23.02.1935
Neðri deild: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (3791)

12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Hæstv. forseti þarf ekki að minna mig á það, sem ég veit, að ég hefi aðeins rétt til þess að gera örstutta aths., en mér virtist, að hv. 2. þm. Árn. vildi draga í efa, að komið hefðu réttilega fram í ræðu minni ummælin, sem ég las upp úr þingtíðindunum 1933 eftir þáv. þm. Skagf., Steingrími Steinþórssyni, viðvíkjandi óðalsréttinum. Ég held, að þau standi þar svo skýrum stöfum þessi ummæli (BB: Ég var ekki að véfengja það.), að ekki verði á þeim villzt. Og það er vitanlega ekki hægt að leggja aðra merkingu í þessi ummæli heldur en þá, sem í þeim felst, að þau eru frekleg meðmæli með óðalsréttinum eins og hann var fram borinn í frv. því, sem lá fyrir síðasta þingi, og mun sennilega bráðum koma fyrir þetta þing, þar sem hann telur aðra höfuðleiðina til þess að lagfæra ágalla sjálfseignarbúskaparins, sem að mínum dómi er gert miklu meira úr en rétt er, einmitt vera þá, að lögleiða óðalsrétt á jörðum. Þessi ummæli standa óhögguð, og er ekki hægt fyrir hv. 2. þm. Árn. að draga neitt úr þeim, enda býst ég við, að Steingrímur Steinþórsson stæði við þau nú.

Ég ætla að endurtaka það, sem ég minntist á áðan, er hv. 2. þm. Reykv. var fjarverandi, en nú sést hann þarna í gættinni, að hann var að tala um, að óðalsréttur væri miðaldafyrirkomulag, sem ekki ætti við nú á tímum, og framsóknarmenn fallast á þetta með honum, þeir vilja ekkert gera með það, sem Steingrímur Steinþórsson hélt fram hér á þingi og ég hefi lesið upp, þeir vilja vinna á móti sjálfsábúðinni með því að taka fyrir sölu á þjóðjörðum og kirkjujörðum. Ég skal ekki fara út í það að ræða þessa breyttu afstöðu Framsfl., en það stendur óhaggað, sem Steingrímur Steinþórsson hélt fram, að við getum bætt úr ágöllum sjálfsábúðarfyrirkomulagsins með því að lögfesta óðalsrétt. Eftir að sú hugmynd var fram komin er því vitanlega enn minni ástæða en áður fyrir því að banna sölu þjóðjarða og kirkjujarða. Og þó finna megi galla á sjálfsábúðinni, sem meira er gert úr en rétt er, þá vita það allir menn, að svo mikið gott hefir af henni leitt, að það er óþarft að ráðast gegn henni nú. Það eru ærið nógir erfiðleikar, sem landbúnaðurinn á við að stríða, þó ekki sé ráðizt að höfuðvígi hans, sjálfsábúðinni, nú þegar verst gegnir, en þetta er það, sem gert er með þessu frv. Og það er eftirtektarvert, að til þessa er einmitt valið það árferði, þegar erfiðleikarnir harðna hvað mest og vonleysi gerir vart við sig meðal bænda. Þá er gengið á lagið; erfiðleikarnir eru notaðir til þess að knýja fram árás á höfuðvígi landbúnaðarins, sjálfsábúðina. Það er líka eftirtektarvert, að hér er farið á stað með þetta frv. um að banna sölu þjóðjarða og kirkjujarða, áður en borin er fram till. um að tryggja ábúð á þessum jörðum með erfðafestu. Þeir vilja ekki bíða eftir neinni reynslu í því, hvort erfðarétturinn er nokkur úrbót fyrir landbúnaðinn. Nei, áður en nokkur reynsla er fyrir hendi, ætla þeir að knýja fram þetta sölubann. Og ég býst við, að hér verði ekki staðar numið, ég býst við, að einnig eigi að koma á undan erfðaábúðinni, að ríkið fari að seilast eftir þeim jörðum, sem nú eru í sjálfsábúð, og það, sem styrkir mig í þeirri trú, eru ummæli hv. 2. þm. Árn., þar sem hann var að gera lítið úr eignarréttarfyrirkomulaginu. En ég vil spyrja: Á hverju er þjóðfélagið byggt? Það er byggt á eignarréttinum. Á hverju byggist okkar stjórnarskrá? Er það ekki eignarréttarfyrirkomulagið? Jú, og það er þetta fyrirkomulag, sem verið er að ráðast á með því að koma í veg fyrir það, að einstaklingar geti aftur eignazt þær jarðir, sem kirkjuvald og konungsvald á sínum tíma drógu undir sig með röngu úr höndum þjóðarinnar. Það er verið að koma í veg fyrir það, að þessar jarðir komist aftur í hendur einstaklinganna. Það er m. ö. o. verið að vinna gegn því, sem stjórnarskráin mælir fyrir.