18.12.1935
Sameinað þing: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (381)

137. mál, fjáraukalög 1933

Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:

Það er sagt, að sá sé ekki allheimskur, sem þegja kann. Ég hygg, að ef hv. 9. landsk. hefði kunnað að þegja um þetta mál, þá hefði það verið talið honum til skynsemdarauka, en hann hefir nú ekki borið gæfu til þess fremur en svo margs annars, sem honum er þörf á.

Ég hélt satt að segja, að það þyrfti talsverða einurð til þess fyrir menn, sem vitanlegt er, að þjóðfélagið verður að standa á verði fyrir með talsverðum kostnaði og mikilli varúð til þess að tryggja það, að þeir gangi ekki á rétt annara, ekki aðeins með venjulegri frekju, heldur með ofbeldisverkum, sem gjarnan geta kostað líf manna, — það þarf einurð fyrir mann úr þeim flokki að vaða hér uppi með jafnósönnum ásökunum eins og hv. 9. landsk. gerði í því máli, sem honum var trúað fyrir illu heilli og óverðskuldað að leggja hér hlutlaust fyrir.

Ég þarf ekki að rifja upp þá atburði, sem gerðust hér fyrir þremur árum og eru einna ljótastir og ískyggilegastir af öllum þeim atburðum, sem hér hafa skeð í manna minnum. Þegar stofnað var til að misþyrma mönnum og limlesta og jafnvel myrða og talsvert af þessu var framkvæmt, a. m. k. að misþyrma og limlesta, og þeir, sem að þessu stóðu, höfðu fengið sinn dóm, þá var strax hlaupið til með samþykki allra annara en illræðismannanna að skapa öryggi í þessum bæ með því að kalla til lögreglu, og það held ég, að fyrst og fremst hafi verið gert fyrir forgöngu þáv. lögreglustjóra í Rvík á fyrsta stigi málsins, núv. hæstv. forsrh. landsins. Og það var virkilega gert af því, að það var ekki grunur, heldur vissa, að hér voru blóðþyrstir menn tilbúnir til hryðjuverka og til glæpa, og þeir höfðu sýnt það í verki, hvert innræti þeirra var. Og ég skal geta þess strax, að ég frétti til eins þokkapilts, sem hafði ekki kjark til þess að vera við þessi hryðjuverk, en hafði iðað í skinninu aftan við hina eins og bleyður gera, en svo á eftir kom hann á vettvang, þessi skepna í mannsmynd, til þess að geta séð fallinn val. Þessi maður var nýbúinn að slíta af sér messuskrúðann, það sýnir, að innræti mannsins var það sama og hinna, en þegar hann kom til, sá hann minni ummerki sinna flokksbræðra en hann hafði vænzt og vonað.

Það er engum minnsta vafa bundið, að ein fyrsta skylda hvers ríkis er að vernda líf og limi borgaranna. Það dettur engu siðuðu ríki annað í hug en að því beri skylda til að vernda borgara sína og gera ráðstafanir til þess, að menn njóti þess réttar, sem l. áskilja þeim. Sá réttur er fyrst og fremst sá, að enginn annar maður með ofbeldi ráðist á þá til hryðjuverka, hvorki til þess að taka sér ímyndaðan eða virkilegan rétt sinn, og því síður, til þess að af algerðri árásargirni og ofbeldi að misþyrma mönnum og ganga á þeirra rétt, ekki aðeins hagsmunalegan, heldur líkamlegan. Það, sem gerðist 9. nóv. 1932, var ekkert annað en það, að nokkrir menn illa innrættir æstu upp fjölda manna, sem vitanlega var ekki hægt að heimta jafnmikla ábyrgðartilfinningu af. Þeir æstu þá beinlínis þangað til fólkið trúði því, að það væri að sækja rétt sinn og ætlaði að taka þann rétt með valdi. En þessi réttur, sem það ímyndaði sér, að það hefði, var að ganga yfir aðra menn með ofbeldi og drepa þá, ef með þyrfti. Þessir menn voru svo blygðunarlausir, að þeir hafa haldið þennan dag hátíðlegan. Þeir byrjuðu á því að gera þennan dag að hátíðisdegi, og meira að segja hafa þm. hlaupið úr þessum sal til þess að halda minningu þessa þokkalega dags. En þeir kváðu hafa sligazt undir þessari tilraun sinni, því að fólkið hefir ekki viljað taka undir þessa gleði. Það hefir orðið einskonar smánarblettur, sem þessir menn eru að lokum flúnir undan, en það er sýnilegt, að það eru þó til svo ófyrirleitnir menn í þessum hópi, að þá langar til að rifja þetta upp, menn, sem sjá ekki smán sína. Og það er það, sem hér hefir skeð, þegar þessi svokallaði hv. 9. landsk. dregur þetta mál alveg að óþörfu inn í d. Ég hefi yfir höfuð hvorki utan þings né innan sagt mikið um þessa atburði, og ég stóð ekki upp til þess að deila um þetta mál, því að þetta er ekki umdeilanlegt efni, það er svo vitanlegt, að hryðjuverk og ofbeldi eru fyrirlitlegir hlutir, og þeir hafa líka fengið sinn dóm hjá dómstólunum. Ég stóð upp til þess að veita þessum hv. þm. áminningu, þó að það hefði fremur verið verk hæstv. forseta. En þegar hingað koma menn með þann strákskaparsið að hrósa hryðjuverkum og ódæðisverkum og snúa þeim til ádeilu á saklausa menn, þá vil ég láta þá vita, að ég hefi dýpstu andstyggð á slíku framferði.