23.02.1935
Neðri deild: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (3794)

12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Ég ætla að nota tækifærið, úr því hv. 2. þm. Reykv. er hér viðstaddur, að endurtaka það, sem ég skaut til hans áðan, að mér finnst undarlegt, ef það eiga að vera fullkomin heilindi til bænda í málflutningi hans. Hann sækist sjálfur eftir því að búa í sínu eigin húsi, en vill aftur á móti fyrirlíta þrá sveitabændanna til þess að eiga þær jarðir, sem þeir búa á. Hann segir, að það sé ekki sambærilegt að eiga jörð og hafa leigulóð í kaupstað, en það er ekki rétt hjá honum, því réttur sá, sem hann hefir á leigulóðinni, er alveg sá sami og eignarréttur á jörð í sveit. Ef lóðin hækkar í verði, þá má hann selja réttinn hverjum sem hann vill, ef hann aðeins sér sér hag í því. Hann býr við það skipulag, þar sem hann hefir sama sem eignarrétt á lóðinni, en þó mundi hann hafa keypt hana, ef hann hefði fengið það. Því til sönnunar má benda á það, að þegar hann byggði olíu- og benzíngeymana hér á næsta nesi, þá vildi hann ekki annað heyra en að fá landið keypt. Hann sætti sig ekki við að fá það á leigu; hann varð að fá það til fullrar eignar.

Þessi sami hv. þm. var að tala um það mikla tjón, sem ríkið hefði orðið fyrir við að selja jarðirnar. Hann tekur ekki með í reikninginn þær miklu framfarir, sem sú jarðasala hefir orsakað í sveitum landsins, bæði í ræktun og byggingum.

Mér finnst framkoma hv. þm. sanna það eitt, að hann hefir ekki þekkingu á því, sem hann er að ræða um, en hefir hinsvegar vilja á því að ræna bændur eignarréttinum á jörðum sínum og taka frá þeim hvötina til þess að vera sjálfstæðir.