24.10.1935
Neðri deild: 56. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (4130)
134. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Ég skal aðeins drepa á tvö atriði, sem fram komu hjá síðasta ræðumanni. Annað var það, að alltaf væru að koma fram háværari og háværari kröfur um að opna viðar fyrir dragnótaveiðunum heldur en verið hefði. Þetta er nefnilega gersamlega öfugt. Hv. þm. snýr hér sannleikanum við, því á síðustu árum hafa verið gerðar fjöldamargar héraðssamþykktir, sem banna dragnótaveiðar á sérstökum svæðum. Þróunin í þessu efni miðar því gersamlega í aðra átt heldur en hv. þm. vill vera láta.
Hvað snertir afstöðu Dana vil ég benda á það, að Danir hafa mjög klifað á því við íslenzk stjórnarvöld, að með þeim takmörkunum á heimild til dragnótaveiða, sem nú væru í lögum, væri jafnréttisákvæðið að þessu leyti gert að engu. Ég býst við, að þessar raddir hafi borizt til eyrna hv. þm. og hitt þar fyrir betri hljómgrunn heldur en hjá Alþingi að undanförnu. Því það hefir aldrei viljað láta undan ásælni Dana hér við land.
Um þann gamla draug, sem hv. þm. var að tala um í sambandi við járnbrautir o. fl., er það að segja, að það er harla langt seilzt, þegar hv. þm. fer að draga símamál og járnbrautir og háskasemi þeirra fyrir stórgripi í Englandi inn í þetta mál hér. Það sýnir aðeins fátækt hans og vesaldóm í því að verja þetta mál með rökum, sem snertir það sjálft. Þetta er því alger uppgjöf frá hendi hv. þm. við að standa við þessar till. sínar, og Alþingi ætti sem allra fyrst að gera hans þrautastundir í því efni sem fæstar og minnstar.