25.11.1935
Neðri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (3723)
165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps
Páll Zóphóníasson:
Ég ætlaði að svara hv. 7. landsk. nokkrum orðum, en hann er nú því miður ekki staddur í d. Hann vildi halda því fram, að ég hefði sagt, að menn væru ekki dómbærir um önnur mál en þau, sem snertu þeirra eigin buddu. Hann kvaðst þekkja þá menn, sem sitja í sýslun. Skagafjarðarsýslu, og kvað óhætt að láta þá dæma í þessu máli sem öðrum. Ég þekki líka þessa menn og vantreysti þeim engan veginn. En svo sagði hv. þm., að eftir frv. væri það á valdi gjaldenda sjálfra að ákveða, hvort þessi gjöld yrðu lögð á eða ekki. Það væri þungamiðja frv. Þess vegna hefði það sérstöðu meðal þeirra samkynja mála, sem hér lægju fyrir, og því bæri að samþ. hana. Þó vill hann láta 5 menn í sýslun. dæma í málinu, enda þótt það komi þeim ekki við persónulega eða þeirra hreppsbúum. Þetta er engin samkvæmni. Ef hann væri samkvæmur sjálfum sér, myndi hann fylgja minni till.
Annars vil ég taka það fram, út af ósk hv. 7. landsk. um, að ég taki brtt. mína aftur, að hún verður tekin aftur af sjálfu sér, ef hv. flm. verða við ósk minni um að taka frv. aftur. Við getum sætzt á það, ef þeir vilja.