04.04.1935
Neðri deild: 44. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í C-deild Alþingistíðinda. (4067)
110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Ég hafði kvatt mér hljóðs, þegar þetta mál var til umr. í þessari hv. d. út af því, að hv. 1. landsk. og hv. 2. landsk. töldu, að þetta frv. væri í raun og veru sambærilegt við l. um eignarnám lóða í kaupstöðum og kauptúnum. Þessu vil ég mótmæla, vegna þess að skilyrðin fyrir því, að menn geti fengið útmælda lóð í kaupstöðum eða kauptúnum, eru ríkari og önnur en gert er ráð fyrir í þessu frv. Þegar þau l. voru til umr., var mikið um það deilt af lögfræðingum þeim, sem þá áttu sæti á Alþ., en það voru þeir Einar Arnórsson og Jón Magnússon, hvort það frv. bryti ekki í bága við stjskr. Í þessu sambandi skal ég benda á, að þá var sett nýtt ákvæði í frv. um það, að þessi útmæling mætti ekki eiga sér stað, nema hreppstjórn eða bæjarstjórn mæli með því. Það var álitið tryggt, að ef þau meðmæli fengjust, þá væri almenningsheill til staðar. Í þessu máli er ekki slíku til að dreifa. Það liggur ekkert sérstaklega fyrir um það, að hreppsnefnd hafi lagt með þessu, og það hefir ekkert komið fram við umr., sem bendi á, að hér sé um almenningsheill að ræða.
Ég skal benda á, að í l. frá 1917 er þessi útmæling eingöngu takmörkuð við að fá útmældar lóðir í kaupstöðum eða þeim stöðum, sem löggiltir eru til verzlunar, og er ekki hægt að ganga út fyrir þau svæði. Ennfremur er ekki hægt að fá útmælt, ef svæðið er í notkun af öðrum. En aðalástæðan fyrir því, að l. frá 1917 voru sett, var sú, að það var talið, að einstakir menn hefðu öll umráð yfir lóðum í kaupstöðum eða bæjum. Það var þess vegna talið miða til almenningsheilla, ef aðrir fengju þar lóðir.
Ég hefi tekið þetta fram til þess að benda á, að það er rangt hjá hv. 1. landsk. og hv. 2. landsk., að þetta frv. sé sambærilegt við l. frá 1917. Það er allt annað, sem liggur til grundvallar. Auk þess má benda hv. þm. á það, að einmitt í sambandi við það frv. var mjög um það deilt á þingi, hvort það gengi ekki í bága við stjskr.
Hv. 5. þm. Reykv. hefir nú enn bent á atriði til að sýna rækilegar fram á, hver fjarstæða það er, að Alþingi samþ. slíka heimild, og þarf ég ekki að endurtaka neitt af því. En það má í viðbót benda á, að það virðist dálítið undarlegt, ef löggjöfin á að veita kaupfélagi aðgang að landi, sem það frá upphafi vissi, að það gat ekki fengið. Það er stofnað 1930. Og í grg. stendur, að það hafi ekki fengið nægilegt land, þrátt fyrir margítrekaðar samningaumleitanir. M. ö. o., í grg. er fullkomin játning fyrir því, að kaupfélagsstj. hafi þegar frá upphafi verið kunnugt um, að þarna gæti hún ekki fengið land. Hinsvegar hefir hv. flm. ekki getað komið fram með neitt, sem bendi til þess, að kaupfélagið hafi ekki getað fengið nægilegt landsvæði fyrir sig á öðrum stað. Það væri þess vegna ákaflega óeðlilegt, ef löggjöfin færi að þvinga fram, að óviðkomandi stofnanir, eins og kaupfélagið í þessu tilfelli, gætu fengið svo og svo stórt land fyrir sig með eignarnámi, ef það er í óþökk landeiganda. Ég veit satt að segja ekki, hvert komið væri, ef slíkt fordæmi yrði gefið, og virðist ekki hægt að stöðva sig við þetta eina kaupfélag. Ég fæ ekki séð, að hægt sé að banna öðrum verzlunarfyrirtækjum að fá nauðsynlegt land fyrir sína verzlun og nauðsynlega bithaga fyrir sín hross, ef þetta væri heimilað.
Ég er nú þeirrar skoðunar, að löggjafarvaldið eigi að vera mjög varfærið í því að heimila einum aðila umráð yfir landi gegn vilja eigandans. Eignarrétturinn er nú friðhelgur, og löggjafarvaldið á í sem fæstum tilfellum að trana sér inn á þann helga vettvang, - alls ekki nema í þeim fáu tilfellum, sem almenningsheill krefst þess. Og það getur vitanlega ekki komið til mála, að það sé hægt að sannfæra þingheim um, að það liggi almenningsheill bak við kröfu þessa frv.