02.11.1935
Neðri deild: 63. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í C-deild Alþingistíðinda. (4147)
152. mál, dómkirkjan í Reykjavík
Flm. (Pétur Halldórsson) [óyfirl.]:
Herra forseti! Mér er það ánægja að flytja þetta frv. og leggja það fyrir þessa hv. d. Og þó að grg. frv. sé glögg og nokkuð tæmandi, þá ætla ég að gera grein fyrir því með nokkrum orðum.
Það eru tvö aðalatriði, sem frv. fer fram á. Hið fyrra er það, að dómkirkjusöfnuðurinn taki að sér kirkjuna, sem er nú ríkiseign, og eigi hana framvegis og taki á sig allan kostnað af henni, gegn því, að ríkið leggi fram 300 þús. kr., sem því er ætlað að greiða á næstu 30 árum, 10 þús. kr. á ári. Það má skoða þetta framlag ríkisins í eitt skipti fyrir öll þannig, að með því sé það að kaupa af sér skyldu þá, sem á því hvílir um að sjá söfnuðinum fyrir kirkju.
Hitt atriðið er um það, að þegar sú breyt. hefir orðið, að söfnuðurinn hefir tekið kirkjuna í sínar hendur, þá sé um leið heimilt að skipta bænum í fleiri sóknir og að hver sókn hafi prestsþjónustu út af fyrir sig. Aðalreglan á að vera sú, að þegar 5000 manns eru í einni sókn, þá sé skylt að hafa þar einn prest. Ennfremur er gert ráð fyrir, að þetta ákvæði gildi um aðra kaupstaði, þegar svo er ástatt, að fólkið er orðið svo margt, nauðsyn er á, að kaupstaðnum sé skipt í sóknir.
Að lokum er gert ráð fyrir því, að þessi l. komi ekki til framkvæma fyrr en prestaskipti verða við dómkirkjuna næst, eða dómkirkjuprestarnir samþ. þá breyt., sem frv. gerir ráð fyrir.
Eftir frv. eiga söfnuðirnir hér í Reykjavík að sjá sér hér eftir sjálfir fyrir kirkju, en eins og nú er, er skylda ríkisins að sjá dómkirkjusöfnuðinum í Reykjavík fyrir kirkju. Þessari skyldu hefir ríkið ekki fullnægt nægilega hingað til, að áliti þeirra manna, sem láta sig þessi mál einhverju skipta. Enda er svo komið, eins og þessari hv. d. er kunnugt, að í Reykjavík eru nú yfir 20 þús. manns í dómkirkjusöfnuðinum, en söfnuðurinn hefir aðeins eina kirkju. Þetta ástand getur náttúrlega ekki gengið mjög lengi enn. Einhverjar ráðstafanir þarf að gera til þess að koma á þetta nýrri skipun, jafnóðum og þörf krefur. Og það er vissulega kominn tími til, að hafizt verði handa í þessu efni. Það er álit allra, sem þessu máli unna, að það muni heppilegast að láta þessi mál vera sem mest í höndum safnaðarins, og til þess miðar sú ráðstöfun fyrst og fremst, sem hér er farið fram á, að gerð verði, að hér eftir verði það á valdi safnaðarfólksins sjálfs, hvernig þessum málum verður fyrir komið hér í Reykjavík framvegis.
Það er ekki nokkur von til þess, að þessir tveir prestar dómkirkjusafnaðarins, sem nú eru, geti annað þessu verki, þannig að ekki fari þá önnur störf verr úr hendi, sem mjög er nauðsynlegt að fylgi prestsstörfum. Dómkirkjusöfnuðurinn er nú svo stór orðinn, að við núv. fyrirkomulag verður varla unað lengur, ef ekki á að hljótast af því verulegt tjón fyrir kirkju og kristindóm í þessum bæ. Og hér er ekki farið fram á annað en að Alþ. hjálpi safnaðarfólkinu til þess með þessum fjárframlögum að taka þessi mál í sínar hendur og þoka þeim áfram, eftir því sem það hefir vilja og krafta til.
Um það sérstaklega, að ríkissjóður leggi fram fé með dómkirkjunni, 300 þús. kr., er það að segja, að það verður að líta svo á, að þar með kaupi ríkissjóður af sér kvöð, sem nú hvílir á honum, með vægu verði. Það yrði áreiðanlega kostnaðarmeira fyrir ríkissjóð, ef hann ætti að koma upp hér í Reykjavík nauðsynlegum kirkjum, því að hjá því verður ekki komizt að byggja hér kirkjur mjög bráðlega. Það er alveg fyrirsjáanlegt, að það er miklu kostnaðarminna fyrir ríkissjóð að gera það, sem fram á er farið í þessu frv., heldur en að byggja nýjar kirkjur. Ég álít, að bæði sé það heppilegra fyrir ríkissjóð, að það sé gert, sem hér er farið fram á í frv., og einnig gagnlegt fyrir safnaðarfólkið á þann hátt, að með því fyrirkomulagi skapast mikil hvöt fyrir það til að vinna meira sjálft að þessu máli og skipta sér meira af því, sem krefur framlög og fórnir í sambandi við þessi mál, og yfirleitt að leggja á sig fjárframlög og annað til framgangs kristindómsmálum hér í bænum.
Ég held, að hér sé um svo vægilega ósk um framlag úr ríkissjóði að ræða til þessara hluta, að ómögulegt sé að telja hana ósanngjarna. Til samanburðar vil ég nefna það, að nú á síðasta þingi var gert samkomulag við góðan og gagnlegan félagsskap, nefnilega góðtemplararegluna hér í bæ, um það, að góðtemplarar skyldu afhenda hús sitt hér við Vonarstræti til ríkisins, gegn 150 þús. kr. framlagi, sem greiðist á 10 næstu árum. Það, sem hér er farið fram á, að ríkissjóður greiði til dómkirkjusafnaðarins hér í Reykjavík, er ekki nema tvöfalt framlag á við það, sem góðtemplarareglunni var greitt. Að vísu er þetta ekki alveg sambærilegt að því leyti, að fyrir þetta framlag til góðtemplarareglunnar fékk ríkið eign góðtemplara fyrir sunnan alþingishúsið. En það var til þess ætlazt, að meira en helmingurinn af þessu framlagi væri beint framlag til bindindisstarfseminnar í landinu.
Ég skal að lokum geta þess, að þetta frv. hefir fengið mjög ákveðin meðmæli, bæði frá prestastefnunni, aðalfundi dómkirkjusafnaðarins í Reykjavík, aðalfundi Prestafélags Íslands. héraðsfundi Kjalarnesprófastsdæmis og kirkjuráði. Og hinn almenni kirkjufundur í sumar taldi mjög brýna nauðsyn á fjölgun presta í Reykjavík.
Með þessum fáu inngangsorðum vildi ég svo bera fram ósk um, að máli þessu verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og allshn.