25.11.1935
Neðri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í C-deild Alþingistíðinda. (3725)

165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps

Jónas Guðmundsson [óyfirl.]:

Mér þykir leitt, að hv. 6. þm. Reykv. er farinn út úr d., en í þeirri von, að hann kunni að slæðast inn aftur, áður en ég er búinn að ljúka máli mínu, ætla ég að geyma að svara honum þangað til síðast.

Hv. 7. landsk., sagði, að það væri óvenjulegt að leggja gjald á án þess að það verði borið undir þá, sem eiga að borga það. En ég vil nú spyrja þingheim að því, hvenær það er yfirleitt borið undir þá, sem eiga að borga, þegar gjöld eru lögð á. (PHalld: Í kosningum). Í kosningum, segir hv. 5. þm. Reykv. Já, það er nú svo, að í kosningum er eitt og annað sagt, og þá er það vanalega svo, að enginn vill vera með í því að leggja gjöld á menn, heldur þykjast allir vilja létta þeim af mönnum. - Ég tel hæpið að láta atkvgr. á stóru svæði skera úr um það, hvort sveitarfélagið má leggja gjaldið á eða ekki. Því þó kaupstaðirnir séu fylgjandi því, þá getur sambúðin milli kaupstaðanna og sveitarfélaganna verið þannig, að það yrði fellt. Og þar sem það þarf mikinn meiri hl., þá geta kaupstaðirnir þannig verið útilokaðir frá því að leggja gjaldið á, þó það sé eindreginn vilji þeirra, sem í kaupstöðum búa. Þá er það betra, að hver kaupstaður komi með sín frv. Ég get sagt fyrir mig, að ef hin almenna till. verður felld, þá mun ég koma með sérstök frv. fyrir Seyðisfjörð, Neskaupstað, Fáskrúðsfjörð, Búðardal og jafnvel fleiri staði. Því eins og menn vita, þá liggur við, að á Austfjörðum sé algert hallæri, því atvinnan hefir brugðizt þar, og fólkið veit ekki, á hverju það á að lifa. Ég vænti þess, að hinar einstöku till. verði samþ., ef heildartill. verður felld. Ég get sagt það, að ef borið verður fram frv. fyrir kauptúnið í Stykkishólmi, en það sendi menn til þingsins til þess að reyna að fá lausn á þessu vandamáli kauptúnsins, þá mun ég greiða atkv. með því.

Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að sjálfstæðismenn hefðu sýnt fram á þörfina á því að leggja þetta gjald á. Það getur verið, að þeir hafi gert það í ræðum sínum, en þeir hafa ekki borið fram á þingi neitt frv. um það. Ég man, að hv. 5. þm. Reykv. benti á það undir umr. um tekjuskattsfrv. á þinginu í fyrra, að með því væri gengið á rétt sveitarfélaga og bæjarfélaga til þess að afla sér tekna. En þeir hafa aldrei borið fram neitt frv. um þetta. Alþfl. viðurkemur, að það sé rétt, sem hv. 5. þm. Reykv. benti á, en nauðsyn brýtur lög. Ég viðurkenni, að brtt. þær, sem bornar eru fram við 3. umr. við þetta Sauðárkróksfrv., sem verið hefir á döfinni síðan í fyrravetur, geta verið ófullkomnar og ekki nægilega skilmerkilegar, en frv. á eftir að fara í gegnum Ed., og þó þessar brtt. komist héðan úr d., þá má breyta þeim til batnaðar í Ed., ef þingið vill á annað borð veita bæjunum þennan tekjustofn, sem er þó aðeins bráðabirgðalausn.

Hv. þm. Snæf. sagði, að honum væri það ánægjuefni, að við Alþfl.menn hefðum gengið inn á að leggja á óbeina skatta í staðinn fyrir beina skatta. En ég svara honum því, að nauðsyn brýtur lög. Beinar tekjur eru nú svo miklu minni en áður, vegna ástæðna, sem við getum ekki ráðið við, því það eru utanaðkomandi áhrif, sem eru þar að verki. Er nokkur, sem treystir sér til þess að mæla gegn því, að þegar tekjurnar lækka hjá þeim, sem eiga að bera beinu skattana, þá skapist sú nauðsyn, að breytt sé til um tekjuöflunarleið? Ég vil því skora á sjálfstæðismenn, að þeir láti það ekki á sannast, að þeir hverfi frá sinni eigin stefnu í skattamálum, og ég vænti því þess, að Sjálfstfl. fylgi frv.