25.11.1935
Neðri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í C-deild Alþingistíðinda. (3730)
165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps
Gísli Sveinsson [óyfirl.]:
Herra forseti! Þessar aths. einstakra hv. þm. verða svo langar, að jafnvel þeir þm., sem eiga fullkominn rétt til ræðutíma, kinoka sér við að nota hann. Sé ég mér ekki fært, ef fresta á fundi eða slíta kl. 4, eða á venjulegum tíma, að byrja hér á neinni ræðu, þar sem líka búið er að grauta svo í málinu, að ekki kemur til mála, að það verði afgr nú, né heldur að unnt sé að segja álit sitt í fáum orðum. Ég vil því láta mér nægja nú að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann fresti umr. og taki málið nú út af dagskrá, til þess að n. þeirri, sem um það hefir fjallað, og einstökum hv. þm. gefist kostur á að taka málið allt til nýrrar yfirvegunar í heild og sameina sig um afgreiðslu þess. Ég mundi færa glögg rök fyrir nauðsyn þessa, ef ég vildi nú eyða til þess tíma, en það vil ég ekki gera, og endurtek ósk mína við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá nú, svo að tími og tækifæri gefist til yfirvegunar og gagngerðrar breyt. á frv. þessu.