22.02.1935
Neðri deild: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í C-deild Alþingistíðinda. (3776)

12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Þetta litla frv. er flutt til þess að taka fyrir þá heimild, sem er í l. til sölu þjóð- og kirkjujarða. Frv. þetta lá fyrir síðasta þingi, en náði þá ekki afgreiðslu, og höfum við því flutt það hér á ný.

Ég tel ekki þurfa fleiri orð um málið nú við 1. umr., en óska, að því verði vísað til landbn. að lokinni þessari umr.