21.12.1935
Sameinað þing: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í B-deild Alþingistíðinda. (386)
137. mál, fjáraukalög 1933
Magnús Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég hefði kosið, að kl. hefði verið orðin 6 þegar ég byrjaði, og það er vegna þess, að núna kl. 6 hefir verið boðið út lögregluliði til þess að halda uppi reglu, og eru þeir sjálfsagt núna að klæða sig í „uniformin“.
Verður ekki betur svarað hv. 9. landsk., því er hann gusaði hér úr sér, og sveikst á þann hátt aftan að fjvn., sem fól honum að hafa hlutlausa framsögu og leggja til f. h. n., að frv. yrði samþ. Hann sveikst aftan að fjvn. og notaði framsögu sína til árása, sérstaklega á mig og hv. þm. G.-K., og get ég lýst því yfir, að það var ekki gert í umboði fjvn.
Öllum er kunnugt um, að þetta lögreglumál hefir verið notað til svívirðilegrar „agitationar“. Er merkilegt, að þeir, sem þá stöðu að ríkisstj. og gengu með til samþ. á l. þessum, geti látíð sér slíkar umr. sæma í þeim tilgangi að sverta fyrrv. ríkisstjórn. Það vita allir, hvernig stóð á því, að ríkislögreglan var sett á 1933, en hvernig stendur á nú? Nú er hér öflugt lögreglulið, en samt er verið að kalla saman lið til vara.
Ástandið er ekkert líkt og eftir 9. nóv. 1932, þegar margir lögreglumanna voru limlestir, og svo leyfir hv. 9. landsk. sér að koma hér fram með svívirðingar, — hann, þetta pólitíska rekald, sem hefir flækzt aftur og fram á milli flokka, en hver flokkur hefir orðið feginn að losna við hann, þegar hann hefir orðið þess var, að þar var aðeins maðksmogið rekald.
Til þess að sýna, að það voru ekki sjálfstæðismenn einir, sem stóðu að þessari lagasetningu, vil ég láta þingtíð. tala, og hirði ég ekki um, þó að líði nokkur stund áður en ég er búinn. Ég ætla þá fyrst að lesa upp kafla úr umr. eftir þáv. forsrh., Ásgeir Ásgeirsson, það er úr umræðuparti um lögregluna frá þingi 1933. „Lögreglustjórinn hafði hreyft því áður, í sumar sem leið, og óskað þess, að bæjarlögreglan væri aukin stórlega með varaliði. Hann fullyrti að það væri ekki öruggt að halda uppi reglu í bænum, nema slíkt varalið, sem væri skipað a. m. k. 100 mönnum, kæmi til“.
En hver var þá lögreglustjóri? Það var núv. hæstv. forsrh. Og er það í samræmi við skoðun hans þá, er hann nú kallar saman lögreglulið? Ef eitthvað kemur fyrir vill hann vera tilbúinn. Það er bezt, að hv. þm. G.-K. segi til um, hvort ekki var stofnað til varalögreglu 1932 með samþ. þáv. lögreglustjóra.
Til að sýna, hvernig þm. tóku undir þetta, ætla ég að lesa upp nafnakall í báðum deildum. Atkv. hafa fallið svo. Í Ed. sögðu já: IP, JakM, JónJ, JónÞ, MT, PHerm, PM, BSn, EÁrna, GL, HSteins, GÓ. — Nei sagði JBald, núv. forseti Sþ. aleinn.
Og þá er hér nafnakall við 3. umr. í Nd. Já sögðu: JÓl, JónasÞ, LH, MG, MJ, ÓTh, PHalld, PO, StgrS, SvbH, SvÓ, ÞorlJ, ÁÁ, BJ, BSt, BÁ, BKr, GÍ, HStef, HannJ, IngB, JJós, JAJ, JörB.
Nei sögðu: VJ, HG, HV.
Frv. samþ. með 24:3 atkv.
Það voru þeir einir jafnaðarmennirnir í deildunum, sem greiddu atkv. gegn frv., þar á meðal Haraldur Guðmundsson, sem nú er í stj., er kallar saman lögreglu til þess að vera við öllu búinn, ef eitthvað skyldi ske í verkfalli bifreiðastjóra. M. ö. o., allur þingheimur var sammála um að setja lögreglu á fót.
Það var gengið út frá því og þegjandi samkomulag um, að þegar lögreglan hóf starf sitt, yrði hún viðurkennd af þinginu, enda var því lýst yfir út af þál. frá hv. 2. þm. Reykv., sem hann flutti um að varalögreglan yrði uppleyst fyrir árslok 1933. og hann var þá alls ekki óánægður með, að hún yrði lögð niður aftur þegar ekki þætti hennar þörf. (HV: Fóru ekki fram greiðslur til hennar á árinu 1934?). Það skal ég taka fram, að einhverjar smávægilegar greiðslur fóru fram á því ári (ÓTh: Fara fram greiðslur nú?), og það var af því, að þeir voru sviptir atvinnu af þessum hv. þm.
Er ég tilbúinn að deila um það í þessum umr., sem hv. 9. landsk. hleypti tilefnislaust af stað með uppbelgingi og fítonsanda. Er gaman að sjá hann nú, því ekki hefir hann búizt við, að eftir nokkra daga yrði sú stj., sem hann styður, búin að setja af stað varalögreglu algerlega að tilefnislausu.