28.10.1935
Neðri deild: 58. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í C-deild Alþingistíðinda. (4142)
141. mál, garðyrkjuskóli ríkisins
Flm. (Sigurður Einarsson):
Ég kann ekki við, að hæstv. forsrh. beini því til landbn., að hún leggi frv. þetta til hliðar, af því að stjórnin hefir ekki undirbúið það, þar sem hann telur sig málinu hlynntan og meira að segja telur nauðsynlegt að koma garðyrkjuskólanum upp. Það skiptir engu máli í þessu sambandi, þó að hann teljist hafa betra frv. í fórum sínum. Frv. okkar má vitanlega færa til betra vegar, eftir því sem n. finnst nauðsyn til bera.
Úr því að farið er að tala svona mikið um þetta mál nú, þá finnst mér rétt að geta þess, að í fyrra var mál þetta rætt á sambandsþingi Alþfl. Landbn. sambandsþingins hafði það til meðferðar, og bar þá einn fulltrúanna, Jón Guðlaugsson, fram frv. um þetta efni, en það varð ekki afgr. En hinsvegar var samþ., að flokkurinn bæri það fram, strax og athugun á því væri fyllilega lokið, sem ekki varð í fyrra. En nú er henni lokið, og því töldum við okkur skylt að bera frv. fram nú.
Rannsókn sú, sem stj. hefir látið fara fram snertandi þetta mál, er vitanlega á engan hátt því til fyrirstöðu, að frv. nái fram að ganga. Þó að í frv. sé svo til tekið, að skóli þessi skuli heyra undir kennslumálaráðuneytið, réttlætir það á engan hátt kröfu hæstv. forsrh. til landbn. að setjast á málið. Slíkt smávægi mætti athuga í n. og færa til annars vegar, ef það teldist heppilegra.