18.11.1935
Neðri deild: 76. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (3697)
165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps
Frsm. minni hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Aðeins nokkur orð út af ræðu hv. 7. landsk. Ég hefi tekið það fram, að ég væri á móti þessu frv. af því, að fyrir Alþingi liggur nú þáltill., þar sem skorað er á stj. að gera ráðstafanir til að afla sveitar- og bæjarfélögunum nýrra tekjustofna. Það eru margir hv. þm. aðrir en ég mótfallnir þessu máli, eins og sést á því, að í byrjun þingsins var fellt frv., sem fór í svipaða átt og þetta, þar sem farið var fram á, að Akureyri væri aflað fjár með svipuðum hætti, og að því er Siglufjörð snertir er mér kunnugt um, að útgerðarmenn, sem hér héldu fund nýlega, hafa samþ. mótmæli gegn því að skattleggja vörur, sem fluttar eru út frá Siglufirði, samkv. 10. gr. í frv. til hafnarlaga fyrir Siglufjörð. Það er því auðséð, að andstaða gegn þessu máli kemur einmitt frá mönnum, sem ég geri ráð fyrir, að hv. 7. landsk. muni vilja taka talsvert tillit til. - Þessi afstaða mín er yfirleitt í samræmi við aðra afstöðu mína á Alþingi.
Þegar hv. 2. þm. Skagf. segir, að hér sé aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða vegna sérstakra ástæðna, þá er það rétt, ef brtt. hv. 1. þm. Árn. er tekin til greina. Þar er gert ráð fyrir, að heimildin gildi aðeins til ársloka 1936, og hv. 2. þm. Skagf. kvaðst geta sætt sig við þá breyt., en þetta atriði var ekki í frv.
Hér á landi eru mörg sveitarfélög, sem eiga við álíka örðugleika að búa og Sauðárkrókur. Það hefir því ekki verið hrakið, sem ég held fram, að hér eigi að fara að taka eitt hreppsfélag út úr og útbúa fyrir það sérstaka löggjöf. Þungamiðja málsins er einmitt þetta, að óeðlilegt er að gera á þennan hátt upp á milli sveitarfélaganna, hvaða leiðir svo sem kann að verða lagt inn á í þessu efni.