22.02.1935
Neðri deild: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í C-deild Alþingistíðinda. (3777)

12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Hv. 2. þm. Reykv. kallaði þetta lítið frv. Það er rétt, að þegar miðað er við fyrirferð þess, má það kallast lítið, en hinsvegar fjallar það um stórmál, og ég get ekki látið þessa umr. líða svo hjá, að ég láti ekki fáein orð falla, þótt ég skuli ekki fara langt út í málið nú. Það gefst vonandi tækifæri til þess, þegar málið kemur úr n. Einni setningu í grg. frv. vil ég þó ekki láta ómótmælt. Þar stendur svo: „Mun vart orka tvímælis lengur, að lög þessi hafa ekki náð tilgangi sínum, en orðið til mikils ógagns.“

Mín skoðun, byggð upp af þeirri reynslu, sem ég hefi í þessum efnum í mínu héraði, og þótt víðar sé leitað, er sú, að naumast sé hægt að snúa sannleikanum öllu rækilegar við en gert er í þessari setningu. Því að alkunnugt er, að með l. um sölu þjóð- og kirkjujarða er stigið eitthvert stærsta sporið til aukinnar ræktunar og bættra húsakynna í sveitum landsins. Hvorttveggja er vitanlega undirstaða landbúnaðarins: Að jörðin sé ræktuð og skapaðir möguleikar fyrir því að gera hana það frjóa og arðsama, að hún verði notuð til lífsuppeldis fyrir þjóðina eftir kröfum hinna breyttu þjóðhátta hjá okkur, og bæta húsaskipunina þannig, að menn geti einnig í því efni fylgzt með kröfum breyttra tíma og tekið upp svipuð húsakynni og tíðkast nú í kaupstöðum og kauptúnum. Þegar þessa er gætt, þá er það grundvallarskoðun hjá mér, að löggjöfin um sölu þjóð- og kirkjujarða hafi verið heilladrjúg fyrir þjóðina. Ég skal ekki að þessu sinni færa dæmi, óhrekjandi rök fyrir skoðun minni í þessu máli. Það á frekar við við síðari umr., en það er auðvelt verk. Hitt skal ég viðurkenna, að í þessu hefir komið fram nokkur ágalli, sem sé sá, að sökum þeirra verðbreytinga, sem orðið hafa í landinu, og einkum þó orðið áberandi í því mikla róti, sem stríðið olli, hefir verð á jörðum allvíða hækkað mikið. En þegar svo afurðaverðið féll, án þess að jarðarverðið breyttist, þá stóð ekki jarðarverðið lengur í réttu hlutfalli við þá framleiðslumöguleika, sem á jörðinni voru. Þetta er auðvitað ágalli, sem benda má á. Hinsvegar er þessi galli hverfandi lítill miðað við kosti þá, sem lögin hafa haft í för með sér. Það er því síður en svo, að taka eigi fyrir þjóð- og kirkjujarðasölu. Hún er fyllilega réttmæt, og síður en svo, að taka beri fyrir söluna með öllu. Má ennfremur á það benda, að á síðasta þingi kom fram frv. til að bæta úr þessum galla, er ég hefi á minnzt, frv. um óðalsrétt. Frv. þessu hefir verið mikill gaumur gefinn síðan það kom fram. virðist mega ætla, að óðalsréttarfyrirkomulagið beri í sér mikla tryggingu fyrir umbótum á þeim göllum, sem fram hafa komið. Er það sannarlega lóð í skálina á móti því, að kippa að sér höndinni með sölu þjóð- og kirkjujarða og spyrna þannig á móti þróun í ræktun og húsaskipun.

Vonandi ber Alþingi það, er nú situr, gæfu til þess að samþ. frv. um óðalsrétt. Að þessu öllu athuguðu hefi ég ekkert á móti því, að málið fari í n., en vona, að sú hugsun, sem bólað hefir á undanfarið og kemur nú fram í frv.formi, fái þar þá útreið, að málið verði gersamlega látið daga uppi. Það er nú svo í okkar þjóðfélagi, bæði í sveitum sem annarsstaðar, og verður að telja það mikið mein, að allmikið los er á hugsunarhætti fólksins, og helzta ráðið hvað sveitirnar snertir til þess að menn uni þar við sitt það er ekki hægt að búast við, að menn uni þar „glaðir við sitt“ fremur en annarsstaðar - er, að ábúðarfyrirkomulagið færist í það horf, að ekki verði grafnar ræturnar undan tryggð fólksins við átthagana, en með afnámi l. um sölu þjóð- og kirkjujarða er stigið spor í þá átt að ala á rótleysi fólksins. Grundvallaratriðið í þróun sveitanna er, að einstaklingsframtakið fái að njóta sín með aðstoð ríkisvaldsins, þ. e. a. s., að sjálfsábúð aukist sem allra mest. Án þess er hætt við því, að starfi einstaklingsins og aðstoð ríkisvaldsins beri ekki hinn tilætlaða árangur. Þetta er mín óbifanlega skoðun.