22.02.1935
Neðri deild: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (3754)

11. mál, sveitarstjórnarkosningar

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Hv. þm. Snæf. hefir nú látið í ljós, hvað vakti fyrir n., sem flutti þáltill. á aukaþinginu 1933, sem þessi breyt. á sveitarstjórnarkosningum byggist á. Og það kemur skýrt fram hjá honum, eins og það kemur líka skýrt fram í þáltill., að það var alls ekki meiningin að færa löggjöfina í þessu efni inn á það svið, að það yrðu fyrirskipaðar hlutfallskosningar í hreppsnefndir í sveitum landsins. Heldur er það skýrt afmarkað í þessari till., að meining n. sé, að hlutfallskosningar séu fyrirskipaðar í kaupstöðum og þorpum, en aftur heimild sem allra frjálslegust um það í hreppum landsins. Þetta kemur vitanlega til af því, að það eru ýmsir agnúar og erfiðleikar á því í fámennum hreppum að koma við slíku kosningafyrirkomulagi, sem auk þess hefir allverulegan kostnað í för með sér, prentun seðla og ýmiskonar umbúnað, sem að öllu leyti á að vera eins og við kosningar til Alþingis. Þess vegna finnst mér sjálfsagt að fara eftir því, sem þáltill. felur greinilega í sér, og ganga ekki lengra í þessu efni heldur en að heimila hlutfallskosningar, ef óskir koma fram um það efni sérstaklega, en lofa hreppunum að haga sínu kosningafyrirkomulagi að öllu leyti eftir því, sem fyrir er mælt, annaðhvort að láta kosningu fara fram í heyranda hljóði eða leynilega eftir fyrirhafnarminna og óbrotnara fyrirkomulagi en hér er gert ráð fyrir. Ég veit ekki annað en að þetta vekti ekki einungis fyrir þeim, sem báru fram þáltill., heldur einnig fyrir þeim, sem guldu henni jákvæði sitt á þinginu 1933.

Ég ætla, að mönnum úti um sveitir landsins komi það kynlega fyrir, ef á að þröngva upp á þá kosningafyrirkomulagi, sem hér er gert ráð fyrir, þó að hinsvegar sé ekkert á móti því, og sjálfsagt, ef fyrir eru óskir um, að slík kosning sé viðhöfð, að það sé heimilt að viðhafa hlutfallskosningar.

þess er því að vænta, að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, og það því fremur, sem í henni eiga sæti nú sumir af þeim, sem stóðu að þáltill., færi nú þetta til leiðréttingar til samræmis við það, sem þeir ætluðust til og þingið ætlaðist til, þegar þáltill. var samþ. á aukaþinginu 1933. .

Í grg. fyrir þáltill. mælist n. til þess við þá stj., sem framkvæmdi þessa þál., að hún léti undirbúa þessa löggjöf með svipuðum hætti og kosningalögin til Alþingis, þannig, að menn úr stærstu stjórnmálafl. hefðu undirbúning þessara laga með höndum.

Ég veit ekki vel um, hvernig þessu hefir verið hagað, en eftir því, sem ég hefi frétt, hefir einum sósíalista, Vilmundi Jónssyni landlækni - ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti - verið falið að undirbúa þetta mál. M. ö. o., gersamlega gengið á svig við það, sem ætlazt var til í till., sem hv. þáv. þm. N.-Ísf., Vilmundur Jónsson, stóð að, að löggjöfin yrði undirbúin á sama hátt og kosningalögin til Alþingis.

Það er annað atriði, sem ég vil einnig benda á, en það er, að einn höfuðtilgangur með þessari breyt. á kosningalögunum er að færa löggjöfina til samræmis við þær breyt., sem gerðar voru á kosningalögunum til Alþingis, þannig, að lýðræðið fái betur að njóta sin. En mér finnst, að a. m. k. í einu atriði í þessu frv. sé alveg gengið í þveröfuga átt, og það er breytingin á þeirri tilhögun, sem verið hefir um kosningar sýslunefndarmanna í hreppunum. Eins og kunnugt er, eru þeir kosnir með þeim frjálsmannlega hætti, að þeir eru kosnir á almennum hreppsfundi, sem haldinn er í sambandi við manntalsþing að vor eða sumarlagi. Samkv. þessu frv. er kosning þeirra færð yfir á það þrönga svið, að taka þennan kosningarrétt af kosningabærum mönnum og leggja hann í hendur þriggja, fimm eða sjö manna í hverjum hreppi, eftir því hvað viðkomandi hreppsnefnd er fjölmenn, en tala þeirra er mismunandi innan þessara takmarka. Þetta finnst mér ganga gersamlega í bág við þá stefnu, sem yfirleitt hefir verið hér í þeim málefnum, sem snerta kosningar, hvort heldur þær eru til Alþingis, í sveitarstjórn. bæjarstjórn eða annað, sem því er skylt. Ég vildi því ennfremur beina því til n., að þetta atriði yrði fært til lagfæringar og látið lúta þeim sömu lögum, sem gilt hafa í þessu efni að undanförnu.

Ég vil ennfremur benda á eitt atriði, sem snertir mitt kjördæmi sérstaklega. Það er svo ákveðið í lögum um lögreglustjóra á Akranesi, að í því tilfelli, sem hreppsnefnd kýs þannig, að hann hafi oddvitastörf á hendi, er hann atkvæðisbær í hreppsnefndinni. Nú er svo gert ráð fyrir í þessu frv., að því er mér skilst, að þetta ákvæði í lögum um lögreglustjóra sé niður fellt, og atkvæðisrétturinn í þessu tilfelli af honum tekinn, því að í 2. málsgr. 28. gr., þar sem talað er um afstöðu bæjarstjóra eða borgarstjóra til bæjarstjórnar, er það tekið fram, að hann hafi ekki atkvæðisrétt nema hann sé kosinn í bæjarstjórn, og í 3. málsgr. sömu gr. stendur, að þegar svo stendur á, að lögreglustjóri eða bæjarfógeti gegna bæjarstjórastörfum í bæjarstjórn eða oddvitastörfum í hreppsnefnd, fari um atkvæðisrétt hans samkv. ákvæðum 2. málsgr. sömu gr. M. ö. o.: hann hefir ekki atkvæðisrétt í málefnum hreppsnefndarinnar. Ég skal ekki segja, hvort þetta er í betra samræmi við tilgang þessa frv. en sú tilhögun, sem lög um lögreglustjóra á Akranesi gera ráð fyrir. En ég vildi biðja n. að athuga þetta, því að ekki hefir komið fram nein ósk þar heima fyrir um að þessu ákvæði í lögum um lögreglustjóra á Akranesi yrði breytt. Ég vil og leggja áherzlu á, að n. geri nauðsynlegar breytingar á fyrirkomulaginu um hlutfallskosningar, að þær verði ekki valdboðnar, og að einnig verði breytt til um kosningu sýslunefndarmanna. Ef ástæða þykir að breyta til frá þeirri tilhögun, sem nú er, þá vil ég einnig beina til n. að hafa til hliðsjónar þá tilhögun, sem nú er á þessum hlutum í sveitum landsins og allir virðast fella sig vel við.