21.12.1935
Sameinað þing: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (391)

137. mál, fjáraukalög 1933

Gísli Sveinsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Ég kann ekki við annað en að láta nokkur orð falla um þetta mál áður en gengið er til hvílu, fyrst ég kvaddi mér hljóðs, þegar hvirfilbylurinn skall yfir þingið frá hv. 9. landsk. Málið er að vísu komið inn á nokkuð breiðan grundvöll, en hv. þm. hefir sjálfsagt ætlazt til þess, því að það, sem hann virtist hafa í huga, var aðeins nokkur skammaryrði til þeirra, sem staðið höfðu áður að því að halda uppi reglu hér í bænum, og sérstaklega til þeirra, sem áttu þátt í því, að stofnað var til varalögreglu hér. — (Forseti (JBald): Ég sé, að nokkrir þm. utan af landi eru að kveðja hér, og vil ég óska þeim og öðrum utanbæjarþm., sem seinna fara, góðrar ferðar, gleðilegrar hátíðar og nýárs).

Mér finnst það ekki tiltökumál, þótt þessi hv. um. rausi nokkuð, því að það er hans eiginleiki að láta nokkuð svarkalega, þegar hann fær ráðrúm til þess að tala. Það er að vísu dálítið einkennilegt, að hann skyldi nota þetta tækifæri á þennan hátt, því að hv. fjvn. hafði kosið hann til þess að vera frsm. í máli og hann hefði getað gert aths. við einstaka liði fjáraukal. án þess að koma svona hastarlega inn á þetta atriði eins og hann hefir leyft sér. Nú veit ég ekki, af hverjum þessi hv. þm. er sendur til þess að hreyfa þessu máli á þennan hátt; það getur verið, að það standi einhver á bak við hann, en ég get varla trúað, að hv. meiri hl. fjvn. sé hér að verki. Það getur líka verið, að það sé hann sjálfur, sem fundið hefir upp á þessu ráði, og þá hefir hann vitanlega gert það í forboði allra annara sæmilegra manna, því að engum dylst nú, að hann fór langt fram yfir það, sem honum var leyfilegt.

Þetta stafar ef til vill af þeim sökum, sem maður sagði mér, að mundi vera þessum hv. þm. eiginlegt, að þegar vonzka og gremja hefir safnazt fyrir í honum, þá verður hann að sprengja þetta út, og það verkar svo þannig á hann, að það er alveg eins og maðurinn sé að springa. Það er því ekki von á góðu, þegar þessi kost koma, og tel ég ekki, að aðrir hv. þm. þurfi að gefa því mikinn gaum, því að bæði hér á þingi og alstaðar annarsstaðar, þar sem menn koma nálægt honum, verða menn þess varir, að hvergi er hann mikilsvirtur. hér á þingi er eins og loftið í kringum hann sé óhollt og tómt, jafnvel myrkt, menn sneiða hjá honum, jafnvel hans eigin flokksbræður. Það lýsir manninum bezt. Það má því með fullum rétti segja að því er þetta mál snertir, að þessi skammaryrði hv. 9. landsk. í garð þeirra, sem stóðu fyrir því að halda uppi lögum fyrir 3 árum, séu ómerk, því að þetta mál er alvarlegt mál, og það hefir sýnt sig, að þeir aðrir hv. stjórnarþm. og hæstv. ráðh., sem talað hafa í þessu máli, hafa tekið þetta mál alvarlega, sem er rétt. Ég býst við, að hæstv. ráðh. hafi fundið sig nokkuð snortinn af því, sem hér hefir verið talað, og líklega hefir hann verið mest snortinn af sinni fortíð og nútíð, sem hlýtur að verða honum áhyggjuefni, og hann verður að sjálfsögðu að reyna að samræma nútíð sína, fortíð og framtíð í þessu efni. Það er fullvíst, að þegar þessi hæstv. ráðh. var lögreglustjóri, þá hrósaði hann sér af því að vera faðir varalögreglunnar. Ég taldi honum það og tel enn til lofs. Ég býst við, að hann hafi komizt að raun um, að nauðsynlegt var að auka lögregluna að miklum mun. En af sérstökum ástæðum, vafalaust pólitískum, snerist hann í þessu máli. því er svo komið, sem kunnugt er, að í dag eða á morgun geta komið fyrir mörg atvik, sem gera það að verkum, að það þarf á meiri lögreglu að halda heldur en þeirri, sem daglega er við hendina; það þarf ekki mikið út af að bera til þess, að sú lögregla, sem hér er á götum bæjarins daglega, sé algerlega ófullnægjandi. Það er ekkert athugavert við það, þótt þessi hæstv. ráðh. noti nú vald sitt til þess að tryggja og halda uppi lögum í bænum. Þetta er náttúrlega jafnsjálfsagt og eftir 9. nóv., þegar stjórnarvöldin gerðu það og hann tók þátt í því. Fyrir þetta var stj. löstuð, sérstaklega af einum flokki, og það var eðlilegt, því að sá flokkur var ekki flokkur þáv. ráðh., en ég er viss um, að Framsfl. var í hjarta sínu samþykkur því, að stofnuð yrði varalögreglu; það sýndi sig við atkvgr. um þau lög, sem komu á ríkislögreglu. En þeir ógæfusömu menn, sem stóðu að óeirðunum 9. nóv., gátu ekki verið ánægðir með stofnun ríkislögreglu eða yfirleitt lögreglu hér í bæ, til þess að skakka leikinn, þegar þá langaði til þess að stofna til óspekta og óeirða. Þetta voru þeir menn og sá flokkur, sem nú er samvinnuflokkur hæstv. ráðh., og fyrir honum hefir hæstv. ráðh. orðið að beygja sig. Er illt til þess að vita, því að hann hefir upplag til þess að halda lögreglumálunum í réttu horfi. Sósíalistar leiddust út í þessi heimskupör af ótta við kommúnistana, því að við þá eru þeir hræddir; þeir hlupu fram fyrir skjöldu kommúnistanna til þess að berjast við lögregluna. Það er því hinn mesti misskilningur að halda því fram, að 9. nóv. hafi bæjarstj. Rvíkur framið nokkuð það, sem gat gefið tilefni til þessa uppþots. Það er fullvíst, að bæjarstj. hafði fullt vald til þess að skipa þessu máli eins og hún gerði. Það orkar hinsvegar tvímælis, hvort það var vinsælt, sem hún gerði, eða ekki. Það er algerður misskilningur hjá hæstv. ráðh. og skoðanabræðrum hans í þessu máli, að nú sé allt öðru máli að gegna heldur en 9. nóv., vegna þess að það er ómögulegt að neita því, að ályktanir bæjarstjórna hafa sama gildi og eru að öllu leyti eins löglegar og það, sem Alþingi gerir. Sannleikurinn er sá, að þótt bílstjórar hafi gert verkfall, þá ráðast þeir ekki á Alþingi, því að þessi lög eru farin frá þinginu til hæstv. stj., og ég vil biðja hv. þm. og hæstv. stj. enn einu sinni að gæta þess, að þessi lög eru ekki fyrirskipun, sem þeir þurfa að fylgja, því að hér er aðeins um heimild að ræða. Þess vegna getur hæstv. stj. gert það, sem henni sýnist rétt til þess að koma á friði í bænum; hún getur fallið frá þessu deiluatriði í framkvæmdinni.

Það er vitanlega mesta fjarstæða, sem hæstv. ráðh. sagði, að það hafi verið um vinnudeilu að ræða 9. nóv., því að þetta uppþot var að allra dómi ólöglegt athæfi. Það var ekki lýst yfir neinu verkfalli, það var ekki mótmælt neinu því, sem búið var að taka upp. Uppþotið var gegn löglegri ályktun, sem ef til vill orkar tvímælis, hvort hefir verið heppileg eða ekki. En hún var lögleg engu síður en lög þau, sem þingið hefir samþ. og nú er verið að deila um. En hvað gera þessir menn, sem eru óánægðir með þessi lög? Ekki hafa þeir barið hv. þm. Þeir gripu til þess ráðs að gera verkfall, eins og þeim hefir verið kennt; þeir hefja verkfall í mótmælaskyni til þess að reyna að fá einhverju um þokað, og þeir geta byggt mótmæli sín á því, að slík verkföll í mótmælaskyni eru lögleg, hvort sem þau eru samþ. af Alþýðusambandinu eða ekki. Það er annað mál. En þetta verkfall er allt annars eðlis en það, sem gert var 9. nóv.

Ég tel það sjálfsagt, að lögreglan í landinu sé nægilega sterk, og ég tel óhjákvæmilegt, að þessi bær hafi lögreglu, sem er svo vel skipuð, bæði fasta lögreglu og varalögreglu, að hún geti hvenær sem er skakkað leikinn, ef með þarf.

Nú sjáum við, hvernig hæstv. stj. gengur að koma þessu í lag, og það er náttúrlega æskilegt, að það gerist sem fyrst og sem bezt, en hitt er vandræðalegt fálm, þegar hv. 2. þm. Reykv. og blað hans slær því föstu, að „íhaldið“ og kommúnistar standi að þessu verkfalli í sameiningu. Allt það, sem gert hefir verið í þessu máli af hálfu verkfallsmanna, er í samræmi við kenningar sósíalista. Ég vil benda hv. 2. þm. Reykv. á það, að hann hefði getað leyst þetta spursmál fyrirfram með því að lækka benzínið, svo að skatturinn kæmi ekki eins hart niður. Og það er það, sem þessir menn krefjast, sem nú eru á móti honum, hvernig sem hann reynir að leyna því, sem hann getur ekki, því að hann er ekki lengur álitinn neinn kóngur í þeirra félagsskap, þótt hann vilji bera nafnið benzínkóngur.