01.03.1935
Neðri deild: 17. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í C-deild Alþingistíðinda. (3829)
29. mál, sandgræðsla
Hannes Jónsson:
Mér finnst, að það sé ekki fjarri lagi, að þar sem búnaðarþingið stendur yfir, þá fái það tækifæri til þess að athuga þetta mál. Það er óviðeigandi, að slíkum málum sé ráðið til lykta án þess að Búnaðarfél. Ísl. fái að láta uppi álit sitt um þau. Það er næstum því ósvífni gagnvart Búnaðarfél. Ísl., þar sem búnaðarþingið stendur nú yfir, að flytja þetta mái hér. Flm. hefði áreiðanlega getað komið skoðun sinni fram á búnaðarþinginu.
Ég veit ekki, hvað fyrir honum eða stjórnarflokkunum vakir um Búnaðarfél. Ísl. Ég get búizt við því, að það eigi að fara fram aflimun á Búnaðarfél. og að það eigi að „krukka“ í það smám saman og rifa það alveg niður að lokum. En mér finnst, að það sé meiri ástæða til þess að sameina þau verkefni, sem Búnaðarfél. Ísl. hefir með höndum, en ekki slíta þau út úr samhengi, nema ef sú stefna á að vera uppi, sem reynir að eyðileggja Búnaðarfél.
Það hefir svo lítið verið athugað, hvort hægt er að sameina skógræktina og sandgræðsluna, að það er ekki viðeigandi að koma með frv., sem stefnir í þá átt. Það er sagt, að þetta eigi að draga úr kostnaðinum, en það er fjarstæða.
Forstjórastöðum fylgja oftast há laun, og ætti stj. að vita það. Og þó að það sé gefið í skyn, að þetta muni ekki verða til kostnaðarauka, þá liggur það í hlutarins eðli, að það mun frekar leiða til aukins kostnaðar. Þannig er þetta til orðið, enda komið frá þeim mönnum, sem minnstan skilning hafa sýnt á málum landbúnaðarins, og er því tæplega ástæða til þess að taka það alvarlega.