14.03.1935
Neðri deild: 28. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í C-deild Alþingistíðinda. (3980)
85. mál, vegalög
Flm. (Thor Thors):
Þetta frv. miðar að því, að teknir verði í tölu þjóðvega nokkrir vegakaflar á Snæfellsnesi. Þegar vegalögunum var breytt árið 1933, var látið hjá líða að taka í þjóðvegatölu þær leiðir, sem frv. þetta fjallar um. Liggja til þess sterk rök, að þetta verði leiðrétt þegar í stað og sveitum þessum ásamt kauptúninu á Hellusandi komið í viðunandi samband við vegakerfi landsins svo fljótt sem fjárhagur ríkissjóðs leyfir.
Heilar sveitir eru gersamlega útilokaðar frá þjóðvegakerfi landsins, og ég fullyrði, að allir þessir vegir eru mjög mikið áhugamál allra þeirra, sem á þessu svæði búa.
Þessar tillögur eru ekki nýjar hér á Alþingi. Á síðasta þingi kom fram frv. um að gera suma af þessum vegum að þjóðvegum, og var það flutt af hv. 4. landsk., form. Alþfl., og hv. þm. S.-Þ., form. Framsfl., svo að á því geta hv. þdm. séð, að hér er ekki um flokksmál að ræða. Ég vænti því, að þingheimur geti fallizt á að láta það ganga fram. Ástæðan til þess, að ég flyt þetta frv. nú, er sú, að þegar ég var síðast á ferð í kjördæminu, bárust mér eindregnar óskir um að flytja málið.
Ég leyfi mér svo að vísa til grg. við frv., þar sem nánar er skýrt frá þörfinni fyrir þessa vegi, og mun að öðru leyti ekki fjölyrða meira um það, en leyfi mér að óska þess, að frv. verði, að lokinni umr., vísað til 2. umr. og samþm.