10.12.1935
Efri deild: 91. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í C-deild Alþingistíðinda. (3742)
165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps
Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):
Mér skildist hv. frsm. meiri hl. leggja fullt svo mikla áherzlu á það, að ýms sveitarfélög væru illa stödd í landinu, og jafnvel verr stæð en Sauðárkrókshreppur, og því væri ekki ástæða til þess að hjálpa honum, eins og hitt, að fela stj. að undirbúa þessi mál fyrir næsta þing. Annars þýðir ekkert í þessu máli að vera að vitna til þess, að ýmsir aðrir hreppar séu illa stæðir. Það bætir ekkert úr hinni brýnu þörf Sauðárkróks. Það mun vera rétt hjá hv. þm., að hreppsfélög á Austurlandi hafi orðið að leita til ríkisins um stuðning. Ég trúi því þó tæplega, að það sé meining hv. frsm. meiri hl. fjhn. og annara andstæðinga frv. að láta Sauðárkrókshrepp heldur fara þá leið, sem hann vitanlega getur farið samkv. lögum, en að veita honum leyfi til að taka þetta umbeðna vörugjald. Slíkt hélt ég að væri ólíkt umsvifameira og leiðinlegra, því að eins og kunnugt er, eru miklar krókaleiðir við það. Ég hefði því haldið, að það væri öllu nær að lofa sýslufélaginu að hlaupa undir bagga með hreppnum í þetta sinn. Annars finnst mér, að vel megi snúa röksemdafærslunni gegn þessu frv. við og segja, að af því að undirbúa á löggjöf um þessi efni mjög fljótlega, þá sé alveg sjálfsagt að leyfa hreppsfélagi Sauðárkróks að fara þessa leið, sem það biður um, til bráðabirgða.
Þá er og enn ein ástæða, sem mælir með því, að nú þegar sé hlaupið undir bagga með þessu fátæka hreppsfélagi, sem fyrir hvern mun vill bjarga sér sjálft, en hún er sú, að Alþingi hefir þegar gengið inn á þá braut að hlaupa undir bagga með mönnum áður en þeir eru orðnir „insolvent“, og á ég þar við kreppulánasjóðslögin. Þau eru ekki fyrir þá, sem orðnir eru „insolvent“, heldur til þess að hjálpa þeim, sem geta bjargað sér sjálfir með dálítilli aðstoð.
Að síðustu vil ég undirstrika það, að mér finnst fullt svo heiðarlegt að lofa þessu héraði, sem óskar þess að mega standa undir byrðum sínum sjálft, að fá þetta umrædda leyfi, eins og knýja það til þess að leita til ríkisvaldsins um aðstoð þess. Það er því í fyllsta máta óhyggilegt af Alþingi að slá hendinni á móti þeim óskum, sem í frv. felast.