25.11.1935
Neðri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (3722)

165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps

Sigurður Kristjánsson:

Hv. 6. landsk. gaf mér tilefni til að kveðja mér hljóðs. Í sambandi við brtt. sínar lét hann svo um mælt, að það væri undarlegt, að menn skyldu ekki koma fram með almennar till. um löggjöf í þessu efni, en vera að tína út úr einstök sveitarfélög og kaupstaði, eins og í frv. því, sem fyrir liggur. Það er rétt, að full þörf er á almennri löggjöf um þessi mál, enda hefir þegar verið skorað á ríkisstj. að undirbúa hana. Og þetta er einmitt það, sem við sjálfstæðismenn höfum verið að hamra á um mörg ár, að setja l., sem fengju sveitarfélögunum í hendur aukna tekjustofna. Undanfarið hefir meir og meir stefnt að því, að þau hafa ekki getað staðið í skilum og að á þau hafa hlaðizt gjöld á gjöld ofan. Á móti þessu hefir hann og hans flokkur staðið, svo að helzt virðist, sem takmark þeirra hafi verið að koma kaupstöðunum í greiðsluþrot og ganga svo frá einstaklingum þar, að efnahag þeirra yrði komið á kaldan klaka. Það er vegna andstöðu sósíalista, að enn er ekki komin löggjöf um þetta. En nú er svo komið, að sveitarfélögin standast ekki lengur þessa fjárhagsörðugleika. Þar af leiðir, að ég þykist ekki geta staðið á móti einstökum aðgerðum í þessu efni, enda þótt rík þörf sé á almennri löggjöf.

Ég býst við, að hv. 3. þm. Reykv. muni svara ýmsu í ræðu hv. 6. landsk., og mun ég því ekki taka hana til rækilegrar meðferðar. En ég vil þó mótmæla því, sem hann sagði, að Reykjavík hefði í þessu efni sérstaka aðstöðu, því að hún hefði umsetningargjaldið umfram aðra kaupstaði. Þetta gjald hafði áður verið lagt á annarsstaðar og þyngra en hér. Mér er nær að halda, að það hafi t. d. verið gert í bæjarfélagi því, þar sem hann er búsettur. Þetta gjald hefir víða verið lagt á mjög freklega, jafnvel á stofnanir, sem höfðu haft mikinn halla á árinu. En þetta gjald hefir þó ekki verið lagt á nema sem neyðarúrræði til bráðabirgða, og það er ekki miðað við þær reglur, sem skattheimta á að hyggjast á. Þá er það ekki heldur rétt hjá hv. 6. landsk., að Reykjavík hafi betri aðstöðu en aðrir staðir að því er snertir ríkisfyrirtæki, því að hvergi, ef til vill að Siglufirði undanteknum, hafa ríkisfyrirtæki útrýmt einkafyrirtækjum í jafnríkum mæli og í Reykjavík.

Þá er það rangt, sem hv. þm. sagði, að ríkið hefði aðstoðað Reykjavík umfram aðra kaupstaði. Reykjavík hefir líklega mest allra kaupstaða staðið sjálf undir sínum gjöldum. Ríkið hefir einmitt orðið að styðjast við Reykjavík, en ekki öfugt.

Þá vil ég þakka hv. 6. landsk. fyrir yfirlýsingu þá, sem hann gaf og bæði var sönn og merkileg. Hann lýsti yfir því, að fjárhagur Reykjavíkur væri betri en flestra eða allra annara bæjarfélaga. Vildi hann með því forsvara, að löggjöfin um hina nýju tekjustofna næði ekki til Reykjavíkur. - Það er nýtt að heyra slíka yfirlýsingu frá Alþfl.manni. Ég hefi oft orðið að mótmæla óhróðri þeirra um fjárhag Reykjavíkur, t. d. a. m. k. 20 sinnum á fjölmennum mannfundum í sumar, því að flokksstj. lagði stuðningsmönnum sínum upp í hendurnar sóknarskjal, þar sem tíndar voru til uppspunnar röksemdir um herfilegan fjárhag Reykjavíkur og því haldið fram, að hún væri verst stæði bærinn á landinu og væri í þann veginn að sliga landið, vegna þess, hve henni væri illa stjórnað. Nú kemur þessi Alþfl.maður fram á sjónarsviðið og segir sem er, að Reykjavík muni vera fjárhagslega einhver bezt stæði bærinn á landinu. Þetta er rétt, og stafar einmitt af því, að sá meiri hl., sem stjórnar bænum, eru forsjálir menn, en eiga ekkert sammerkt við flokksmenn hv. 6. landsk.