22.02.1935
Neðri deild: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í C-deild Alþingistíðinda. (3781)
12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Mér virðist, að í þessu frv. gæti mjög sömu ófrjóu andstöðunnar, sem alltaf kom fram gegn þjóðjarðasölu frá því fyrst er farið var að berjast fyrir því máli, um aldamótin síðustu, og þangað til l. þau um sölu þjóðjarða og kirkjujarða voru sett, sem nú er gert ráð fyrir að nema úr gildi.
Hér er að vísu látið í veðri vaka, að sjálfsagt eigi að setja löggjöf um ábúð á þjóðjörðum á þessu eða næsta þingi. En hvers vegna þá ekki að setja þessi ábúðarl. fyrst, byrja á því, til þess að sjá svo, hvaða áhrif það hefði á söluna sjálfa? Af hálfu þeirra manna, sem vilja stöðva sölu þjóðjarða og kirkjujarða, hefir aldrei komið neitt fram, sem sýni og sanni, að sú leið sé rétt, en hin röng, að selja jarðirnar.
Hvers vegna eiga bændur að eiga eftirkaup við þing og stj. um ábúðarkjör á þjóðjörðum? Mér finnst, að bændur eigi kröfurétt á að fá að sjá, hvað þingið vill í þessu efni, áður en þeir eru útilokaðir frá því að geta eignazt jarðirnar.
Á það hefir réttilega verið bent nú við umr., hve ósanngjarnt það sé að segja, að l. um sölu þjóð- og kirkjujarða hafi orðið til ógagns. Að þau hafi ekki náð tilgangi sínum, getur verið a. n. l. rétt. En þá átti bara að gera ráðstafanir til þess, að tilgangi l. yrði náð sem fyrst og bezt. Það er réttur bænda í þessu efni, að að því sé unnið, að kostir þjóðjarðasölunnar fái notið sín sem bezt. Fyrir síðasta Alþ. lá frv., sem gekk í þá átt.
Annars er nokkuð mikið samræmi í þeirri tvennskonar grg., sem er fyrir þessu frv. Hin venjulega grg. er í hreinni samhljóðun við hina grg., það, að flm. frv. eru allir kaupstaðabúar, menn, sem ekki geta talað, aðstöðu sinnar vegna, frá sjónarmiði bændanna sjálfra. Þó að einn þeirra sé ráðunautur Búnaðarfél. Íslands, þá hefir hann samt ekki skilning á þessum hlutum, og hefir ekki sýnt annað en að hann væri á þeim leiðum, sem stefna að því, að ríkið eigi allt, en einstaklingarnir ekkert. Stjórnarliðið hefir vitanlega ekki getað fengið þá bændur, sem sæti eiga á alþ., til þess að gerast meðflm. að þessu frv. Þeir hafa auðvitað veigrað sér við því að ganga svo algerlega í berhögg við hagsmuni stéttar sinnar.
Ég verð nú að segja það, að ég tel, að þetta frv. eigi alls ekkert erindi til n., né að það eigi að halda áfram í þinginu. En þeir, sem að því standa, hafa sjálfsagt tryggt sér framgang þess, svo að það verði ekki heft á neinn hátt. Ég mun samt sem áður sýna afstöðu mína til frv. með því að greiða því ekki atkv., að það fari lengra en til þessarar umr., því að þetta mun vera hugsað sem fyrsta sporið á þeirri braut, sem samkvæmt kenningum þessara manna á að fara, sem stefnir að því, að ríkið eigi allar jarðeignir í landinu. Fyrst á að stíga þetta spor, að stöðva sölu þjóðjarða og kirkjujarða. Svo á að stíga hitt sporið, að ná af bændum eignarheimild á jörðum þeim, sem þeir nú eiga. Þetta er vítisstefnan í landbúnaðarmálum, sem ráðunautur Búnaðarfél. Ísl. hefir gerzt talsmaður fyrir, og fallið þar á sveif með sósíalistum, sem allt vilja taka af öllum.