01.03.1935
Neðri deild: 17. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í C-deild Alþingistíðinda. (3831)
29. mál, sandgræðsla
Hannes Jónsson:
Það er gott, að hæstv. ráðh. getur friðað samvizku sína með því, að hann hafi verið að vinna gott verk með samþykkt þeirri, sem hann lét gera gagnvart Búnaðarfél. í vetur. En hann má vita, að hann hefir ekki enn talið þjóðinni trú um, að svo hafi verið. En þó að hæstv. ráðh. verði að hopa af þeim grundvelli, sem hann stóð á gagnvart Búnaðarfél., og málefni þess fái sæmilega lausn, getur hann ekki talið neinum trú um, að það sé honum að þakka; hjá honum lá allt annað til grundvallar.
Mér skildist hæstv. ráðh. telja óþarft að vera að ræða þessi mál hér, og er ég honum þar sammála um, að ástæðulaust sé og óviðeigandi, að þetta frv. nái fram að ganga, og því óþarft, að það fari lengra.