23.02.1935
Neðri deild: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (3797)
12. mál, sala þjóðjarða og lög um sölu kirkjujarða
Bjarni Bjarnason:
Ég mun ekki viljandi afbaka mál manna í þessari hv. d. til ímyndaðra hagsmuna fyrir málstað minn, hvað sem öðrum þykir sæmandi að gera.
Hv. 6. þm. Reykv. vildi ekki skilja það, sem ég sagði áðan um leiguíbúðirnar í kaupstöðunum. Það er augljóst mál, að þegar menn fá ekki leigt lengur en í mesta lagi til eins árs, þá skiptir það miklu máli fyrir manninn, sem er í íbúðinni og gjarnan vill vera þar, hvort hann býr þar með þeirri vitund að mega vera kyrr eða ekki.
Ennfremur er annað atriði, sem gerir það að verkum, að menn fá hvöt til þess að byggja sér hús, og það er t. d., ef þeir þurfa að borga meira í húsaleigu heldur en það kostar að standa undir þeirri fjárhæð, sem þarf til þess að byggja jafngóða íbúð. Þess vegna verður það að vera tryggt í öllum slíkum leigumálum, að leigan sé ekki hærri en svo, að hún fari ekki fram úr þeirri fjárhæð, sem þarf til þess að standa straum af verði eignarinnar. En ég efast um, að hv. 6. þm. Reykv. hafi nokkur gögn í höndunum, sem sanna það, að leigumáli húsa hér í Rvík sé álíka haganlegur fyrir menn fjárhagslega eins og yrði, ef þeir gætu fengið lán til þess að byggja sér hús fyrir. Ég minntist á þetta áðan, af því að mér fannst ranglátt að tala um þetta svo einhliða sem gert var, því menn vildu heldur eiga hús en leigja íbúðir hjá öðrum. Þá er líka jafnranglátt að bera saman einstakar jarðir í sjálfsábúð og leiguábúð. Það skiptir vitanlega öllu máli, hvað ábúðarrétturinn er vel tryggður. Menn mega ekki vera svo einstrengingslegir, ég vil segja fávitrir í sinni röksemdafærslu að sjá þetta ekki. Þegar um það er að ræða, að ábúðarrétturinn er jafnvel tryggður, þá fyrst getum við borið saman og metið, hvort sé meiri hvöt fyrir einstaklingana til framkvæmda, afnotaréttur aðeins eða eignarréttur.