23.03.1935
Neðri deild: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í C-deild Alþingistíðinda. (4053)

110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga

Pétur Halldórsson:

Herra forseti: Ég vildi spyrjast fyrir um það hjá frsm. þessa máls, hvort hér muni ekki vera um algert nýmæli að ræða í íslenzkri löggjöf, þar sem hér með er farið fram á að fá aðstoð ríkisvaldsins til þess að taka þarna handa einum einstökum aðila, sem er juridisk persóna, að óvilja annara eignir þeirra eftir mati. Mér skilst, að þetta sé einstök og merkileg nýjung í íslenzkri löggjöf, og ég vildi spyrjast fyrir um það hjá hv. 1. flm., hvort svo sé ekki.