hversu létt og auðvelt vinum vorum við Eyrarsund veittist að koma vörum sínum á markaðinn, hvernig þeir geta tekið fiskinn og sent hann nýjan suður til Hamborgar, París, Belgíu og e. t. v. alla leið suður til Ítalíu. Við verðum líka að reikna með okkar aðstæðum, og það er þess vegna ekki hægt að bera það saman, þegar verið er að tala um það, hve nágrannaþjóðirnar eigi hægt með að selja vörur sínar. Það, sem hefir hjálpað okkur hingað til, bæði sjávarafurðum og landbúnaðarafurðum, er það, hvað við höfum haft mikla framleiðslu og ódýra vöru. Á þessu höfum við lifað hingað til, en nú, þegar kreppan er skollin á, er ekki hægt að selja það magn af þessum vörum, sem þarf. Er því ekki til neins að troða gamlar slóðir. Það er sjálfsagt rétt, að búnaðarþingið hefir mælt með þessu frv., en það er svo með allar stofnanir - við skulum taka til dæmis Fiskifélagið og Búnaðarfélagið -, að þær geta ómögulega slegið hendinni á móti því, sem horfir til aukinna fjárframlaga til þeirra atvinnugreina, sem þessi félög vinna fyrir. Það er auðvitað eðlilegt, að þessar stofnanir geri sitt ýtrasta hver á sínu sviði til þess að fá aukin framlög til atvinnuveganna, en það er aftur Alþingis að meta á hverjum tíma, hve mikið ríkið geti lagt fram í þarfir atvinnuveganna og hvar það komi að beztu gagni. Það er þetta, sem við vildum láta stj. athuga í sambandi við þetta frv. og við því vildum, að til hennar væri vísað.
Ég vil að lokum segja það, að þó að n. hafi haft þetta mál til athugunar síðan í febr., þá er minnst af þeim tíma þingtími, og eðlilega hefir það ekki verið til athugunar í n. á öðrum tímum en þingtímanum. Ég held, að það sé misskilningur hjá hv. þm., eða að honum hafi misheyrzt það, sem ég sagði um þetta. Ég sagði aldrei, að við hefðum ekki haft tíma til að athuga frv., en ég sagði, að við hefðum ekki haft tíma til að athuga, á hvern hátt mætti veita fjárframlög eftir jarðræktarl. og gera þær breyt. á þeim, sem nú kæmu að mestu gagni. Þetta er allt annað mál heldur en að athuga sjálft frv. Ég álít, að það sé of mikið verk til þess að það verði unnið í þingnefnd, en til slíkra hluta höfum við ávallt milliþinganefndir til að athuga um stefnubreyt. í löggjöf. Til þess höfðum við ekki tíma, en við höfðum vitanlega tíma til að lesa yfir frv. og bera það saman við eldri löggjöf.
Það er algerlega rangt hjá hv. 10. landsk., að ég hafi verið að skopast að atvinnuleysi í sveitum. Ég var ekkert að skopast að því, þó að bændur úr Akraneshreppi ætluðu að hætta búskap og flytja á mölina. En ég sagði annað, af því að mér fannst hv. þm. draga þetta fram til framdráttar sínu máli, - ég sagði, að þessir menn myndu ekki hætta við að fara frá jörðum sínum, þó að þetta frv. yrði samþ. Ég skopast ekki að atvinnuleysi, hvorki í sveitum né við sjó. Það er of alvarlegt til þess, en það kemur spaugilega fram hjá hv. þm., og það er það rakaleysi, sem ég var að benda á.