04.11.1935
Neðri deild: 64. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í C-deild Alþingistíðinda. (4152)

153. mál, garðyrkjuskóli

Sigurður Einarsson [óyfirl.]:

Hæstv. forsrh. lét það í ljós um daginn, að von væri frá honum á frv. um garðyrkjuskóla, sem bæri af frv. okkar Alþfl.manna um sama efni.

Hv. flm. gerði mikið úr þeim undirbúningi, sem frv. þetta hefði fengið hjá hæstv. ráðh., og gat þess, að honum hefði verið falinn undirbúningur málsins af ráðuneytinu. Hvað hæft er í því, skal ég ekki segja um að svo stöddu. En eins og allir vita, var þetta mál fyrst borið fram á sambandsþingi Alþfl. í fyrra, rannsakað þar í nefnd og nú borið fram af fulltrúum Alþfl. á þingi. Hvaða ástæðu hæstv. forsrh. hefir til þess að láta flytja þetta mál, er því næsta torskilið, ekki sízt þegar litið er á frágang þessa frv. vegna þess að mér er fremur meinlaust til hæstv. forsrh., hefði mér þótt betra, að hann hefði ekki hrósað sér svo mjög af hinum rækilega undirbúningi, er þetta frv. hans hefði fengið. - Í frv. er gert ráð fyrir 12 nemendum, er taki burtfararpróf árlega í lok hvers skólaárs, sem er tímabilið frá 1. marz til 30. nóv. ár hvert. Á þessu tímabili eiga nemendurnir að læra þessar námsgreinar til burtfararprófs: Íslenzku, stærðfræði, grasafræði, efnafræði, jarðfræði jurtafræði. arfgengisfræði, garðyrkjufræði, verkfærafræði, og auk þess skal kennt um almenna jarðrækt og skógrækt, eftir því sem tími vinnst til. - Það er nú víst, að það mega engir úrvalstossar vera, sem stunda allar þessar námsgreinar og ljúka í þeim burtfararprófi á þessum tíma. En svona er allur frágangur frv. Því er skutlað hér inn í einhverju endemisflaustri, og troðið út með allskonar reglugerðaratriðum, sem alls ekki eiga heima í lögum, t. d. því, að skólinn sé jafnt fyrir pilta og stúlkur.

Frv. okkar er hinsvegar rammi, sem reglugerð n að fylla út að fenginni reynslu, eins og venja er um skipulega samin lagafrv. Þar sem frv. þetta er þannig hálfgerður óskapnaður og okkar frv. kom fram á undan, verður að teljast sjálfsagt, að n. leggi það til grundvallar.

Þótt allt frv. hæstv. forsrh. sé þannig kryddað með reglugerðaratriðum, er gert ráð fyrir reglugerð ofan á þetta allt saman. Í 8. gr. er þó fastákveðið um burtfararpróf (og þá auðvitað einnig í lok fyrsta skólaárs) eftir 9 mánaða nám í öllum þeim greinum, sem taldar eru upp í 7. gr., eða svipuðum námsgreinafjölda og krafizt er í garðyrkjuskólum Dana, þar sem skólatíminn er hálft fjórða ár.

Hv. flm. lagði til, að málinu yrði vísað til landbn. Ég tel það alveg eins eiga heima í allshn.